Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2002, Blaðsíða 19

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2002, Blaðsíða 19
Álfagallabuxur, nákvæm eftirmynd samkvæmt lýsingu konu I Berlin á mjófættum álfi við leiði Orimmsbræðra. WOLFGANG MÚLLER Á KVÖLDSKEMMTUN HINSEGIN DAGA Á SPOTLIGHT FÖSTUDAGINN 9. ÁGÚST KL.21 „List ep sprengja í yjafapahhningu" Fjöllistamaðurinn Wolfgang Muller kom fyrst til íslands í boði Listahátlðar vorið 1990 og framdi þá gjörninga hér með félögum sínum úr framúrstefnu- hljómsveitinni Die Tödliche Doris. Hann festi vægast sagt ást á landinu þvl undanfarin ár hefur hann dvalið hér lengur og skemur á hverju ári. Hann hefur skrifað fjölda greina um ísland í þýsk blöð og tímarit og 1997 gaf hann út allvæna bók, Blue Tit - Þýsk-íslensku blámeisubókina, um íslenska nátt- úru, sögu og nútímamenningu á íslensku og þýsku. Þar hristir hann aðeins upp í Islandsímynd Þjóðverja af þöglum víkingum á hestum milli eldfjalla, fossa og hvera og segir að íslensk transa sé engu síður þáttur í náttúru landsins en snæugla eða brönugras. Wolfgang hefur einnig haldið ýmsar uppákomur og listsýningar hér á landi og þáttur hans í samsýningu þýskra , Goethe-hárkolla úr íslenskri ull. og íslenskra listamanna í Nýlistasafninu 1998 vakti mikla athygli því þar opnuðu þau Ásta Ólafsdóttir myndlistarkona einkarekna Goethe-stofnun á íslandi eftir að sú opinbera hafði verið lögð niður í sparnaðarskyni. Það hristi líka upp í fólki. Heima fyrir hefur hann kynnt Þjóðverjum íslenska sýn á ýmis- legt, meðal annars á tilvist huldufólks sem þriðjungur (slendinga telur mögulega. Reyndar segir Wolfgang Muller, sem nú er prófessor við Listaháskólann í Hamborg, að list sé sprengja í gjafapakkningu. Verk hans, sem birtast í nánast öllum hugsanlegum listformum, eru þó síst af öllu ofsafengin; öllu heldur þarf maður stundum að setja sig inn í samhengi til að njóta þeirra en þá er að vísu hætta á að maður springi af hlátri. 19

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.