Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2002, Side 16
Leikhúsiö
1940
Samkynhneigð og löggjöf
Alþingi samþykkir ný hegningarlög (nr.
19/1940) þar sem kveðið er á um sam-
ræðisaldur í kaflanum Skírlífisbrot. Kyn-
mök karls og konu utan hjónabands voru
nú refsilaus ef bæði voru orðin 16 ára.
Væri karlinn eldri en konan yngri var það
sakarefni fyrir karlinn. Þessi aldursmörk
voru með sömu lögum ékveðin 18 ár fyrir
einstaklinga af sama kyni og varðaði allt
að þriggja ára fangelsi fyrir þann aðila
sem eldri var. Sannaðist að hann hefði
beitt „yfirburðum aldurs og reynslu" til
að koma öðrum af sama kyni til að taka
þátt í mökun-um og væri sá á aldrinum
18-21 árs, varðaði það allt að tveggja ára
fangelsi. Nokkrum sinnum var þessum
lögum beitt gegn hommum og munu
þau hafa hrætt menn frá að stofna til
náinna kynna við aðra samkynhneigða.
Homosexuality and the Law
The Althing passed a new law (no.
19/1940) which specified age of consent
in the section on Public Decency. Extra-
marital sexual intercourse between a
man and a woman was now legal if both
parties were aged 16 or above. If the
man was older and the woman younger,
it was judged a criminal act on the man's
part. The same law stipulated a legal age
of 18 for same-sex individuals, recom-
mending up to three years imprisonment
for whichever individual was older. If it
could be proved that the individual had
used the advantage of age and experi-
ence to persuade a member of the same
sex to participate in sexual intercourse,
and if the younger party was aged
between 18 and 21, the act was punish-
able by up to two years imprisonment.
This law was used on several occasions
against homosexuals and probably dis-
couraged them from forming closer rela-
tionships with each other.
á Laugavegi ZZ
Síðasta áratug aldarinnar sem leið var
„22" óumdeilanlega gay barinn í
Reykjavík. Aðalstaðurinn og sá eini.
Þar þróaðist það séríslenska fyrirbrigði
að blanda gay og streit saman í einn
ólýsanlegan graut og gera þannig
drauminn um fullkomið jafnræði
kynhneigðanna að veruleika. Amer-
ískur blaðamaður, vanur háþróuðum
hommabörum heima fyrir, orðaði það
reyndar svo að þegar draumurinn rætt-
kom svo þriðji þátturinn, sá sér-
stæðasti og eftir á að hyggja kannski
sá merkilegasti: Fyrir utan „22". í þá
daga lokuðu allir skemmtistaðir
klukkan þrjú og þá breyttust gatna-
mótin fyrir utan í torg; fólk kom gagn-
gert af öðrum stöðum eða bara
heiman frá sér til að vera á þessum
undarlega mannfagnaði, slangraði um,
settist á tröppur og í nálæg skot og á
góðviðriskvöldum var mergðin slík að
bílar urðu að þrengja sér gegnum
mannfjöldann. Frægur leikari, fransk-
ur, varð reyndar fyrir einum og fót-
brotnaði því hann áttaði sig ekki á því
ist gæti hann líka orðið að martröð.
Mörgum þótti það líka skrýtin skemmt-
un fyrir fullorðið fólk að troða sér inn í
yfirfulla kompu, gamla íbúð sem skil-
veggir höfðu verið rifnir úr, dansa þar
á gamla borðstofugólfinu eða hfma
upp við bar eða súlu í reykjarsvælu og
ærandi hávaða. Menningin verður
ekki tekin út með sældinni.
En á „22" var ekki allt sem sýndist
því áralöng hefð var fyrir því að
kvöldin væru í fimm þáttum: Fyrsti
þátturinn, uppi á diskóinu, var sá sami
og alls staðar og alltaf; að sýna sig og
sjá aðra, rifja upp gömul kynni og
stofna til nýrra. Því næst kom annar
þáttur, á barnum niðri, meðan verið
var að koma gestunum út. Það tók
sinn tíma og gaf glöggum gestum
gott tækifær' til nánari rannsókna og
samanburðar á niðurstöðum. Síðan
að bílarnir ættu réttinn. Flann var að
horfa á ungan pilt sem hafði klifrað
upp á umferðarmerki og var að syngja
fyrir fólkið. Efni þessa þriðja þáttar var
að sjálfsögðu að undirbúa fjórða þátt
kvöldsins: partí í heimahúsum.
Auðvitað er það ósiður að bjóða fullu
fólki heim um hánótt en þetta
sérstæða samkvæmislíf krafðist þess
því þar, í partíi eftir ball, var loksins
komið að risi leikritsins, ef svo má
segja, hinum hádramatíska punkti, og
þar með að fimmta og síðasta þætti: I
bólinu.
Eftir allt saman var „22" þó gay
staður og hommar virðast allavega
eiga eitt sameiginlegt: Þeir vilja hafa
voðalega mikið fyrir þessu.
Veturliði Guðnason