Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2002, Síða 30
Umræðan um ofbeldiö
Sagan um hrottana sem fara gagngert í bæinn til
að lemja homma á sér áreiðanlega stoð í veru-
leikanum en óttinn við þá nærist ekki á raun-
verulegum atburðum; slíkt er sem betur fer sára-
sjaldgæft. Hitt mun þó vera nokkuð algengt að
rekja megi pústra og kjaftshögg til leyndra og bældra
hvata til eigin kyns og hættumarkið er þá yfirleitt
þegar maðurinn er búinn að koma sér I þá aðstöðu
að hann er alveg við það að fá tækifæri til að losna
úr sjálfheldunni. Þegar fólk fer að berja náungann
er eitthvað að en hvað það er hlýtur að vera jafn-
misjafnt og fólkið er margt. Flókin fyrirbrigði fara
hins vegar ekki vel í sögum og þá er gripið til
alhæfinga sem hver étur eftir öðrum þangað til
þær virðast vera sannleikurinn, með ákveðnum
greini. Einkenni þess er að ekki er talað um hnefa-
högg, löðrunga, spörk og þess háttar aðgerðir held-
ur „ofbeldi", eins og það sé eitthvað óhlutlægt,
eitthvað illt sem andskotinn hafi sent í heiminn.
Fyrr en varir eru menn búnir að koma sér upp „öxli
hins illa" eins og Bush Bandaríkjaforseti; í þessu til-
felli eru það hommahatur og eiturlyf. Og rétt eins
og ofstækismaðurinn vestra hefði lagt til sjá menn
helst það ráð að hreinsa burt hommahatarana og
dópistana og þá renni ósjálfrátt upp friðaröld fyrir
samkynhneigða. Það merkilega við þessa rök-
semdafærslu eru að því er virðist samantekin ráð
um að minnast ekki á áfengi sem deyfir þó sann-
anlega hömlur á árásarhneigð manna. Úr þessu
verður svo merkingarlaust blaður, svokölluð
„umræða", sem nærist á ótta og elur á ótta við
eitthvað óþekkt, óviðráðanlegt „ofbeldi" og alltaf
eru það einhverjir aðrir sem eiga að vernda mann
fyrir því. Tilgangurinn með þessu bulli virðist helst
vera sá að gefa mönnum enn eina átylluna til að
húka beiskir inni i skápnum og hræða þá frá því
að fara út að skemmta sér. Eins og biskupinn sagði
i páskaræðu sinni um næturlífið í miðbænum: „Þar
er myrkrið, þar er nóttin." Fyrir utan fordómana,
frekjuna og dónaskapinn sem felst i þessari alhæf-
andi myndlíkingu er hún líka alröng. Það sér það
hver maður sem fer um borgina að næturlagi að
kirkjugarðsfriðurinn, myrkrið og nóttin, er alls
staðar allsráðandi nema einmitt í miðbænum. „Þar
er Ijósið, þar er lífið" væri mun réttara - og lífið er
nú einu sinni ekki hættulaust.
Veturliði Guðnason
Samstarfsnefnd um
Hinsegin daga í Reykjavík
Á hverju hausti skipa félögin og hóparnir sem koma að
Hinsegin dögum nýja samstarfsnefnd til þess að undirbúa
hátíð næsta sumars. Hvert félag eða hópur skipar að
minnsta kosti tvo aðalfulltrúa og síðan aukafulltrúa þeirra
eftir þörfum. í þetta sinn eru það Samtökin 78, FSS, MSC
Island, HlV-Jákvæður hópur homma, Ungliðahreyfingin
Revolta og KMK sem eiga fulltrúa í samstarfsnefndinni.
Þeir skipta síðan með sér verkum eftir tilnefningu í nefnd-
ina. Eftirfarandi einstaklingar skipuðu samstarfsnefnd um
Hinsegin daga 2002, en að auki sóttu fjölmargir aðrir fundi
nefndarinnar, sem eru öllum opnir, og lögðu þar ómælt
lið.
Forseti samstarfsnefndar Þorvaldur Kristinsson
Framkvæmdastjóri Heimir Már Pétursson
Fjármálastjóri Ragnar Ragnarsson
Ritstjóri og ráðgjafi Veturliði Guðnason
Lögreglustjóri Dagný Steinunn Hjörvarsdóttir
Fjáröflunarstjóri Guðjón Jónasson
Göngustjóri Þórarinn Þór
Verkstæðisformaður Sigþór Sigþórsson
Umþoðsmaður stúlkna Kolbrún Ósk Skaftadóttir
Hönnuður Kristinn Gunnarsson
Dagskrárstjóri Ingólfstorgs Páll Óskar Hjálmtýsson
Hreyfilistastjóri Sara Dögg Jónsdóttir
Dragglegur ráðgjafi Ársæll Hjálmarsson
Tengiliður Ingi Rafn Hauksson
Gleðipenni Ásgeir Ingvarsson
Ritstjóri vefsfðu Heiðar Reyr Ágústsson
Umboðsmaður pilta Davíð Terrazas
Bongo Kristín Jóna Þorsteinsdóttir
30
Sviðsstjóri Ingólfstorgs Unnar Geir Unnarsson