Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Blaðsíða 46

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Blaðsíða 46
ÞAU STANDA AÐ HINSEGIN DÖGUM 2003 Samtökin '78 - félag lesbía og homma á Islandl www.samtokin78.is - www.gayiceland.com - office@samtokin78.is Samtökin '78 eru elstu og stærstu samtök samkynhneigðra hér á landi og voru stofnuð í maí 1978. Markmið félagsins eru tvíþætt: Að vinna að baráttu- og hagsmunamálum lesbía og homma í því skyni að vinna þeim jafnrétti á við aðra á öllum sviðum þjóðlífsins, og að skapa félagslegan og menningarleg- an vettvang til þess að styrkja sjálfsvitund þeirra, samkennd og samstöðu um sérkenni sín. Starf félagsins byggist að verulegu leyti á sjálfstæðum starfshópum. Mikill hluti af starfi félagsins snýst um réttindabaráttu á opinberum vettvangi. Það var að undirlagi Samtakanna 78 að forsætisráðherra skipaði nefnd til að kanna stöðu samkynhneigðra á Islandi og leggja fram tillögurtil úrbóta snemma á tíunda áratug 20. aldan Sú vinna bar þann árangur að lög um staðfesta samvist fólks af sama kyni voru samþykkt árið 1996 og verndarákvæði í íslensk hegn- ingarlög síðar sama ár Þá er skemmst að minnast nýfengins réttar samkynhneigðra ístaðfestri samvist til stjúpættleiðingar árið 2000. Á vettvangi félagsins starfa framkvæmdastjóri, fræðslufulltrúi og félagsráðgjafi sem veita aðstoð og ráðgjöf um samkynhneigð málefni. KMK - Konur með konum www.geocrties.com/konurmedkonum - konurmedkonum@hotmail.com Konur með konum, KMK, varð til sem grasrótarhreyfing les- bía fýrir rúmum áratug og hefur starfað síðan með nokkrum hléum.Vorið 2000 var starfið endurvakið og hefur það aldrei verið blómlegra en síðustu misseri.Tilgangur hreyfingarinnar er ekki síst að efla sýnileika lesbía, styrkja samstöðu þeirra, gefa þeim tækifæri til að skemmta sér á eigin forsendum og kynnast öðrum í hópnum. Á vettvangi KMK starfar róðrar- liðið Gazellurnar sem oft hefur orðið sigursælt á Sjómannadaginn. Þá stunda stúlkurnar í KMK blak af kappi og kepptu á Alþjóðaleikum samkynhneigðra - Gay Games - í vor í Kaupmannahöfn. Þá mála þær landsbyggðina í regn- bogalitunum á sumarhátíðum sínum og bregða sér í útilegur og veiðiferðir þegar vel viðrar Á hinni vinsælu vefsíðu KMK er að finna líflega umræðu sem átt hefur drjúgan þátt í að efla styrk hreyfingarinnar MSC ísland www.this.is/msc - msc@this.is MSC Island var stofnað árið 1985 og sniðið eftir gay vél- hjólaklúbbum þótt reyndar fari meira fyrir tilheyrandi klæð- naði og félagsskap en þeysingi á hjólum. Klúbburinn hefur sínar klæðareglun leðun gúmmí- einkennis- og gallaföt, og ástæðan er einfaldlega sú að félagarnir vilja hafa karlmenn karlmannlega klædda og þá heldur ýkt í þá áttina en hina. MSC Island hefur ferðamennsku og fyrirgreiðslu við erlenda ferðamenn beinlínis á stefnuskrá sinni og félagið var ekki síst stofnað til þess að Islendingar gætu orðið formlegur aðili að Evrópusamtökum slíkra klúbba, ECMC. Bein pólitísk afskipti eru ekki á dagskrá en í reynd hafa ECMC-samtökin verið ein virkustu alþjóðasamtök samkynhneigðra í heilan aldar- fjórðung og lagt mikið af mörkum til baráttunnar fyrir stolti, sýnileika og samábyrgð. FSS - Félag samkynhneigðra og tvíkynhneigðra stúdenta www.gay.hi.is - gay@hi.is Félag samkynhneigðra og tvíkynhneigðra stúdenta, FSS, var stofnað í janúar 1999 af einum 20 stúdentum við Háskóla Islands. Brátt var hópurinn orðinn um 150 manns og hefur félagið haldið uppi blómlegu félagsstarfi síðan. Markmið félagsins er að vera sýnilegt afl innan háskólasamfélagsins á Islandi og í forsvari þar þegar málefni samkynhneigðra ber á góma. Allir nýnemar við Háskóla Islands fá sendan kynningar- bækling á hausti um félagið og starf þess og þeim boðið til hátíðar á vegum félagsins. Félagið tekur virkan þátt í samtökum ungs samkynhneigðs og tvíkynhneigðs fólks í Evrópu, AFFS, en FSS mun taka við forsæti í samtökunum á næsta ári og halda næsta fund samtakanna í byrjun ágúst 2004. Reglubundin félagsstarfsemi fer einkum fram á svoköll- uðum GayDay kvöldum, en þau eru haldin hálfsmánaðarlega ýmist í Stúdentakjallaranum eða á Café Cozy. Á þeim vett- vangi skapast þægilegt og gott andrúmsloft þar sem auðvelt er fýrir nýtt fólk að slást í hópinn. Jákvæður hópur homma www.aids.is - aids@aids.is Fyrir sextán árum stofnuðu nokkrir hommar; sem höfðu smit- ast af HlV-veirunni, hóp til að styðja hver við annan í lífs- baráttunni á tímum þegar aðkast í garð HlV-jákvæðra var daglegt brauð í fjölmiðlum og lífsvonir litlarfyrir þá sem smit- ast höfðu. Eftir að Alnæmissamtökin á Islandi voru stofnuð hefur hópurinn starfað á vettvangi þeirra samtaka og lagt mannréttindabaráttunni lið með því að upplýsa um HIV og samkynhneigð. The Forces behind Gay Pride 2003 in Reykjavík The gay community in lceland has joined forces to celebrate Gay Pride 2003 with festivities in Reykjavík on the second weekend of August. Gay Pride 2003 is organized by the lcelandic Organization of Lesbians and Gay Men Samtökin '78; the Gay and Lesbian University Student Union FSS; the women 's group Women with Women KMK; the leather club MSC lceland, and the HlV-Positive Group of Gay Men. Útgefandi: Samstarfsnefnd um Hinsegin daga í Reykjavík Samtökin '78, félag lesbía og homma á Islandi MSC Island - KMK Konur með konum - FSS, Félag samkynhneigðra og tvíkynhneigðra stúdenta - Jákvæður hópur homma Abyrgðarmaður: Heimir Már Pétursson Hönnun: Tómas Hjálmarsson Merki Hinsegin daga: Kristinn Gunnarsson Ljósmyndir: Bára, Sóla, Jean-Frangois, Georg og fleiri. Textar: Ásgeir Ingvarsson, Guðlaugur Kristmundsson, Heimir Már Pétursson, Jóhanna RíkharðsdóttinVeturliði Guðnason, Þorvaldur Kristinsson, Þóra Gerður Guðrúnardóttin Auglýsingar: Guðjón R. Jónasson, Heimir Már Pétursson. Prentun: Isafoldarprentsmiðja ehf. www.samtokin78.is öi & Fé Aq AR HAIR SALOON SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR8 TEL £ 52 3425 46

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.