Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Blaðsíða 27

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Blaðsíða 27
GOMUL GULLKORN f gamla bænum f Barcelona má finna veitingastað þar sem salernin eru merkt „gordos" og „flacos", eða feitir og mjóir. Ekki það að ég sé ginnkeypt- ur fyrir því að skipta mannkyninu upp í feita og mjóa þó að vissulega geti það verið nærtækt á matsölustað. Það er aftur á móti hressandi að standa frammi fyrir svona óvenjulegum valkosti þegar sinna skal jafn venjubundinni athöfn og að ganga örna sinna. Hm, feitir og mjóir. Allt í einu skiptir ekki máli hvoru kyninu maður tilheyrir heldur fer valið á salerni eftir sjálfs- mynd hvers og eins. Grindhoraður maður getur til dæmis skemmt sér við að fara á salernið sem merkt er feitum. Feitur maður getur Ifka ímyndað sér sem snöggvast að hann sé tággrannur og skellt sér á mjóa básinn. Þeir þybbnu geta tvístigið og svo kann að vera viss léttir fyrir suma að sjá að gert er ráð fyrir þeim, að þeir eru ekki út- skúfaðir. Þó að greina megi ýmsar hættur í þessari skiptingu eins og annarri tví- skiptingu var ólýsanlegur léttir fyrir Norðurlandabúa að losna undan blý- þungu kynhlutverkinu sem snöggvast. Regnbogans litir Þau eru ekki mörg augnablikin í lífinu sem maður losnar af klafa kynsins, hvað þá kynhneigðarinnar. Vitundin um þessa eðliseiginleika hvílir á manni alla daga með tilheyrandi kvöðum og kröfum. Karnívalstemmningin sem ríkti í Gleðigöngu homma og lesbía í sumar veitti hins vegar kærkomið tæki- færi til að gerast svolítill umskiptingur, þó ekki væri nema nokkur augnablik í senn. Maður gat keypt sér regnboga- fána homma og lesbía og stungið sér inn í gönguna hér og þar. Maður gat þrammað með leðurbuxnahomm- unum svolítinn spöl. Maður gat farið í dragg og gerst austurlensk dansmey. Og svo gat maður hoppað út úr röð- inni hvenær sem var og gerst áhorfandi, lagt blessun sína yfir þann allsherjar kynusla sem þarna fór fram. Eina dagstund fóru öll hefðbundin viðmið á usl og busl, enginn gat verið viss um kynhneigð neins. Ó, sú náð, ó, sá léttir! Draumsýn um samkennd Það væri stundum gott að geta gleymt því hvers kyns maður er og þá ekki síður hver kynhneigð manns er og verið bara manneskja. Það er líklega til of mikils mælst, að minnsta kosti til lengdar, en til vara væri gott að geta gert þá kröfu að vera ekki kerfisbund- ið minntur á hvers kyns maður er. Það má til dæmis spyrja hvort átak eins og Auður I krafti kvenna, sem stendur meðal annars fyrir því að mismuna drengjum og stúlkum með því að taka stúlkurnar með í vinnuna en skilja drengina eftir heima, hafi tilætluð áhrif, hvort það stuðli ekki fremur að því að árétta kynjaskiptinguna, auk þess sem það getur vakið gremju foreldra, ekki síst þeirra sem eiga ein- ungis drengi, svo ekki sé nú talað um aðstöðu þeirra sem eiga tvíbura, hvorn af sínu kyni. Þarna er athygli barnanna sérstaklega beint að því hvers kyns þau eru og að jafnt skuli ekki yfir þau ganga enda sé annað kynið hálffatlað. Börnin læra fljótt að haga sér í sam- ræmi við það. Væri ekki nær að drepa þessari hvimleiðu tvíhyggju á dreif og demba sér í karnivalíska gleðigöngu, leyfa öllum að vera það sem þeir vilja vera, enginn amist við því þó að kona dragi dám af karli eða karl af konu, nú eða einhverju þar á milli, fólk sé bara eins og það er, hafið yfir flokkanir. Hvað er svona merkilegt við kyn okkar og kyn- hneigð? Við erum öll af öðru hvoru kyninu og hneigjumst öll hvert að öðru á einhvern hátt svo varla getur það verið tiltökumál þegar upp er staðið; stórmerkilegt að nokkrum skuli detta í hug að taka mið af þvíumlíku við gerð kostnaðaráætlana og ráðn- ingarsamninga. Upphaflega birt í DV 5. september 2002. Umburðarlyndi - nei takk! „Á erfiðum tímum er fátt eins hættulegt þeim sem eiga undir högg að sækja og lítilþægnin. Þá er skammt í það að menn fari að rugla saman hugtökunum umburðarlyndi og frelsi. Má ég sem hommi afþakka þetta blessaða umburðarlyndi. Svo kann að virðast sem það feli í sér nokkra viðurkenningu. En í afstöðu umburðarlyndisins er alltaf dulinn fyrirvari: Það er allt í lagi með ykkur... en ... en. Þess háttar viðurkenning vísar enga leið til frelsisins og reynslan sýnir að umburðar- lyndið gildir aðeins meðan við þegjum og læðumst með veggjum. Það sést best að um svikalogn er að ræða þegar við hommar og lesbíur tökum til máls og leitum sjálfsagðra mannréttinda. Þá rísa varðmenn ríkjandi ástands upp og reiða til höggs." Þorvaldur Kristinsson i Þjóðviljanum 1986 Ég er ekki að básúna neitt „Það er fullt af hommum úti í bæ sem hafa hvorki sagt einum né neinum frá því að þeir séu hommar. Og i rauninni kemur engum það við. Kynhneigð þín á að vera þitt einka- mál og ég skil ekkert í sjálfum mér að vera að blaðra um þetta við þig. En ef það verður til þess að sumt fólk þarf ekki að þykjast vera eitthvað annað en það er alla sína ævi þá er mér nákvæmlega sama þótt ég segi til mín, að minnsta kosti. Mér finnst nákvæmlega ekkert rangt við það. Ég kom ekki bara úr felum eins og hendi væri veifað, 27. júní eða eitthvað i þá áttina. Ég sneri vissulega við blaðinu og fór að segja fólki frá þessu ein- göngu vegna þess að það spurði. Ég hef ekki verið að básúna neitt um samkynhneigð mína." Páll Óskar Hjálmtýsson í Mannlifi 1991 Siðareglur á Moulin Rouge „Hvað er svo að gerast á Mulinni Rúst? Á venjulegu kvöldi ber íslensku kjarnafjölskyld- una auðvitað hæst, það eru gestirnir sem kallaðir eru „sama fólkið". Þótt nokkur daga- munur sé á, er gamla ættarmótsstemningin oft ríkjandi nokkuð fram eftir kvöldi. Allir þekkjast en vilja ekki endilega hittast, og heilsast því samkvæmt afar flóknum en ákveðnum siðareglum. Sumum eiga allir að heilsa og sumir eiga að heilsa öllum og allt þar á milli; sumir eiga eiginlega ekki að heilsa neinum en heilsa öllum tvisvar og það er líka orðin hefð." Veturliði Guðnason í Sjónarhorni 1992

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.