Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Blaðsíða 39

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Blaðsíða 39
INTERNATIONAL MR LEATHER COMES TO REYKJflVÍK GAY PRIDE A special guest at Reykjavík Gay Pride and Leather Summit is John Pendal, International Mr Leather 2003. He won the title among 58 contestants from five countries at the 25th annual International Mr Leather Contest, attended by more than 10.000 leatherfolks in Chicago last May. John lives in London and was sponsored by the big and popular leather bar The Hoist. He has supported SM Gays, a non-profit educational group - and Gay Men Fighting AIDS - with demonstrations, fundraising and assis- tance with publicity. He has also cre- ated and operated an online guide to London's leather and SM scene. As the International Mr Leather 2003 title- holder, John Pendal will represent IML and the Leather Community over the next year. Upplýsingar / Information MSC ísland Pósthólf 5321, IS-125 Reykjavík msc@this.is • www.this.is/msc Vefsíður / Websites International Mr Leather & John's Guide to London's Leather, Bear & SM Scene: www.iml2003.com GÖMUL GULLKORN Allir sitja á gægjum „Það sitja allir, á þessum smástöðum úti á landi og líka í smástaðnum Reykjavík, á gægjum. Fylgjast með. Til dæmis ef einhver er á labbi með mér á götu, þá er viðbúið að hann verði álitinn hommi. Þetta er nú einu sinni svona! Svo mjög verð ég var við þetta að mér er meinilla við að labba með fólki úti á götu. Ég var með Benna bróður mínum í Klúbbnum um daginn. Þá rauk náungi á mig og sagði: „Helvítis svínið þitt, þú er búinn að pikka þér einn sætan." Ég spurði við hvað hann ætti. Þá benti hann á Benna og sagði: „Þykir þér þessi sætur, ertu ánægður með að fá hann í rúmið með þér?" Ég sagðist ekki hafa hugsað það langt með hann. Aftur á móti væri þetta mitt mál, ekki hans. Ef hann ætlaði að gerast riddari á hvítum hesti og bjarga Benna, þá ætti hann frekar að snúa sér til hans og vara hann við." Hörður Torfason í Samúel 1975 Hún var nokkuð eðlilega tennt „Fyrsta lesbían sem ég sá var vampíra. Hún hafði þann leiða vana að æða út hverja nótt um miðnætti og bíta samsveitungur sínar á hálsinn. Sjúga síðan úr þeim allt blóð eftir að hafa kysst þær ástríðufullt á hálsinn í nokkrar mínútur (nauðugar að sjálfsögðu). Þetta gerðist að vísu á bfótjaldi, en ómótaður barns- hugur minn tengdi ósjálfrátt saman langar vígtennur og ást kvenna á öðrum konum. Nokkrum árum seinna leit ég síðan fyrstu áþreifanlegu lesbíuna augum. Hún var nokkuð eðlilega tennt, borðaði venjulegan mat og virtist ekki sérstaklega árásargjörn. Þar með var leiðréttur sá barnalegi misskiln- ingur minn að lesbíur væru blóðþyrst og grimm yfirnáttúruleg fyrirbæri." Lilja S. Sigurðardóttir í Sjónarhorni 1991

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.