Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Blaðsíða 29

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Blaðsíða 29
Margret Pala Olafsdottir Hátíðarávarp Hinsegin daga í Reykja- vík flytur að þessu sinni Margrét Pála Ólafsdóttir. f aldarfjórðung hefur hún helgað krafta sína uppeldismálum á þann frumlega og skapandi hátt sem henni er svo eiginlegur enda hafa kenn- ingar hennar og störf að uppeldis- málum - ekki síst jafnréttisuppeldi - vakið athygli víða um lönd. Margrét Pála hefur jafnframt komið við baráttu- sögu lesbía og homma með eftirminni- legum hætti. Hún gegndi formennsku ( Samtökunum '78 á árunum 1994-99 og markaði með kunnáttu sinni og örlæti mikil framfaraspor í sögu samkynhneigðra á (slandi. Á forystu- árum Margrétar Pálu í Samtökunum '78 öðluðust samkynhneigðir rétt til þess að staðfesta samvist sina og verndar- ákvæðum til handa samkynhneigð- um var aukið í íslenska refsilöggjöf, hvort tveggja árið 1996. Þá var það ekki síst baráttu hennar að þakka að forystufélag samkynhneigðra hér á landi eignaðist á tuttugasta aldursári sínu verðuga félags- og menningar- miðstöð sem nú hýsir blómlegt starf hreyfingarinnar. Hinsegin dagar í Reykjavík - Gay Pride bjóða Margréti Pálu Ólafsdóttur velkomna á hátíðarsviðið 9. ágúst. The honorable speaker at the outdoor concert of the Reykjavlk Gay Prlde 2003 Is Ms Margrét Pála Ólafsdóttlr. An influential pioneer in child- ren's education as well as educational theory for over twenty five years, she has also contributed in a memorable way to the fight for gay rights in lceland. She was the leader of the lcelandic Organization of Lesbians and Gay Men, Samtökin '78, in 1994-99, years of many great victories, of which the law on registered partnership in 1996 is the most important one. Reykjavík Gay Pride welcomes Margrét Pála Ólafsdóttir on stage 9 August. Einlægur baráttumaður, leikskáld og söngvari Kynnirá hátíðardagskrá Hinsegin daga 2003 er hinn landskunni leikari, leikhússtjóri, leikskáld og söngvari Felix Bergsson. Felix hefur verið í farar- broddi sem lista- maður og nýjasta skrautfjöðrin í hatti hans er Gríman, íslensku leiklistar- verðlaunin fyrir sýn- inguna Kvetch eftir Steven Berkoff sem leik- hópur hans, „Á senunni", setti á svið síðastliðinn vetur. Á fyrsta ári Hinsegin daga, 1999, setti leikhópurinn upp leikrit eftir Felix, Hinn fullkomna jafningja, í íslensku óperunni. Verkið vakti athygli á hon- um sem listamanni langt út fyrir land- steinana og var síðan leikið í London, Noregi, Færeyjum og Svíþjóð. Felix er einlægur baráttumaður fyrir mannréttindum samkyn- hneigðra. Hann er giftur Baldri Þórhallssyni, dósent við Háskóla íslands, og eiga þeir tvö börn. Hinsegin dagar í Reykjavík - Gay Pride eru stoltir af Felix Bergssyni. Fighter for Human Rights, Playwright, Actor and Singer The honorable host of the Reykjavik Gay Pride 2003 is the TV personality, actor, playwright and singer Felix Bergsson. He has been on the front- line in lcelandic theater for the last decade, and his production of Kvetch by Steven Berkoff brought him and his theater group "On the Scene" numer- ous awards at the last lcelandic National Theater Award, induding Play of the Year. At the first Gay Pride event in 1999 theatre "On the Scene" presented a production of The Perfect Equal, a play written and performed by Felix Bergsson and partly inspired by Walt Whitman's life and writings. That production was later a sell-out success at The Drill Hall in London and it was also performed in Norway, Faroe Islands and Sweden. Gay Pride 2003 is proud to present Felix Bergsson, an outstanding artist and a true fighter for human rights. 29

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.