Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Blaðsíða 32

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Blaðsíða 32
Skáldið Elías Mar hefur lifað timana tvenna enda að nálgast áttrætt og hefur bæði ferðast viða og verið hispurslaus þátttakandi i samfélagi samkynhneigðra frá þvi snemma á þritugsaldri. Hann kallar sjálfan sig tvíkynhneigðan enda gæddur þeim hæfileika, eins og hann kallar það, að geta hrifist bæði afkonum og körlum. Hann sagði Ásgeiri Ingvarssyni frá þeim heimi sem mætti hómósexualistum fyrir hálfri öld. Ég hringi bjöllunni í gamalli blokk í Vesturbænum. Djúp rödd en eilítið brostin svarar og mér er hleypt inn. Á móti mér tekur hávaxinn og myndarleg- ur'maður þótt hann sé sjáanlega orðinn nokkuð aldraður. Hárið er hvítt og mikið og greitt aftur. Við setjumst niður í stof- unni hjá honum og það er ekki laust við að hárið og fasið minni mig á transil- vanískan greifa, ekki síst þegar hann renn- ir þykkum gleraugunum fram á stórt en grannt nefið og undan úfnum hvítum augnabrúnum skjótast augu í tvítugum pilti, hálfgrallaraleg, og stríðnislegt glott kemur á munninn. Ég er staddur hjá Elíasi Mar og bið hann að segja mér eitthvað af sögu sinni og hvernig það var að vera tvíkyn- hneigður maður á íslandi fyrir 50 árum. „Strax sem krakki, eða að minnsta kosti um fermingu, var ég farinn að segja við vini mína að mér þættu sumir strákar fallegir eins og stelpur. Já, já, þeir gátu svo sem samþykkt það að sumir strákar væru andskoti kvenlegir, en þeir væru nú ekkert skotnir í þeim," segir Elías og hverfur aftur til fjórða áratug- arins. „En ég sagðist vera skotinn í sumum þessum strákum og að mig langaði til að hátta hjá þeim. Þá hlógu vinir mínir- þeim þótti þetta svo fyndið. Og þessu hélt ég bara áfram, hélt áfram að tala um fallega stráka og það þótti aðeins spaugilegt og ég fékk ekkert orð á mig fyrir það, enda lifði ég ekki þannig. Ég hafði ekki framkvæmd í mér til þess og ekki aðstöðu til þess. Því það er nú eitt, að maður þarf að hafa hús- næði. Maður gerir þetta ekki undir beru lofti, svona á hvaða árstíma sem er." Maður heyrði stundum þessi orð Hann segist engan hafa fælt frá sér með þessu tali, þó það virðist á frásögn hans að samkynhneigð hafi verið tabú: „Á æskuárum mínum heyrði ég aldrei talað um þessa hluti. Það var í það minnsta ekki talað um þá svo krakkar heyrðu. Maður heyrði stundum þessi orð sem notuð voru þá sjaldan þetta bar á góma. Það var sagt að menn væru kyn- villtir og sódómískir eða öfugir. Það var „Elías Mar! Hvað erum að gera ?" f 32

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.