Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Blaðsíða 18

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Blaðsíða 18
GÖMUL GULLKORN Við erum ekki kynóð „Mjög margir vita ekki hvað það er að vera tvíkynhneigður. Sumir halda að það þýði að fólk sé tvítóla. Aðrir halda því fram að tvíkynhneigðir séu fólk sem vilji bara sofa hjá hjónum, aðilum af báðum kynjum í einu. En það er ekki þannig sem við upplifum kyn- hneigð okkar. Við getum bara hrifist af báðum kynjum. Svo einfalt er það. Ef maður er í traustu sambandi hefur maður enga þörf til að sofa hjá öðrum. Það er bara eins og hjá öllum sem eru í samböndum. Við erum ekki kynóð. Fólk heldur stundum að tvíkyn- hneigðir séu á eilífu flandri á milli einstaklinga [ leit að kynlífi. Ég hef oft verið spurður að því hvort konan mín sætti sig við það að ég eigi ástmenn úti í bæ. Sem er náttúrlega bara kjaftæði." Sigurbjörn Svansson í Mannlífi 1993 Samkynhneigð - Ástarhneigð „Biblían var áður fyrr notuð sem vopn gegn kosningarétti kvenna, því talið var að konur ættu að þegja á samkundum. í dag má nota það gegn okkur að í lögum Móse er sagt eitt- hvað um samræði sem getnaðarathöfn. Ef fólk ætlar að nota slíkt gegn okkur þá finnst mér að það væri heiðarlegast að stíga skref- ið til fulls - eins og páfinn í Vatíkaninu - og banna getnaðarvarnir og fóstureyðingar og samræði, nema getnaður standi fyrir dyrum. Samkynhneigð er ekki afmörkuð við kynlífs- athafnir, heldur ástarhneigð og möguleika fólks af sama kyni til að lifa saman. Snorri í Betel og Gunnar í Krossinum telja að það þurfi að lækna fólk og frelsa það frá sjálfu sér. Samkynhneigð hefur alltaf verið til f öllum þjóðfélögum. Hitler reyndi að útrýma samkynhneigðum í gasklefum og Stalín gekk einnig hart að þeim. Samkynhneigðir voru ofsóttir á McCarthy-tímabilinu í Banda- ríkjunum, en það hafði lítil áhrif því að samkynhneigðir lifðu af allar þessar ofsóknir. Á sama hátt munum við lifa menn eins og Gunnar í Krossinum og Snorra í Betel." MargrétPála Ólafsdóttir í Helgarpóstinum Meðal skemmtikrafta á útihátíð Hinsegin daga 9. ágúst er söngvarinn Hafsteinn Þórólfsson sem hér kemur fram ásamt dönsurunum Ástu Bær- ings og Sigyn Blöndal. Skemmst er að minnast Eurovision-sýningarinnar á Broadway síðastliðið vor, en þar var Hafsteinn meðal einsöngvaranna fimm sem slógu í gegn. Frá því hann man eftir sér hefur hann verið syngj- andi, á árunum í Menntaskólanum að Laugarvatni tók hann þátt í upp- færslum á Fiðlaranum á þakinu, Caba- ret og Ég vil auðga mitt land og síðar í uppfærslum með óperudeild Söng- skólans í Reykjavík. Hafsteinn hefur sungið í mörgum kórum, komið fram sem einsöngvari í útvarpi og sjónvarpi og var valinn einn af tíu (slendingum til að taka þátt í verkefninu Raddir Evrópu árið 2000. Síðastliðin fjögur ár hefur hann stundað nám við Söng- skólann í Reykjavík og hyggur á fram- haldsnám í list sinni í Þýskalandi í haust. Hafsteinn á ekki langt að sækja gáfur sínar því að langafi hans var tón- skáldið Oddgeir Kristjánsson sem um áratugi samdi þjóðhátíðarlög Vest- mannaeyinga. Hver þekkir til dæmis ekki „Ég veit þú kemur" eftir Oddgeir? Á fyrstu opinberu einsöngs- tónleikum sínum í vor flutti Hafsteinn meðal annars sönglög langafa slns. Einnig hefur hann starfað með tón- skáldinu Hreiðari Inga Þorsteinssyni og frumflutt mörg verka hans. Hafsteinn Þórólfsson Among the performers at the Gay Pride open air œnœrt 9 August is Hafsteinn Thórólfsson, who studied dassical singing in Reykjavík and is now heading for Germany this fall for graduate studies in music. Hafsteinn is a singer of unusually broad repertoire, induding dassicai music as well as popular light songs, many of them written by his great grandfather, one of lceland's most beloved composers, Oddgeir Kristjánsson, whose songs are frequently performed by this tal- ented young singer. 1996.

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.