Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.01.2006, Page 2

Bæjarins besta - 11.01.2006, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 20062 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi Gestur Ingvi Kristinsson Torfnesi, Hlíf 1, Ísafirði áður Hlíðarvegi 4, Suðureyri lést fimmtudaginn 5. janúar sl. Jarðsungið verður frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 14. janúar kl. 11:00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta Krabbameinsfélagið Sigurvon njóta þess. Sólveig Hulda Kristjánsdóttir Þuríður Kristín Heiðarsdóttir Páll Ólafsson Kristinn Gestsson Jóhanna Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir Óðinn Gestsson Pálína Pálsdóttir Gunnhildur Gestsdóttir Albert Högnason Jón Arnar Gestsson Sveinbjörn Yngvi Gestsson barnabörn og barnabarnabörn. Lögreglumenn á Ísafirði sinntu alls 4.179 verkefnum á nýliðnu ári og er um talsverða fækkun skráðra verkefna frá árinu 2004 að ræða, þegar verkefnin voru 5.290. Að sögn Önundar Jónssonar yfirlög- regluþjóns skýrist þessi fækk- un af nýju skráningarfyrir- komulagi sem hefur það í för með sér að lögreglumenn skrá ekki lengur inn hvert einasta viðvik. Kærumálum fækkar örlítið milli áranna 2004 og 2005, voru 819 á síðasta ári en 836 áður. Hraðakstur stendur í stað og voru alls 163 teknir í umdæm- inu hvort árið. Líkamsárásum fjölgar úr 24 árið 2004 í 38 í fyrra og segir Önundur að margar þeirra hafi verið framd- ar af sömu aðilum. Þá voru framin fimm innbrot í fyrra en sjö ári áður og þjófnaðarkær- um fjölgaði úr 26 í 36. Minna var um ölvunarakstur í fyrra en árið 2004 þegar 28 voru gripnir akandi undir áhrifum, en 21 var tekinn á síðasta ári. Tveir stútanna höfðu tekið bíl ófrjálsri hendi. Fimmtán sinnum stungu ökumenn af eftir umferðar- óhapp á síðasta ári, en átta sinnum árið 2004. Þá höfðu lögreglumenn sextán sinnum afskipti af áfengisneyslu ung- menna undir tvítugu árið 2004, en átján sinnum í fyrra. Ön- undur vill meina að ósamræmi sé í áfengislöggjöf hvað varðar aldurstakmark á vínveitinga- stöðum. „Það er út í hött að hleypa átján ára fólki inn á vínveitingastaði á meðan áfengiskaupaaldurinn er tutt- ugu ár. Þarna er öll ábyrgðin sett á veitingamanninn, sem þarf að biðja fólk um skilríki í hvert sinn sem það verslar áfengi. Ég hef líkt þessu við að hleypa fjórtán ára unglingi inn á mynd sem er bönnuð innan sextán ára, með því skil- yrði að hann haldi fyrir vinstra augað. Þessi regla er algerlega óvirk og mikil brotalöm í ís- lenskri áfengislöggjöf“, segir Önundur. Fíkniefnamálum sem komu til kasta lögreglu fækkaði gíf- urlega á milli ára. Árið 2004 voru fimmtán teknir með efni ætluð til eigin nota, en ein- ungis þrír í fyrra. Þá voru fimm meintir sölumenn fíkniefna teknir árið 2004, en fjórir í fyrra. Tveir voru teknir fyrir framleiðslu fíkniefna árið 2004 en einn í fyrra og önnur fíkniefnamál sem komu til kasta lögreglu voru fjögur talsins árið 2004, en ekkert á síðasta ári. Rétt er að geta þess að þar sem um mjög lágar tölur er að ræða, þarf augljóslega ekki mörg mál til að fíkni- efnamálum fjölgi eða fækki hlutfallslega mjög mikið. – halfdan@bb.is Ísfirskir lögreglumenn sinntu rúm- lega fjögur þúsund verkefnum í fyrra Fjölmenni var á nýársfagnaðinum sem tókst vel. Kiwanisklúbburinn Básar á Ísafirði hélt árlegan nýárs- fagnað eldri borgara á Hlíf, íbúðum aldraðra á sunnudag. „Þetta gekk mjög vel og við fengum um hundrað manns til okkar í veislu sem stóð til kl. rúmlega fimm“, sagði kiwanismaðurinn Kristján Sigurðsson. „Við fengum fjóra krakka út tónlistarskólanum til að spila fyrir okkur nokkur lög, og síðan spiluðu menn úr Harmonikkufélagi Vest- fjarða fyrir dansi í restina. Klúbburinn hefur haldið áramótafagnaðinn lengur en elstu menn muna. Hann nýtur mikilla vinsælda og á eftir að vera eitt af okkar verkefnum til frambúðar.“ Nýársfagnaður eldri borgara Hulduverur dönsuðu í kringum brennu. Þrettándanum fagnað á Ísafirði Ísfirðingar fylgdust með álfadansi á þrettándagleði á Eyrartúni á sunnudag „Þetta gekk vel og mér skilst á fólki að það hafi verið ánægt með þrettándagleðina. Hátt í áttatíu manns koma að gleðinni og ég vil koma þökkum til allra þátttakend- anna því það væri ekki hægt að framkvæma þetta ef fólk væri ekki svona jákvætt og tilbúið að taka þátt“, segir Anna Karen Kristjáns- dóttir, skipuleggjandi þrettánda- gleðinnar. Blysför hulduvera undir stjórn álfakonungs og álfadrottn- ingar fór frá skátaheimilinu að Eyrartúni þar sem dansað var í kringum brennu. Að því loknu var haldinn stórfengleg flugeldasýning við aðdáun bæjarbúa. Það er kven- félagið Hlíf sem hefur stjórn álfa- dansins með höndum og nýtur til þess aðstoðar félaga úr Skátahreyf- ingunni, ýmsum kórum, Harmo- nikkufélaginu, Litla leikklúbbnum og Björgunarfélaginu. Álfakóngur og drottning fylgdust með dansinum. 02.PM5 5.4.2017, 10:072

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.