Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.01.2006, Síða 8

Bæjarins besta - 11.01.2006, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 20068 Sælkeri vikunnar · Katrín Árnadóttir á Ísafirði Kjúklingasalat og sænskar kjötbollur Sælkeri vikunnar býður upp á tvo rétti sem eru í miklu uppáhaldi hjá henni. Annars vegar er dýrindis kjúklingasalat sem borið er fram með bragðgóðri sósu og Doristos flögum og hins vegar sænskar kjötbollur sem bragðast einstaklega vel með hrísgrjónum og salati. Báðir réttirnir eru einfaldir í matreiðslu og ljúffengir að borða. Dýrindis kjúklinga- salat frá Gunnu Jónu ½ poki furuhnetur 1 pakki kjúklingabringur 1 poki kál að eigin vali Rauðlaukur Tómatar- litlir og stórir Paprika Blá vínber 1 blá krukka fetaostur í olíu Ristið hneturnar á pönnu. Skerið kjúklingabringurnar í litla bita, steikið á pönnu og saltið og piprið. Setjið svo slatta af BBQ sósu yfir ( svona um 1 dl) þegar kjúklingurinn er orðinn hvítur og látið malla í nokkrar mínútur. Látið kólna. Búið til salat úr kálinu, fullt af tómötum, papriku, vínberj- um og fetaostinum. Geymið olíuna af ostinum. Sósa 3 msk balsamik edik 3 msk hlynsíróp Olían af fetaostinum 4 msk BBQ sósa 2 stór pressuð hvítlauksrif ¼ rauðlaukur smátt saxaður Ristuð sesamfræ (ef fólk vill) Berið fram með Doritos flögum eða þvíumlíku. Sænskar kjötbollur 500 g hakk ½ pakki ritz kex 1 bréf Toro lauksúpa 1 egg Hrærið súpuna í smá vatni. Myljið kexið og látið úti. Hrærið allt saman. Steikið í litlum kúlum upp úr mikilli olíu. Sósa 60 % rifsberjagel/sulta 40 % 2 msk sojasósa ½ dl appelsínu djúsþykkni Blandið öllum hráefnunum saman og berið fram með hrísgrjónum og salati. Ég skora á Halldóru Kristjánsdóttur í Bolungar- vík til að verða næsti sælkeri vikunnar. Skíðasvæði Ísfirðinga Breytingar á gjaldskrá Nokkrar breytingar verða á gjaldskrá skíðasvæðis Ís- firðinga ef svo fer fram sem horfir. Tillögur til nýrrar gjaldskrá voru lagðar fram og samþykktar á fundi íþrótta- og tómstundanefnd- ar fyrir stuttu. Fela þær með- al annars í sér að gjald fyrir dagskort fullorðinna lækkar úr 1.365 krónum í 1.100 krónur á virkum dögum, en hækkar þess í stað upp í 1.400 krónur um helgar. Að sama skapi lækka dagskort barna úr 525 krónum í 500 krónur á virkum dögum, en hækka upp í 700 krónur um helgar. Þá mun gjald fyrir vetrar- kort lækka, úr 15.110 í 15.000 fyrir fullorðna og úr 8.140 í 7.500 krónur fyrir börn. Lagður er til 20% af- sláttur af gjaldi kortanna, séu þau keypt áður en 30 dagar eru liðnir frá opnun svæðisins. Þá er lagt til að tveggja daga helgarkort kosti 2.200 krónur fyrir full- orðna, en 1.100 krónur fyrir börn. Einnig er lagt til að boðið verði upp á 7 daga skíðavikukort sem kosta 5.000 fyrir fullorðna, en 2.500 fyrir börn. Í fyrra kost- uðu sömu kort 5.775/2.310 krónur. – halfdan@bb.is Áhöfn Júlíusar Geirmundssonar ÍS-270 Verðlaunuð fyr- ir vöruvöndun Á árlegum markaðsfundi Icelandic Group þann 28. desember afhenti Magni Þór Geirsson framkvæmdastjóri Icelandic UK áhöfn Júlíusar Geirmundssonar ÍS 270 sér- stakan viðurkenningarskjöld fyrir framúrskarandi vöru- vöndun á árinu 2005. Þetta kemur fram á heimasíðu Hraðfrystihússins – Gunn- varar sem gerir út Júlíus. Áhöfn skipsins var sú eina sem fékk viðurkenningu þetta árið frá Icelandic UK, en valið var byggt á gæða- skoðunum SH-þjónustu á afurðum skipsins, auk þess er einnig tekið tillit til um- sagnar kaupenda á markaðn- um og hlutfall framleiðslu fyrir Bretland. Icelandic UK er sölu- og markaðsfyrirtæki SH í Bret- landi sem sér meðal annars um sölu sjófrystra afurða þar í landi. Bretland er einn mik- ilvægasti markaður fyrir sjó- frystar þorsk- og ýsuafurðir frá Íslandi og því mikil hvatning fyrir áhöfn og út- gerð Júlíusar sem byggir mikið á þeim tegundum. Með verðlaununum fylgdi ferð fyrir tvo áhafnarmeð- limi á leik í ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu. Þess má geta að áhöfnin fékk samskonar verðlaun árið 2003. – halfdan@bb.is Júlíus Geirmundsson ÍS. Samantekt Hagstofunnar fyrir árin 1994 til 2004 Ríflega tvöfalt fleiri fædd- ust á Vestfjörðum en létust Á tímabilinu 1994-2004 fæddust 1.426 börn á Vest- fjörðum, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. 766 fæddust á Ísafirði, 197 í Vesturbyggð, 157 í Bolungarvík, 81 á Hólma- vík, 72 á Tálknafirði, 54 í Súðavík, 38 á Reykhólum, 23 í Kaldrananeshreppi, 22 í Bæj- arhreppi, 11 í Broddanes- hreppi og 5 í Árneshreppi. Árið 1994 var sérstaklega mikið um fæðingar en þá fæddust alls 198 börn. Fæstar voru fæðingar árið 2003, en þá fæddust 96 börn. 652 manns létust á Vestfjörðum á árabil- inu 1994-2004 og létust flestir árið 1995, eða 98 manns. Ríf- lega helmingur þeirra sem lét- ust á þessum tíu árum voru karlmenn, eða 381 á móti 271 konu. Eins og kunnugt er hefur verið nokkuð um brottflutning af Vestfjörðum á þessu tíma- bili og segja tölur um fæðingar og andlát því ekki nema lítið brot af sögunni hvað varðar þróun íbúafjölda. Við upphaf þessa tímabils voru 1.139 manns í Bolungar- vík, en 935 árið 2004. Í þeim sveitarfélögum sem síðar sam- einuðust í Ísafjarðarbæ bjuggu árið 1994 4.850 manns, en árið 2004 bjuggu 4.133 manns í Ísafjarðarbæ. Í Reykhóla- hreppi bjuggu 257 manns árið 1994 en 353 manns árið 2004. Í Tálknafjarðarhreppi bjuggu 326 manns árið 1994 en 345 manns árið 2004. Í sveitarfé- lögunum sem síðar samein- uðust í Súðavíkurhrepp bjuggu 304 árið 1994, en árið 2004 235. Í Vesturbyggð bjuggu 1.390 manns árið 1994 en 1.017 manns árið 2004. Samkvæmt bráðabirgðatöl- um frá Fiskistofu var mestum þorskafla á Vestfjörðum árið 2005 landað í Bolungarvík eða 7.733 tonnum. Á Flateyri var næst mestum þorskafla landað eða 5.422 tonnum, 4.580 tonnum á Ísafirði, á Patreks- firði 3.174 tonnum, á Suður- eyri 1.872 tonnum, 1.735 tonn- um á Tálknafirði, 806 tonnum á Drangsnesi, 609 tonnum á Þingeyri, 608 tonnum á Hólmavík og 419 tonnum á Bíldudal. Mestum ýsuafla var landað á Ísafirði eða 2.975 tonnum, en næst mestum ýsu- afla var landað í Bolungarvík, eða 2.744 tonnum. Þá var 1.412 tonnum af ýsu landað á Suðureyri, 1.386 tonnum á Flateyri, 867 tonnum á Patr- eksfirði, 800 tonnum sléttum á Drangsnesi, 508 tonnum á Tálknafirði, 371 tonni á Þing- eyri, 293 tonnum á Hólmavík og 249 tonnum á Bíldudal. Hvergi var landað loðnu nema í Bolungarvík, 2.533 tonnum. Mestum rækjuafla var landað í Súðavík eða 615 tonnum, á Bíldudal var landað 319 tonnum af rækju, á Þing- eyri var landað 121 tonni, á Ísafirði 111 tonnum, á Hólma- vík 49 tonnum og 42 tonnum í Bolungarvík. Mestum stein- bítsafla var landað á Flateyri, eða 1.110 tonnum. Á Ísafirði var landað 1.034 tonnum, á Patreksfirði 767 tonnum, í Bolungarvík 734 tonnum, á Tálknafirði 607 tonnum, á Suðureyri 595 tonnum, á Þingeyri 304 tonnum, á Bíldu- dal 214 tonnum, 30 tonn á Drangsnesi, 12 tonn á Hólma- vík og 11 tonn í Súðavík. Mest landað af þorski í Bolungarvík árið 2005 Mest var landað af þorski í Bolungarvík árið 2005. 02.PM5 5.4.2017, 10:078

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.