Bæjarins besta - 11.01.2006, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 9
„Allir gerðu það rétta“
Sigríður Guðjónsdóttir er fimmti Vestfirðing-
ur ársins og fyrsta konan til að hampa titlinum.
Sigríður er Ísfirðingur í húð og hár. Hún er
íþróttafræðingur að mennt og útskrifaðist í vor.
Auk þess að þjálfa tvo flokka í körfubolta hjá
Ungmennafélagi Bolungarvíkur sinnir hún
leikfimi- og sundkennslu í Bolungarvík. Þar fékk
hún tækifæri til að sýna hvað í henni býr þegar
drengur sem var í sundtíma í sjötta bekk var
nærri drukknaður í desember. Eins og kunnugt
er fór allt farsællega, þökk sé skjótum viðbrögð-
um Sigríðar. Bæjarins besta ræddi við hinn
nýkjörna Vestfirðing ársins 2005.
– Til hamingju! Hvernig til-
finning er það að vera valinn
Vestfirðingur ársins 2005 með
yfir 22% greiddra atkvæða í
kosningu þar sem á fjórða
hundrað manns tóku þátt?
„Það er mikill heiður en
mjög skrítin tilfinning. Ég er
ekki alveg búin að átta mig á
því ennþá.“
– Í þokkabót ertu fyrsta kon-
an sem verður fyrir valinu,
hvað finnst þér um það?
„Það er auðvitað mjög mik-
ill heiður. En mér finnst ég
ekkert eiga þennan heiður
meira skilið en starfsfólkið í
sundlauginni í Bolungarvík
sem brást alveg hárrétt við
undir þessum kringumstæð-
um. Allt gekk eins vel fyrir
sig og hægt var og allir gerðu
það rétta. Þegar ég hafði náð
drengnum upp úr sagði ég hin-
um börnunum að ná í starfs-
fólkið sem var frammi. Þau
gerðu það og allir voru komnir
á sinn stað svipstundu seinna.“
– Hvernig varð þér við þegar
þér voru færð þau tíðindi að
þú hefðir verið kosinn Vest-
firðingur ársins af lesendum
bb.is?
„Það kom mér mjög á óvart.
Ég bjóst alls ekki við þessu og
ég vil bara þakka þeim sem
kusu mig. Ég er eiginlega hálf-
feimin við þetta allt saman en
mjög þakklát.“
„Kennslan á
mjög vel við mig“
– Þú ert nýútskrifaður íþrótt-
afræðingur, var það alltaf ætl-
unin að feta þessa braut?
„Nei, á tímabili vissi ég ekk-
ert hvað mig langaði til að
gera og tók mér fjögurra ára
frí frá námi eftir stúdentspróf.
Þá prófaði ég ýmislegt eins og
að búa fyrir sunnan og að fara
sem au-pair í eitt ár til Brussel
í Belgíu, og eftir það var ég
komin með útþráarbakteríuna,
kom heim, vann í smá tíma og
fór svo til Frakklands að vinna
á kaffihúsi.
Svo fékk ég tækifæri til að
kenna leikfimi einn vetur við
Grunnskólann á Ísafirði. Þá
fann ég strax að það vildi ég
gera. Kennslan á mjög vel við
mig og mér finnst þetta mjög
skemmtilegt. Svo ég skellti
mér í íþróttafræði í Kennarahá-
skóla Íslands og var á Laugar-
vatni í þrjú ár.“
– Svo komst þú beint heim
til Ísafjarðar eftir útskriftina
og fórst að kenna í Bolungar-
vík. Er ætlunin að vera fyrir
vestan til frambúðar?
„Ég veit það ekki enn, ætl-
unin var að koma vestur í eitt
eða tvö ár og sjá svo til. En
mér líður mjög vel hérna og
ég býst ekki við að fara neitt
alveg strax allavega. Mér
finnst mjög gaman að kenna í
Bolungarvík og keyri daglega
á milli staða þar sem ég bý á
Ísafirði.“
Allir ættu að
læra skyndihjálp
– Þú sýndir mikið snarræði
við björgun drengsins þegar
þú beittir blástursaðferðinni.
Var það eitthvað sem þú lærðir
í Íþróttaháskólanum á Laugar-
vatni?
„Já, við þurftum að taka einn
áfanga um skyndishjálp og
björgun. Mér finnst að allir
ættu að læra skyndihjálp. Mað-
ur veit aldrei hvenær maður
gæti komið að slysi og þá getur
það verið spurning um að
bjarga mannslífi hvort maður
kunni réttu tökin. Í raun ætti
að bjóða upp á ókeypis nám-
skeið í skyndihjálp sem allir
þyrftu að sækja fyrir vissan
aldur. En maður þarf svo að
fara reglulega aftur á námskeið
til að halda þekkingunni við.
Í sundlauginni í Bolungar-
vík þá hugsaði ég varla út í
það og byrjaði strax að blása í
drenginn. Það voru eins og
ósjálfráð viðbrögð.“
– Varstu ekkert hrædd?
„Nei, það var eins og ein-
hver ró færðist yfir mig og ég
gerði bara það sem þurfti til.
Það var eins og eitthvað æðra
vekti yfir mér og sæi til þess
að ég gerði það sem þurfti að
gera. Sjokkið kom ekki fyrr
en eftir á þegar sjúkraflutn-
ingamennirnir og læknirinn
voru farnir með drenginn. Þá
kom rosalegt sjokk og maður
áttaði sig á hvað hefði í raun
og veru gerst. Sem betur fer
voru allir starfsmenn með sína
hluti á hreinu og gerðu það
sem átti að gera,“ segir Sig-
ríður Guðjónsdóttir nýkjörinn
Vestfirðingur ársins.
– thelma@bb.is
Magnús Ólafs Hansson
hefur verið skipaður fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðis-
stofnunar Bolungarvíkur til
eins árs í stað Ólafs Kristjáns-
sonar. Tveir bæjarfulltrúar í
Bolungarvík létu bóka undrun
sína á því að staðan skyldi
ekki hafa verið auglýst opin-
berlega, en það voru þær Soff-
ía Vagnsdóttir, fulltrúi Bæjar-
málafélagsins, og Ragna Jó-
hanna Magnúsdóttir Sjálf-
stæðisflokki.
„Við lýstum yfir óánægju
með að staðan skyldi ekki aug-
lýst“, segir Soffía. „Mín gagn-
rýni er ekki á Magnús heldur
vinnubrögð við ráðningu hans.
Það er óásættanlegt að opin-
bert starf skuli ekki vera aug-
lýst, Heilbrigðisstofnunin er
ekki einkastofnun og á að aug-
lýsa sín störf. Þá varð ég líka
fyrir vonbrigðum með að ein-
ungis skyldi skipað til eins árs
í stað þess að festa stöðuna í
sessi og skipa í hana til lang-
frama.“
Magnús Ólafs Hansson er
húsgagnasmiður og hefur
starfað við matvælafram-
leiðslu í Bolungarvík, en hann
er ættaður af Ströndum. Heil-
brigðisráðherra skipaði í stöð-
una fyrir stuttu og hóf Magnús
Ólafs störf nú um áramót. Starf
framkvæmdastjóra Heilbrigð-
isstofnunar er þriggja ára gam-
alt og gegndi Ólafur Krist-
jánsson því frá því að hann lét
af embætti bæjarstjóra í Bol-
ungarvík. Þar áður var starfinu
sinnt af bæjarskrifstofu. Um
75% stöðu er að ræða.
Heilbrigðisstofnun Bolungarvíkur
Framkvæmdastjóri skip-
aður án auglýsingar
Hafnarbúðin
Hafnarhúsinu við Suðurgötu · sími 456 3245
Útsalan hefst
á morgun,
fimmtudaginn
12. janúar
02.PM5 5.4.2017, 10:079