Bæjarins besta - 03.03.2004, Page 1
Leitaði
vitneskju
um síðustu
daga föður
síns
– sjá viðtal í miðopnu við Guðjón
Bjarnason rafvirkja á Ísafirði
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 250 m/vsk
Miðvikudagur 3. mars 2004 · 9. tbl. · 21. árg.
Ísfirsk einingarhús frá Ágústi og Flosa ehf. á Ísafirði
Viðbrögð í Reykjavík lofa góðu
Björgmundur Guðmunds-
son, byggingartæknifræðingur
og einn eigenda verktakafyr-
irtækisins Ágústar og Flosa á
Ísafirði, segir viðbrögð við fyr-
irhuguðum tvíbýlisraðhúsum
fyrirtækisins við Lækjarvað í
Reykjavík lofa góðu. Húsin
verða byggð úr einingum frá
verksmiðju Ágústar og Flosa
á Ísafirði og er kynning á þeim
nýhafin hjá fasteignasölunni
Fasteignakaupum í Reykjavík.
Alls verða byggð 14 hús við
Lækjarvað, í hinu nýja hverfi
Norðlingaholti, með samtals
28 íbúðum.
„Við ætlum að byrja að
steypa grunnana í þessari viku
og stefnum á að setja upp
fyrstu húsin, úr þeim einingum
sem við eigum klárar, í mars.
Markmiðið er að geta afhent
fyrstu íbúðina 1. maí“, segir
Björgmundur. Steypuvinnan
er unnin af undirverktaka í
Reykjavík en starfsmenn
Ágústar og Flosa munu sjá
um uppsetningu eininganna.
Starfsmönnun mælingar-
deildar borgarverkfræðings
var heldur brugðið þegar þeir
á mættu á byggingarsvæðið
og fundu u.þ.b 100 fermetra
hesthús á lóðinni. Björgmund-
ur segir húsið autt en ekki sé
vitað hver eigi það. „Það er
verið að grafast fyrir um málið
innan borgarkerfisins. Þetta
mun ekki trufla okkur því hús-
ið er alveg úti á endimörkum
lóðarinnar en við vorum að
gantast með að það gæti þótt
flott að búa í raðhúsalengju
með hesthúsi á endanum“,
sagði Björgmundur.
Hönnun húsanna var í hönd-
um Hallvarðar Aspelund, arki-
tekts hjá Tækniþjónustu Vest-
fjarða. – kristinn@bb.is
Tölvuteikning af fyrirhuguðum tvíbýlisraðhúsum við Lækj-
arvað.
Margir at-
vinnulausir
Félag lögfræðinga á Vest-
fjörðum hefur áhyggjur af
niðurskurði fjárveitinga til
Héraðsdóms Vestfjarða og
segir að muni auka álag á
dómara og koma til með að
tefja afgreiðslu mála. Í
ályktun sem samþykkt var
í síðustu viku segja lög-
fræðingarnir að vegna
niðurskurðarins verði að
leggja niður stöðu aðstoð-
armanns héraðsdómara
eða starf annars af tveimur
löglærðum starfsmönnum
dómsins. Í bréfi til dóms-
málaráðherra skora lög-
fræðingarnir á stjórnvöld
að beita sér fyrir nægjan-
legum fjárveitingum til að
tryggja trausta og greiða
meðferð mála við dóminn.
Atvinnuleysi á Vestfjörð-
um í janúar var það mesta
frá því í janúar 1997. Þetta
kemur fram í nýútkominni
skýrslu Vinnumálastofn-
unar um atvinnuleysi í jan-
úar mánuði. Þar kemur
fram að 3,2 % vinnuafls á
Vestfjörðum hafi verið án
atvinnu. Samkvæmt tölum
Vinnumálastofnunar um
atvinnuleysi í janúar mán-
uði undanfarinna ára þarf
að fara aftur til 1997 til
þess að finna sambærilegt
atvinnuleysi. Þá var 3,5 %
vinnuafls á Vestfjörðum án
atvinnu. Í tölum Vinnu-
málastofnunar kemur
einnig fram að mun meira
atvinnuleysi er meðal
kvenna en karla. Um 4,8
% kvenna eru án atvinnu í
janúar og þarf að fara aft-
ur til ársins 1995 til þess að
finna sambærilegt atvinnu-
leysi. Um 2,1% karla voru
án atvinnu í janúar en í
janúar í fyrra voru 2,2%
karla án atvinnu. – hj@bb.is
Hafa áhyggjur
af niðurskurði
09.PM5 12.4.2017, 09:331