Bæjarins besta - 03.03.2004, Síða 16
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 250 m/vsk
www.bb.is – daglegar fréttir á netinu
Norðurljós yfir Ósvör í Bolungvarvík. Myndir: Eric Chrétien.
Ósvör í Bolungarvík prýði
neðanjarðarlestirnar í París
Myndir af norðurljósagliti
yfir Ósvör í Bolungarvík munu
prýða neðanjarðarlestarstöðv-
ar í París í vor og sumar að
sögn Geirs Guðmundssonar,
safnvarðar í Ósvör. „Frakkinn
Eric Chrétien frá ljósmynda-
stofunni Gamma í París er höf-
undur myndanna en hann kom
í Ósvör í sumar til að kynna
sér aðstæður. Honum leist vel
á og kom hingað aftur í haust
til að taka myndirnar. Allt í
allt dvaldi hann tvo mánuði
hér fyrir vestan“,segir Geir.
Myndirnar verða settar á plak-
öt sem verða til sýnis á lestar-
stöðvunum og verða gefnar út
á póstkorti. Að auki munu þær
birtast í ljósmyndabók um
náttúrufyrirbæri.
Geir á von á að myndirnar
hafi mikið auglýsingagildi fyr-
ir Ósvör og Vestfirði alla.
„Þetta er sett upp sem ljós-
myndasýning en er um leið
ferðakynning fyrir okkur. Það
fer ekkert á milli mála hvar
myndirnar voru teknar enda
birtast þær með áletruninni
Norðurljós, Ósvör, Bolungar-
vík, Ísland.“
Aðspurður um hvort hann
telji að safnið eigi eftir að fá
heimsóknir sérstaklega út af
myndunum segist Geir ekki
vera í vafa. Hann fái iðulega
til sín gesti sem hafi séð mynd-
ir af Ósvör í tímaritum eða
sjónvarpi og heillast af.
„Hingað kemur alltaf mikið
af Frökkum enda er safnið
mjög þekkt þar, t.d. kom það
fyrir í kvikmynd sem var sýnd
þar í landi fyrir nokkrum árum.
Hingað koma oft ferðamenn
sem benda og segjast hafa séð
mig áður.“
Geir segist viss um að er-
lendir sé Ósvör hvað þekktast
af íslenskum söfnum. „Myndir
frá Ósvör eru mikið notaðar
þegar verið er að kynna Ísland
og það skilar sér fyrir ferða-
mennskum á Vestfjörðum öll-
um enda kemur yfirleitt fram í
hvaða landshluta safnið er. Í
einni grein um Ísland voru t.d.
tvær línur um Björk en heil
opna um Ósvör“, sagði Geir.
Stúlkur í
meirihluta
Stúlkur eru nú í meirihluta
meðal nemenda grunn-
skóla á Vestfjörðum sem er
töluverð breyting frá árinu
1997. Í dag eru stúlkur
50.6% af nemendum
grunnskóla á Vestfjörðum
en voru 49.1% árið 1997.
Hæst er hlutfall stúlkna í
7.bekk eða 61,5 % en lægst
í 10.bekk 45.1%. Þetta er
nokkuð önnur þróun en
annarsstaðar á landinu því
árið 1997 voru stúlkur
48.5% af nemendum og í
dag er hlutfall þeirra nán-
ast það sama. –hj@bb.is
Lárus Mikael Knudsen Daníelsson.
Lárus sigraði
Lárus Mikael Knudsen
Daníelsson frá Ísafirði
sigraði Tómas Guðmunds-
son frá Grindavík í viður-
eign þeirra á fyrsta hnefa-
leikamóti ársins sem haldið
var í húsi hnefaleikafélags
Reykjavíkur fyrir stuttu.
Lárus fór suður við annan
mann, Högna Marsellíus
Þórðarson, sem tapaði fyr-
ir Gunnari Óla Guðjóns-
syni frá Reykjavík. Mótið
þótti takast vel og var sótt
af um 200 áhorfendum.
Einna mesta athygli vakti
bardagi Lárusar og Tóm-
asar. Lárus sigraði allar
þrjár loturnar og þótti
gríðarlega höggþungur.
Lárus segist mjög ánægður
með árangurinn og er þeg-
ar farinn á fullt að undir-
búa næsta mót sem verður
í Keflavík. – kristinn@bb.is
Ísklifrari með Skutulsfjörð í baksýn.
Ísklifurfestival Íslenska alpaklúbbsins á Ísafirði
Ánægðir ísklifrarar
Ísklifurfestival Íslenska
alpaklúbbsins sem haldið var
á Ísafirði fyrir stuttu tókst með
ágætum og létu menn vel af
aðstæðum að sögn Rúnars Óla
Karlssonar, ísklifursáhuga-
manns. Til stóð að halda festi-
valið í Öræfasveit en vegna
klakaskorts var það flutt vest-
ur. „Menn voru mjög ánægðir
með hvernig til tókst og vilja
stoppa lengur næst. Nokkrir í
hópnum höfðu aldrei komið
til Vestfjarða áður og sáu að
um er að ræða ókannað lands-
svæði fyrir ísklifur og margt
fleira“, segir Rúnar Óli.
Klifrararnir reyndu fyrir sér
í Naustahvilt, á Seljalandsdal
í Skutulsfirði og á Óshlíð. Því
þurfti ekki að fara langar leiðir
frá Ísafirði sem þótti afar hent-
ugt. Annar ísfirskur ísklifur-
áhugamaður, Eiríkur Gíslason,
segir frá ísklifurfestivalinu í
máli og myndum á heimasíðu
klúbbsins. – kristinn@bb.is
Hörður Sævar Harðarson og Rúnar Óli Karlsson klífa í
Naustahvilft. Myndir: Eiríkur Gíslason.
Skriða lokaði
Óshlíðarvegi
Vegurinn um Óshlíð lokað-
ist á sunnudagskvöld þegar
skriða féll á hann við
Hvanngjá ytri. Jón Baldvin
Jóhannesson, hjá Vega-
gerðinni á Ísafirði, segir að
tilkynning hafi borist um
ellefuleytið um kvöldið og
strax hafi verið farið til að
ryðja veginn. Hann segir
að ekki hafi verið um aur-
skriðu að ræða heldur hafi
grjót hrunið úr hlíðinni og
þau stærstu vegið á bilinu
18-20 tonn. Aðspurður seg-
ist Jón Baldvin ekki telja
að sérstök hætta sé á skriðu-
föllum nú. – kristinn@bb.is
09.PM5 12.4.2017, 09:3316