Bæjarins besta - 28.05.2003, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 7Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Nýi vegurinn yfir Ósinn í Bolungarvík
Verklok væntanlega
á undan áætlun
Vinna við lagningu nýja
vegarins yfir Ósinn í Bolung-
arvík er hafin á ný eftir vetr-
arfrí. Hólsvélar ehf. í Bol-
ungarvík annast verkið og
segir Örnólfur Guðmunds-
son framkvæmdastjóri að
líklega verði verklok á undan
áætlun.
„Ég á að skila verkinu af
mér 15. september en mér sýn-
ist að það verði eitthvað fyrr.
Þetta hefur gengið nokkuð vel,
alveg stórslysalaust. Næst á
dagskrá er að færa ljósastaura
og ráðast í ýmiskonar frágang,
ganga frá fyllingum í veginn
og leggja neðra og efra burðar-
lag. Þá geri ég ráð fyrir því að
slitlag verði sett á veginn í
júlí. Hvenær vegurinn verður
opnaður veit ég ekki enda er
það Vegagerðarinnar að
ákveða það.“ Frá framkvæmdum við nýja veginn.
Stærsti verksamningur hjá Póls hf. á þessu ári
Annast smíði og uppsetningu tækja-
búnaðar í Júlíus Geirmundsson ÍS
Vestfirsku fyrirtækin Póls
hf. og Hraðfrystihúsið-
Gunnvör hf. hafa gert
samning um smíði á nýju
flokkunarkerfi og snyrtilínu í
frystitogarann Júlíus
Geirmundsson ÍS 270.
Samningurinn er sá stærsti
sem Póls hf. hefur gert á
þessu ári. Hörður Ingólfsson
hjá Póls hf. segir það
fagnaðarefni að H-G skuli
hafa valið fyrirtækið til að
annast þetta verkefni.
„Það er gaman að upplifa
það að allt sem til þarf, alla
þekkingu, sé hægt að fá hér
á svæðinu. Við vinnum þetta
verkefni í samstarfi við
nokkra undirverktaka hér á
Ísafirði, meðal annars 3X-
Stál sem hefur náð góðum
árangri í smíði á snyrti-
línum“, segir Hörður.
Auk þess sem samningur-
inn felur í sér smíði og
uppsetningu á nýju flokk-
unarkerfi og nýrri snyrtilínu
verður flutningskerfi
endurskipulagt og endur-
nýjað að stórum hluta.
„Smíði í togarann er þegar
hafin. Allt er forsmíðað áður
og verður sett upp þegar
skipið fer í slipp um eða upp
úr miðjum júlí“, sagði
Hörður Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri Póls í samtali
við blaðið.Júlíus Geirmundsson ÍS 270.
21.PM5 18.4.2017, 11:067