Vinnan


Vinnan - 01.10.1946, Qupperneq 6

Vinnan - 01.10.1946, Qupperneq 6
/ ——-----------------------N AF ALÞJÓÐAVETTVANGI __________________________/ Hinn 20. sept. kom framkvæmdanefnd Alþjóða- sambands verkalýðsfélaganna saman á fund í Washington, réttu ári síðar en fulltrúar frá 69 löndum komu saman í París til að mynda samtök er væru þess megnug að leysa þau vandamál, er biðu úrlausnar verkalýðsins um heim allan. Framkvæmdanefndin mun á þessum fundi sín- um athuga árangra liðins starfsárs, baráttuna gegn Franco-Spáni, kröfurnar um að Alþjóðasamband- ið verði fullgildur aðili í Bandalagi hinna sam- einuðu þjóða, útrýmingu nazismans í Þýzkalandi og önnur þau mál er það hefur aðallega látið sig varða á þessu ári. Gert er ráð fyrir, að ástandið í Iran, Grikklandi og Kína verði tekið til umræðu á fundinum. — Louis Saillant, aðalritari Alþjóðasambandsins, ferðaðist um Iran í sumar og telur hann ástand og lífskjör verkalýðsins þar með öllu óviðunandi. Leon Jouhaux mun skýra frá ferð sinni um Grikk- land og þeim ofsóknum, er verkalýðshreyfingin þar sætir af hendi afturhaldsins, og hann var sjálfur vitni að. Kæra hefur borizt frá kínverska verkalýðssam- bandinu urn að Kuomintangstjórnin hafi látið fangelsa foringja þess og gert eignir þess upp- tækar. í Alþjóðasambandinu eru nú að heita má öll verklýðssambönd heimsins, að undanteknu A.F.L. sem ennþá heldur fast í einangrunarafstöðu sína. Tveir þeirra manna, er hátt bar við stofnun Alþjóðasambandsins, sitja ekki þennan fund, þeir Sidney Hillman, hinn glæsilegi foringi C. I. O., er lézt í júlí s.I. og brezki verkalýðsforinginn Walter Citrine, barón, sem tekið hefur við stjórn- arstörfum í hinum þjóðnýttu kolanámum Bret- lands. (Eftir A. L. N.) Brezka verkalýðssambandið hefur hafið baráttu gegn framkvæmd stjórnarinnar á lögunum um styrk til barnafjölskyldna. Lögunum er ætlað að veita fátæku barnafólki aðstoð til að ala börn sín upp á sómasamlegan hátt. En framkvæmdin er þannig, að fólk, sem nýtur sjúkra-, atvinnuleysis- eða annarra styrkja, fær ekki barnastyrkinn nema að litlu leyti. Fram- kvæmdin er því sú, að þeir sem komast það vel af að þurfa ekki opinberrar aðstoðar, fá fullan barnastyrk, en hinir, sem verst eru settir en mesta hafa þörfina fyrir hann, fá lítið eða ekkert. -K Verkamenn í stáliðnaði Kanada hafa einróma hafnað málamiðlunartillögu ríkisstjórnarinnar um 12 og hálfs cents kauphækkun á klukkustund. Verkamennirnir, sem upprunalega kröfðust 19 og hálfs cents hækkunar á klst., hafa tjáð sig geta fallist á 15i/£ cents hækkun, en minna ekki. + Hafnarverkamenn í London hafa um langan tíma barizt fyrir því að fá það samningbundið, að allir hafnarverkamenn skyldu vera félags- bundnir í sama félagi, Transport and General Workers Union. Með samningi við London Pass- enger Transport Board um mánaðamótin ágúst —sept. fengu þeir þessari kröfu sinni framgengt. Útlit er fyrir verkfall sænskra bankastarfs- manna. Samningar hafa nú staðið um 6 mánaða tíma um kröfur þeirra um fullar bætur vegna aukinnar dýrtíðar, styttri vinnutíma og rétt til að vera skipulagðir í sínu stéttarfélagi. Atvinnurek- endur vilja ekki fallast á að starfsmenn í hæstu launaflokkum séu í stéttarfélaginu. Félagssam- tök bankamanna telja 7400 meðlimi. + Mikil óánægja ríkir nú meðal járnbrautar- verkamanna á brezka hernámssvæðinu í Þýzka- landi yfir því að gamall nazisti, Fritz Busch, hefur verið skipaður framkvæmdastjóri járnbrautanna. Frá þingi sænska landssambandsins Laugardaginn 7. september 1946 kl. 3 e. h. var 13. allsherjarþing sænska landssambandsins sett í Konsertliuset í Stokkhólmi. Til þings voru mættir um 300 fulltrúar frá hinum ýmsu fagsamböndum. Þá sat þingið geysilegur fjöldi gesta, innlendra og erlendra. Meðal hinna innlendu má nefna full- 272 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.