Vinnan - 01.10.1946, Page 7
GUÐMUNDU'R VIGFÚSSON:
Verkefni og viðhorf
Þegar Vinnan kemur að þessu sinni fyrir al-
menningssjónir mun fulltrúakosningum til 19.
þings Alþýðusambands Islands verða hvarvetna
lokið. Eins og oft áður hefur nokkurt kapp verið
í kosningu þingfulltrúanna og henni fylgt af at-
hygli og áhuga langt út fyrir raðir verkalýðshreyf-
ingarinnar. Þetta sýnir hve ljóst öllum landslýð
er orðið, að skipan verkalýðsmálanna hefur mik-
ið að segja um þá þróun og stefnu, sem ráðandi er
í landinu á hverjum tíma.
Hér skal engu spáð um skipan 19. þingsins, en
óþarfi er að draga á það nokkra dul, að sterkar
líkur benda til þess að stefna hinnar stéttarlegu
einingar, sem sameiningarmenn hafa barizt fyrir
og borið uppi á undanförnum árum, eigi öruggu
og vaxandi fylgi að fagna innan verkalýðsfélag-
anna um allt land. Reynsla undanfarandi ára lief-
ur kennt verkalýðsstéttinni að skilja og meta yfir-
burði stéttarlegs samstarfs og bróðurhugs. Og ef
til vill hefur verkalýðsstéttinni, og reyndar þjóð-
inni allri, aldrei verið nauðsynlegra en einmitt
nú, að hafa á að skipa einhuga og samhentri
verkalýðshreyfingu, byggðri upp á fullkomnum
jafnréttis- og lýðræðisgrunrvelli. Alþýðusamband
trúa frá ríkisstjórninni, sósíaldemókrataflokkn-
um, sósíaldemókratíska kvennasambandinu, sam-
bandi ungra sósíaldemókrata, samvinnufélaga-
sambandinu og kvikmyndasambandinu Films.
Hinir erlendu gestir voru fulltrúar Alþjóðasam-
bands verkalýðsins, alþjóðlegu verkamálaskrif-
stofunnar og alþýðusambanda: Danmerkur, Nor-
egs, Finnlands, íslands, Ameríku, Belgíu, Eng-
lands, Frakklands, Hollands, Luxemburg, Pól-
lands, Sviss, Ráðstjórnarríkjanna, Tékkóslóvakíu,
Ungverjalands og Austurríkis.
Þingsetning fór fram með mikilli viðhöfn. Með-
an fulltrúar og gestir gengu til sæta, var leikinn
einleikur á orgel, síðan lék fjölmenn hljómsveit
úr sænska hljómlistarsambandinu, karlakór verka-
manna í Stokkhólmi söng nokkur lög, flutt var
hátíðakantata helguð sambandinu, og loks reis
þingheimur úr sætum og söng Internationalinn.
Þá steig forseti landssambandsins, August Lind-
berg, í ræðustólinn og minntist þeirra trúnaðar-
manna sænsku verkalýðshreyfingarinnar, er hnig-
ið höfðu í valinn frá því er síðasta þing var háð,
bauð gesti velkomna og kynnti þá, en síðan flutti
hann langa yfirlitsræðu um starfsemi sambands-
ins milli þinga. Er hann hafði lokið máli sínu, gaf
hann gestunum orðið, og tóku ræður þeirra þann
dag allan og fyrri hluta næsta dags. Þá hófust hin
eiginlegu þingstörf og stóðu alla næstu viku.
VINNAN
Það er ljóst af framanskráðu, að þess er enginn
kostur í þessari örstuttu greinargerð, að skýra frá
efni þessarar ræðna né lieldur þeim málum, er
rædd voru á þinginu. En ég vænti þess, að „Vinn-
an‘“ geti síðar flutt lesendum sínum megininntak
þess, svo að íslenzkur verkalýður geti fært sér í
nyt hina margháttuðu, mikilsverðu og dýrkeyptu
reynslu, er verkalýðshreyfing annarra landa hefur
öðlazt á hinum síðustu árum.
Gestrisni Svía var með fádæmum. Er hægt að
tala um of mikla gestrisni? Illviljaður maður gæti
með nokkrum rétti sagt, að við hefðum ekki feng-
ið að hreyfa okkur nema í fylgd einhvers úr
„flokknum". Þeir báru okkur á höndum sér, svo
að við komum aldrei til jarðar. Dagarnir hófust
með dýrðlegum veizlum, síðan liófust ferðalög á
fagra og merka staði, og að ferðalokum var setzt
að hlöðnum borðum á Hasselbacken, Berns sal-
onger eða í gullna sal Ráðhússins. Að miðnætti
háttuðu menn ölmóðir og dansrjóðir í dúnmjúk
rúm á beztu gistihúsum borgarinnar. Og það var
morgunn og það var kvöld....
Þökk sé þeim fyrir ástúðlegar móttökur! Heill
hinni sænsku verkalýðshreyfingu!
Lund, 1. október 1946
Einar Bragi Sigurðsson.
273