Vinnan


Vinnan - 01.10.1946, Blaðsíða 10

Vinnan - 01.10.1946, Blaðsíða 10
Fólksfjöldinn.á útifundinum á Lækjartorgi Ameríku. Jafnframt lét hann í ljós mjög dular- fullan ótta við einhverja þjóð í austri, sem virðist hafa verið honum þyrnir í augum um langt skeið. Eigi vita menn með vissu, hver er orsök þessa ótta, en af því, liversu honum er óljúft að nefna nafn þessarar þjóðar í skrifum sínum, þótt hann hins vegar minnist hennar oft á óbeinan hátt, ráða menn helzt, að téð þjóð sé gömul unnusta hans, sem hann hafi brugðið heitum við og flýi nú vegna samvizkubits. Þó telja menn þennan ótta með öllu ástæðulaus'an, því að enginn veit til þess, að hin austræna þjóð hafi nokkru sinni sótzt sérlega fast eftir ástum Jónasar. Þegar stríðinu lauk og setuliðið sýndi á sér tak- markað ferðasnið, tóku menn að efast mjög um hina amerísku orðheldni. Jafnframt komst á kreik orðrómur um, að ýmsum íslendingum og jafn- vel helzt þeim, sem áður höfðu talað hvað fagur- legast um frelsi og sjálfstæði þióðarinnar, væri dvöl hins bandaríska setuliðs hér mjög kærkomin. Gekk jafnvel svo langt, að fyrir síðustu alþingis- kosningar voru uppi háværar raddir um það, þótt þess hefði ekki átt að þurfa, að krefja frambjóð- endur loforðs um að berjast á alþingi gegn þrá- setu Bandaríkjahers hér. Blöð stjórnmálaflokk- anna tóku mjög loðna afstöðu til málsins að und- anteknum blöðum Sósíalistaflokksins osr mál- o gagni Alþýðusambandsins. Þau tóku frá upphafi mjög ákveðna afstöðu gegn alíri erlendri íhlutun um íslenzk málefni og kröfðust brottfarar setu- liðsins þegar í stað. Kvíði manna og uggur um framtíð hins ný- fengna frelsis og sjálfstæðis íslenzku þjóðarinnar óx dag frá degi, unz menn þurftu ekki lengur að vera í neinum vafa, þegar hinn illræmdi her- stöðvasamningur, senr Morgunblaðið kallaði á sínu sakleysislega og ísmeygilega máli „flugvallar- málið“, var lagður fyrir alþingi 20. september síðastliðinn, og jafnframt varð kunnugt, að for- sætisráðherrann, Ólafur Thors, hafði tryggt samn- ingnunr fylgi meiri hluta alþingis, en samkvæmt þessum samningi eiga Bandaríkin, svo sem kunn- ugt er, að hafa full afnot Keflavíkurflugvallarins til herflutninga, og er lrann óuppsegjanlegur í sex og hálft ár. Strax og samningurinn var lagður fram á al- VIN N A N 276

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.