Vinnan - 01.10.1946, Síða 11
þingi reis sterk mótmælaalda gegn honum meðal
þjóðarinnar. Tók stjórn Alþýðusambands Islands
þegar í stað forystuna í baráttunni gegn honum,
og á fundi sínum sama daginn og samningsupp-
kastið var lagt fram, gerði hún eftirfarandi sam
þykkt:
„Með skírskotun til ályktunar stj. Alþýðu-
sambands Islands frá 2. nóv. 1945, sem stéttarfé-
lög alþýðunnar um land allt hafa áréttað, þar sem
mómælt er afsali íslenzkra landsréttinda og hvatt
er til þjóðareiningar gegn hvers konar erlendri á-
sælni, mótmælir stjórn Alþýðusambandsins samn-
ingsuppkasti því, sem nú liggur fyrir Alþingi sem
dulbúnum herstöðvasam'ningi, er raunverulega
veitir Bandaríkjunum hernaðaryfirráð á íslenzku
landsvæði og skerðir sjálfstæði þjóðarinnar.
Sambandið gerir þá kröfu til nýkjörinna full-
trria á alþingi Islendinga, að þeir sýni þann trún-
að við íslenzku þjóðina og þau heilindi gagnvart
gefnum loforðum, að þeir felli samningsuppkast-
ið og vísi ákveðið á bug öllum tilraunum til
skerðingar á íslenzkum landsréttindum í hvaða
gervi, sem þær birtast.
Alþýðusamband íslands heitir á alþýðu lands-
ins og íslenzku þjóðina alla að búast til varnar
sjálfstæði og frelsi ættjarðarinnar og mótmæla
einum rómi því afsali á íslenzkum landsréttind-
um, sem hið ameríska samningsuppkast boðar.“
Tveimur dögum seinna, 22. september, var
haldinn að tilhlutan stjórnar Alþýðusambandsins,
almennnr fundur um samningsuppkastið í porti
Miðbæjarskólans. Komu þar fram íulltrúar frá
Alþýðusambandinu, stúdentum, Bandalagi ís-
lenzkra listamanna o. fl. Málshefjandi var Stefán
Ögmundsson varaforseti Alþýðusambands ís-
lands, og var mál hans snjallt og skörulegt. Auk
hans töluðu, meðal annarra, Halldór Kiljan
Laxness rithöfundur, Sigurbjörn Einarsson
dósent og frú Aðalbjörg Sigurðardóttir. Fundur-
inn var geysifjölsóttur og létu menn óspart í
ljós andúð sína á samningsuppkastinu og hinum
íslenzku kvislingum. Að honum loknum gengu
fundarmenn fylktu liði niður að samkomuhúsi
sjálfstæðismanna við Austurvöll, en þar stóðu
helztu forríðarar Sjálfstæðisflokksins, andspænis
styttu Jóns Sigurðssonar, og útmáluðu fyrir fáein-
Lögregluþjónar ineð gasgrimur við sjálfstœðishúsið
VINNAN
277