Vinnan - 01.10.1946, Síða 12
Jakob Benediktsson
talar á útifundinum
a Lækjartorgi
um fylgismönnum sínum nauðsyn þess að selja
af hendi það frelsi og sjálfstæði, sem Jón Sigurðs-
son liafði barizt manna mest og bezt fyrir, að
íslenzk þjóð fengi endurheimt. Þegar aðkomu-
menn gengu inn í salinn og létu í ljós andúð sína
á atferli Seljalandsmanna, féllust þeim hendur
og varð fundarfall, unz komumenn gengu út
aftur. Eigi vildi fólk frá liverfa, og stóð fylkingin
fyrir utan húsið allt til kvölds. En þá áræddu
Seijalandsmenn að gægjast út, og héldu brott,
ósárir, en ákaflega móðir.
Daginn eftir, 23. september, var allsherjarverk-
fall gegn herstöðvasamningnum til þess að krefj-
ast þjóðaratkvæðis. Hófst það klukkan eitt eftir
hádegi og stóð til jafnlengdar næsta dag. Var
þetta fyrsta allsherjarverkfallið á íslandi, og var
algert, svo algert, að meðan alþingi íslendinga
var gert að mangarabúð, þar sem verzlað var með
frelsi og sjálfstæði þjóðarinnar, eins og það væri
fánýtt glingur, lokuðu margir kaupmenn verzlun-
um sínum í mótmælaskyni við samning Ólafs
Thors, og fjöldi ófélagsbundinna manna lagði
niður vinnu.
Sama dag var haldinn útifundur á Lækjartorgi
að tilhlutan stjórnar Alþýðusambandsins og full-
trúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík. Á fund-
inum voru um átta þúsundir manna. Málshefj-
andi var þar einnig Stefán Ögmundsson, vara-
forseti Alþýðusambandsins, en auk hans töluðu
meðal annarra, Jón Rafnsson framkvæmdastj.,
Eggert Þorbjarnarson form. fulltrúaráðs verka-
lýðsfél. í Reykjavík, Jakob Benediktsson magister
og dr. Björn Sigfússon. Björn Bjarnason ritari
sambandsins og Guðgeir Jónsson fyrrv. forseti
þess stjórnuðu fundinum. í lok fundarins voru
samþykktar í einu hljóði eftirfarandi tillögur:
„Vér leyfum oss hér með að senda hinu háa
alþingi eftirfarandi samþykkt:
Fjölmennur útifundur, haldinn 23. sept. 1946
í Reykjavík, skorar á alþingi að samþykkja ekki
samningsuppkast það, er nú liggur fyrir alþingi
frá stjórn Bandaríkja Norður-Ameríku, án þess
að þjóðinni verði gefinn kostur á að tjá vilja
sinn í þessu máli með þjóðaratkvæðagreiðslu."
„Fjölmennur útifundur felur stjórn verkfalls-
ins að senda nefnd manna á fund stjórnar Alþýðu-
flokksins og þingmanna hans til þess að krefjast
liðsinnis þeirra við að fá þjóðaratkvæðagreiðslu
um samninginn við Bandaríkin.“
„Vér þúsundir íslendinga, samankomnir á
fundi í Reykjavík 23. sept 1946, leyfum oss að
beina þeirri ósk til yðar, herra forseti, að þér, á
þessari örlagastund þjóðarinnar, beitið áhrifum
yðar gagnvart alþingi og farið þess á leit, að þing-
ið láti tillögu þá um samninga milli Bandaríkja
N orður-Ameríku og Islands, sem nú liggur fyrir
alþingi, ekki öðlast samþykki án þess hún legg-
ist undir þjóðaratkvæðagreiðslu.“
Frá fjölda verkalýðsfélaga og annarra félaga
víðs vegar af landinu bárust áskoranir til alþingis
um að samþykkja ekki samningsuppkastið án
undangenginnar þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá létu
menntamenn vorir ekki heldur á sér standa. Á
fundi sínum, 22. september, samþykkti Stúdenta-
278
VINNAN