Vinnan - 01.10.1946, Qupperneq 13
ráð Háskóla íslands eftirfarandi erindi til al-
þingis:
„Stúdentaráð Háskóla Islands lítur svo á, að í
samningsuppkasti því, sem nú liggur fyrir alþingi
um réttindi Bandaríkjanna á íslandi, sé íslend-
ingum ekki tryggður sá réttur, sem fullvalda þjóð
lilýtur að krefjast.
Stúdentaráð telur, að betur yrði að tryggja
brottflutning alls herafla Bandaríkjanna í Reykja-
vík og óskoraðan umráðarétt þjóðarinnar yfir
öllu hennar landi, heldur en gert er í nefndu
samningsuppkasti.
Stúdentaráð lítur einnig svo á, að slíkan samn-
ing, sem hér um ræðir, sé ekki rétt að gera til
lengri tíma en eins árs.
Stúdentaráð telur nauðsynlegt að orða samn-
ingin svo skýrt, ótvírætt og ýtarlega, að sem
minnst hætta sé á því, að til ágreinings aðila
kunni að koma. Alþjóðadómstólar, sem vald
hafa um slíkan ágreining, eru svo seinvirkir, að
örlagaríkt gæti orðið fyrir íslendinga.
Stúdentaráð leyfir sér því að skora á hið háa
alþingi að samþykkja ekki nefnt samningsupp-
kast, eins og það liggur fyrir nú.“
Ennfremur skoraði stjórn Stúdentafélags
Reykjavíkur á alþingi að samþykkja ekki samn-
ingsuppkastið. Og á almennum fundi eldri og
yngri stúdenta, senr haldinn var í Háskólanum,
voru samþykktar eftirfarandi áskoranir nær ein-
róma:
„Almennur fundur eldri og yngri stúdenta
haldinn í Háskólanum að tilhlutan Stúdenta-
félags Reykjavíkur og Stúdentaráðs Háskóla ís-
lands þann 23. sept. 1946 beinir þeirri áskorun
til allra íslendinga, að þeir standi dyggilega á
verði um réttindi og sjálfstæði landsins, en sýni
Guðgeir Jónsson talar
d útifundinum á Lœkjartorgi
VINNAN
279