Vinnan


Vinnan - 01.10.1946, Side 19

Vinnan - 01.10.1946, Side 19
að af fagmönnum, því þau bera það með sér, að svo sé. En þessar línur eru ritaðar til þess að hrinda fram þeirri spurningu, hvort veitinga- menn eigi ekki að vinna að því með Matsveina- og veitingaþjónafélagi Islands, að hér á landi skapist innlend veitingamannastétt, en til þess að svo verði, þarf: í fyrsta lagi: Að gera námssamning við nem- ana, eins og iðnnámslöggjöfin gerir ráð fyrir. í öðru lagi: Að stofna skóla, til þess að mennta nemana í ýmsu bóklegu, en það mál er konr- ið dálítið áleiðis, þó ekki nægilega langt. í þriðja lagi: Að ekki verði öðrunr veitt veit- ingaleyfi en þeim mönnunr, sem iðnréttindi hafa í þessum greitrum. Matsveina- og veitingaþjónafélag íslands hefur sent bæjarstjórn Reykjavíkur ályktun félagsfund- ar frá 23. maí s.h, þar sem farið er fram á, að veit- ingaleyfi verði ekki veitt öðrum mönnunr en þeim, er uppfylla þriðja lið hér að framan, þ. e. hafa iðnréttindi í matreiðsluiðn eða framreiðslu- iðn. Háttvirt bæjarstjórn Reykjavíkur lrefur ekki, eftir því sem virðist, getað fallizt á þessa beiðni félagsins. Vonandi að það breytist, áður en um langt líður. Þess skal þó getið, að nokkrir bæjar- fulltrúar í Reykjavík lrafa sýnt þessari ályktun félagsins fullan skilning. Eins og þessi grein ber með sér, er meiri liugur í nrönnum fyrir því að byggja veitingahús og gistihús, en íninna hugsað um að reksturinn sé í samræmi við kröfur annarra þjóða. Þetta þarf að breytast. Við viljum ekki vera eftirbátar annarra, fremur á þessu sviði en öðr- um. Á kaífihúsinu — Ekki stígur hann í vitið hann Agnar, en veiztu af hverju? — Ætli það sé ekki af því hve vitið í honum er stutt? — Nei lagsmaður, þar skjátlast þér, — það er af því, að hann reiðir það í þverpokum. ■ -'h Frá sveinsprófi á Þinguöllum 19. sept 1945 (ma'reiðslumenn). Talið frá vinstri: Þárður S. Arason, Böðvar Steinþórsson, Kjartan Guðjónsson, María Jensdóttir, Þorgeir Pétursson, Þórir Jónsson þrófdómari, Sveinsína Guðmundsdóttir, Kristján Ásgeirsson. VINNAN 285

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.