Vinnan - 01.10.1946, Blaðsíða 21
Ilse Guðnason
núverandi jjármálaritari
Guðmunda Gunnarsdóttir
núverandi ritari
Ólajia Sigurðardóttir
núverandi gjaldkeri
ágætlega í þessari baráttu, héldu verkfallsvörð og
létu hvergi sinn hlut. — Voru þá í fyrsta sinn gerð-
ir samningar milli atvinnurekenda og verka-
kvennafélags í Eyjum.
Árið 1932 var um margt sögulegt á sviði verka-
kvennasamtakanna í Eyjum, fyrst Kveldúlfsdeil-
an, kvennadeildin er þá gerð að sjálfstæðu félagi
með sérstjórn og aðskilinn fjárhag, en þó deild í
,,Drífanda“ sem fyrr. —• Þetta ár er stofnað nýtt
verkakvennafélag, er nefndist „Snót“.
I stjórn Verkakvennafélagsins „Drífanda“ sátu
þessar konur lengst af: Guðrún Jónsdóttir, for-
maður, Marta Þorleifsdóttir, ritari, og Ólafía Óía-
dóttir, gjaldkeri.
Fundarsókn var oftast ágæt, t. d. eru 8. nóv.
1932 98 konur á fundi, 30. jan. 1933 eru 103 kon-
ur á fundi, en þá var félagatala nokkuð á annað
hundrað.
Kauptaxti félagsins var um þessar mundir sá í
aðalatriðum, að dagvinna var kr. 1.10, næturv.
kr. 1.40, mánaðarkaup kr. 200.00. Taxti þessi var
ekki viðurkenndur, en flestir atvinnurekendur
greiddu hann.
Árið 1936 verður Vkf. ,,Drífandi“ algerlega ó-
háð verkamannafélaginu og nefnist þá Verka-
kvennafélag Vestmannaeyja. Formaður var kos-
in Ólafía Óladóttir, en aðrar konur í aðalstjórn
Marta Þorleifsdóttir og Margrét Sigurþórsdóttir.
Verður nú að víkja að sögu „Snótar" í fáum
dráttum.
6. nóvember 1932 stofna 20 konur Verka-
kvennafélagið „Snót“ að Breiðabliki. Fyrir þeim
fundi lá tilboð frá Verkakvennafélaginu „Dríf-
anda“ þess efnis, að „Drífanda“‘-konur og verð-
andi „Snótar“-konur sameinist undir merkjum
nýs félags, er hefði sem flestar vinnandi konur
innan sinna vébanda.
Þessu boði var algerlega hafnað.
í fyrstu stjórn „Snótar“ voru kosnar: Kristín
Ólafsdóttir, form., Margrét Sigurþórsdóttir, rit-
ari, og Guðný Erlendsdóttir, gjadkeri. Kristín var
form. félagsins til ársins 1938, en Margrét hafði
Þóranna
Ögmundsdóttir
i stjórn
Verkakvjél. Hvöt
Guðrun
Jónsdóttir
i stjórn Hvatar
og síðar form.
i verkakv.deild
Drífanda
VINNAN
287