Vinnan - 01.10.1946, Side 22
Marta Þorleifsdóttir
ritari i Vkv.félagi Vestm.
og meðstj. i Snót frá 1938
Ólafía Óladóttir
varaformaður Snótar
frá 1938
Dagmey Einarsdóttir
gjaldkeri Snótar
1938-1943
skamma dvöl í félaginu og gekk í hitt verka-
kvennafélagið.
„Snót“ fékk þegar inntöku í Alþýðusamband
Islands, en þá voru ekki önnur félög hlutgeng í
Alþ.samb. ísl. en þau, er lutu yfirráðum Alþýðu-
flokksins í einu og öllu.
Félagsstofnun þessi mæltist all-misjafnlega fyr-
ir, þar sem annað fjölmennt verkakvennafélag
var fyrir á staðnum.
Helztu viðfangsefni félagsins á næstu fundum
er stofnun sjúkrasjóðs og tilraunir til samninga
við atvinnurekendur.
7. jan. 1933 er lagður fram kauptaxti, er var í
aðalatriðum þessi: Tímakaup 80 aurar pr. klst.,
eftir- og næturvinna kr. 1.00 pr. klst., mánaðar-
kaup 180 kr., miðað við 10 stunda vinnu.
Atvinnurekendur voru ófúsir til samninga, þó
vildu sumir greiða 200 kr. mánaðarkaup, ef
vinnutími væri ótakmarkaður. Þótti slíkt boð
alls óviðunandi.
Þá kom tilboð frá Verkakvennafélaginu „Dríf-
anda“ um að bæði félögin legðu fram sameigin-
Margrét
Sigurþórsdóttir
form. Snótar
1938-1943
legan taxta og fylgdu honum fram sem eitt félag
væri, en því var hafnað af „Snót“.
7. febr. 1935 heldur „Snót“ útbreiðslufund og
eru mættar allmargar konur úr „Drífanda". Jón
Sigurðsson, þáverandi fulltrúi A. í., var og mætt-
ur sem oftar. Er kaupgjaldsbaráttan enn á dag-
skr: Tillaga kom fram um að „Snót“ og „Dríf-
anda“-deildin stofnuðu sjálfstætt félag, en „Snót-
ar“‘-konur og Jón Sig. lögðust mjög gegn tillög-
unni. Töldu Drífanda-konur starf hans miða að
því að viðhalda og jafnvel auka sundrung og
óeiningu í verkakvennasamtökunum í bænum.
í apríl 1937 náði „Snót“ samningum með að-
stoð Jóns Sigurðssonar. Samkvæmt þeim mun
hafa verið greitt 80 aurar í dagvinnu og kr. 1.00
í næturvinnu.
Starf félagsins var dauft um þessar mundir.
Vildu sumar félagskonur samvinnu við Vkf. Vest-
mannaeyja, en er ekkert ávannst í því efni, gengu
þær úr félaginu, en öðrum var vikið úr því.
Loks kom þar, að bæði félögin sameinast, með
þeim hætti, að 114 konur úr Vkf. Vestmannaeyja
Kristín Jakobsen
formaður i
Verkakvfél. Hvöt
288
VINNAN