Vinnan


Vinnan - 01.10.1946, Qupperneq 31

Vinnan - 01.10.1946, Qupperneq 31
Síldvcrhun 700.000 smálestir. Spánverjar skera upp 300.000 smálestir, Sovétþjóðirnar og Egyptar 400.000 hvor fyrir sig og Bandaríkin eitthvað nálægt 900.00 smálestum. Á smærri mælikvarða er hveiti- ræktin í Porútgal og Balkanríkjunum nokkur rísuppskera er einnig í Ungverjalandi, Litlu- Asíu, og í nokkrum Afríkunýlendum er og nokk- ur hveitirækt (einkum á Madagaskar). Samanlagt framleiða þessi lönd ekki nema 2—3% af öllum þeim rís, sem þarf til þess að fóðra 600 milljónir rísætna. Allt, sem á vantar, er framleitt í Suð- austur-Asíu. Indverska rxsuppskeran neraur 48 milljónum smálesta, japanska uppskeran 11—12 milljónum, — ef 'Laiwan (Formósa), Chosen (Kórea) og Mansjúkúó eru taldar með kemst hún upp í hér um bil 15 milljónir smálesta. Hve mikil rísuppskera Kínverja er, getur enginn vitað með vissu, en ekki fer sú áætlun fjarri lagi, að hún sé eitthvað svipuð og í Indlandi. Síamsbúar fram- leiða hér um bil 5 milljónir smálesta. Hin tvö sjálfstæðu Asíuríki, Japan og Síam, framleiða því um það bil sjötta hluta þess ríss, sem ræktaður er í öllum heiminum, en af honum éta Austurlanda- búar 97-98%. Ef við hyggjum nákvæmlega að innflutnings- skýrslunum, kemur það á daginn, að fjórði hlut- inn af öllum þeim rís, sem notaður er umfram eigin framleiðslu í Austurlöndum, er fluttxxr inn frá Síam. Álíka mikill er innflutningurinn frá franska Indó-Kína og helmingurinn kemur frá löndum Englendinga í Burma. Þessar tölur sýna okkur glöggt „valdahlutföll- in“ í Austurlöndum. Gulu þjóðiinar hafa fengið þeim hvítu lykilinn að matbúri sínu, og á þeim grundvelli hvílir valdaaðstaða hvítra manna þar eystra að miklu leyti. Þegar Japanir hvetja Aust- urlandaþjóðirnar til þess að sameinast í eina „þjóðaheild“, er þessari áskorun í fyrsta lagi beint til hinna rísétandi þjóða. Það er þáttur Japana í baráttunni um rísinn. Hveiti og rís, vestur og austur, — tvær heims- skoðanir, tvenns konar menning, tvær sálir. Hver vogar sér að leggja dóm á, hvor þeirra sé „þýð- ingarmeiri“ og „nauðsynlegri“ fyrir mannkynið? Hveitið lokkar mennina eitthvað út í buskann. Rísinn snýr sálum þeirra að eilífðinni. Voldugur forstjóri kemur inn til bílasala og er að hugsa um að kaupa bifreið. — Er nokkur hætta á að rafgeymirinn bili? spyr hann. — Nei, svarar bílasalinn, engin hætta á því. — Er þá nokkur þörf fyrir þessa sveif? — Allur er varinn góður, svarar bílasalinn. Forstjórinn var ekki ánægður með svarið og ætlar að hverfa á brott. Þá kallar sölumaðurinn á eftir honum og segir: — Heyrið þér herra forstjóri: — Þér vitið að allir karlmenn hafa tvær geirvörtur, en vitið þcr til hvers þær eru ætlaðar? — Nei, það vissi forstjórinn ekki. — Þeim er aðeins ætlað að gera sitt gagn, ef svo ólíklega skyldi fara að þeir yrðu barnshafandi. Forstjórinn keypti þegar bílinn. VINNAN 297

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.