Vinnan - 01.10.1946, Qupperneq 37
Fulltrúar Norðurlanda á 19. þingi A. S. í.
Eins og áður hefur verið skýrt £rá bauð miðstjórn Alþýðu-
sambandsins verkalýðssamböndunum á Norðurlöndum að
senda fulltrúa á sambandsþingið í haust. Svör hafa nú borizt
frá öllum nema Finnum. Fulltrúi Norðmanna verður Alfreð
Skar, fulltrúi Dana verður Carl P. Jensen, ritari danska verka-
lýðssambandsins, fulltrúi Færeyinga verður Magnus Thors-
heim, formaður færeyska verkalýðssambandsins og fulltrúi Svía
verður Torvald Karlbom, skólastjóri í Brunnsvik.
Kjarasamningur Siómannafél. Akureyrar og S. I. S.
3. okt. var undirritaður samningur milli Sjómannafélags Ak-
ureyrar og Sambands ísl. samvinnufélaga, um kaup og kjör
háseta og aðstoðarmanna í vél á hinu nýja skipi S. í. S. „Hvassa-
felli“, en útgerðarheimili skipsins er á Akureyri. Samkvæmt
samningnum eru kjör skipverja á Hvassafelli þau sömu og
gilda á skipum Eimskipafélagsins. Grunnkaup á mánuði fyrir
viðvaninga er kr. 286.00, fyrir fullgilda háseta kr. 440.00 og að-
stoðarmann í vél kr. 550.00. Auk þess hafi skipverjar kr. 30.00
á mánuði fyrir að þeir leggja sér til kojuföt og matarílát. Til
1. maí 1947 er áhættuþóknun kr. 240.00 á mánuði, en fellur
þá niður.
Kjarasamningur verkamanna á Sauðárkrcki
1. sept. var undirritaður kjarasamningur milli Verkamanna-
félagsins Fram á Sauðárkróki og atvinurekenda. Grunnkaup
verkamanna í almennri dagvinnu hækkaði úr kr. 2.20 i kr.
2.55 á klst., skipavinna hækkaði úr kr. 2.74 í kr. 3.00 á klst.,
kaup drengja hækkaði úr kr. 1.76 í kr. 2.00 á klst. Mánaðarkaup
manna sem vinna fasta vinnu 2—4 mánuði hækkaði úr kr.
435.00 í kr. 525.00 á mánuði og þeirra sem vinna 4 mánuði
eða lengur úr kr. 407.00 í kr. 480.00 á mánuði. Kaup bílstjóra,
sem keyra fyrir prósentur hækkaði úr 30% í 37% af brúttótekj-
um bifreiðarinnar. Flánings- og gálgavinna, sem áður var
greidd með 15% hærra kaupi en almenn vinna skal samkvæmt
nýja samningnum greidd 20% hærra.
Kjarasamningur á Blönduósi
19. sept. var undirritaður kjarasamningur milli Verkalýðs-
félags Austur-Húnvetninga á Blönduósi og Sláturfélags Aust-
ur-Húnvetninga. Samkvæmt þessum samningi hækkaði kaup í
almennri vinnu hjá Sláturfélaginu í sama kaup og áður höfðu
náðzt samningar um við Kaupfélag Austur-Húnvetninga.
Kjarasamningur verkakvenna á Sauðárkrók
Þann 8. ágúst var undirritaður nýr kjarasamningur milli
Verkakvennafélagsins Aldan á Sauðárkróki og atvinnurekenda
þar. Samkvæmt hinum nýja samningi hækkaði grunnkaup
verkakvenna í dagvinnu úr kr. 1.60 í kr. 1.80 á klst. Eftirvinna
greiðist með 50% álagi og nætur- og helgidagavinna með 100%
álagi á dagvinnukaup. Jafnframt hækkaði ákvæðisvinna við
síldarsöltun upp í Siglufjarðarkjör.
Kjarasamningur verzlunarmanna á Siglufirði
Þann 30. ágúst var undirritaður fyrsti kjarasamningur verzl-
unarfólks á Siglufirði. Samningsaðilar eru Verzlunarmannafé-
lag Siglufjarðar annarsvegar og Kaupmannafélag Siglnfjarðar
og Kaupfélag Siglfirðinga hins vegar.
Samkvæmt þessum samningi er mánaðargrunnkaup stúlkna
með verzlunarmenntun eða 3ja ára starfsreynslu kr. 300.00
fyrsta árið, kr. 350.00 annað árið og kr. 400.00 þar eftir. Mán-
aðargrunnkaup annarra stúlkna, þ. e. þeirra, sem ekki hafa
verzlunarmenntun eða fyrrgreinda starfsreynslu að baki, er kr.
250.00 fyrsta árið, kr. 300.00 annað árið og kr. 350.00 þar eftir.
Mánaðargrunnkaup karla með verzlunarmenntun eða fyrr get-
inn starfstíma að baki er kr. 425.00 á fyrsta ári, kr. 475.00 á
öðru ári, kr. 525.00 á þriðja ári og kr. 575.00 úr því. Mánaðar-
grunnkaup karla án verzlunarskólamenntun eða 3ja ára starfs-
tíma er kr. 325.00 fyrsta árið, kr. 350.00 annað árið og kr. 400.00
þar eftir. Þeir verzlunarmenn, sem kunna að hafa betri kjör,
skulu halda þeim óskertum. Samningurinn gildir frá 1. júlí
1946 til 1. jan. 1948.
Nýr kjarasamningur á EskiíirSi
15. okt var undirritaður nýr kjarasamningur milli Verka-
mannafélagsins Arvakur og Verkakvennafélagsins Framtíð
annars vegar og atvinnurekenda á Eskifirði. Samkvæmt þessum
samningi hækkaði grunnkaup karlmanna í almennri dagvinnu
úr kr. 2.30 í kr. 2.60 á klst. Skipavinna hækkaði úr kr. 2.60 í kr.
2.90 á klst. og skipavinna við kol, salt sement og timbur úr kr.
3.00 í kr. 3.30 á klst. Grunnkaup kvenna hækkaði úr kr. 1.70 í
kr. 1.90 á klst. Grunnkaup unglinga 13—16 ára hækkaði og úr
kr. 1.70 í kr. 1.90 á klst. — Eftirvinna greiðist með 50% álagi
og nætur- og helgidagavinna með 100% álagi á dagvinnukaup.
Nýr kjarasamningur Baldurs á Isafirði
Þann 13. okt. undirritaði Verkalýðsfélagið Baldur og atvinnu-
rekendur á Isafirði nýja kjarasamninga.
Samkvæmt þessum samningum hækkaði grunnkaup verka-
manna í almennri dagvinnu úr kr. 2.45 í kr. 2.65 á klst. Grunn-
kaup í skipavinnu hækkaði úr kr. 2.69 í kr. 2.91 á klst. og í
skipavinnu við kol, sement, út- og uppskipun á salti úr kr.
3.00 í kr. 3.24 á klst. Blöndun við hrærivélar og steypuhrærsla
á bretti greiðist og með sama kaupi. Vinna við ísun fisks í fisk-
tökuskipum hækkaði úr kr. 4.26 í kr. 4.60 á klst. og greiðist
alltaf sama kaup, án tillits til hvenær vinnan er framkvæmd.
Grunnkaup kvenna (og unglinga) hækkaði úr kr. 1.75 í kr.
1.89 á klst. — Eftirvinna greiðist með 50% álagi og nætur- og
helgidagavinna með 100% álagi á dagvinnukaup.
Séu verkamenn ráðnir upp á mánaðarkaup skal það vera kr.
502.20 á mánuði, miðað við 8 stunda vinnu á dag. Kaup bif-
reiðastjóra, sem aka í tímavinnu, er kr. 2.97 á klst. í dagvinnu,
en bifreiðastjórar, sem ráðnir eru upp á mánaðarkáup, skulu
hafa kr. 529.20 á mánuði, og er það miðað við 8 stunda vinnu
á dag. — Þessi kauphækkun verkafólks á Isafirði nemur 8%
Septembervísilalan
Vegna flutnings á prentsmiðjunni, sem Vinnan er prentuð
í, hefur útkoma þessa heftis tafizt allmikið. Af þeim sökum
var ekki hægt að birta Kaupgjaldstíðindi fyrir októbermánuð,
eins og til stóð. En til leiðbeiningar skal þess getið, að sept-
embervísitalan, sem kaupgjald í október er reiknað eftir. var
294 stig — eða 2 stigum lægri en vísitala næsta mánaðar á
undan.
r s
VERK AMEJÍIV!
Sendið Vinnunni greinar um áhugamál
ykkar.
V___________________________________________________y
VINNAN
30;