Vinnan


Vinnan - 01.09.1947, Side 8

Vinnan - 01.09.1947, Side 8
Popova talar á útifundi í Prag Vegna þeirra ofsókna, er kínversku verkalýðssam- tökin hafa sætt af hendi valdhafanna, var samþ. að fela aðalritaranum að bera fram mótmæli við kínversk stjórnarvöld og krefjast þess, að hún nyti þeirra rétt- inda, er verkalýðssamtökin njóta í lýðfrjálsum lönd- um. Ennfremur var samþ. að viðurkenna ekki þá gerfi- stjórn, er Shang-Kai-Shek hefur sett yfir verkalýðssam- bandið, heldur hina löglegu stjórn þess, er nú dvelst í útlegð í Hong-Kong. Sú krafa var gerð til stjórnar Grikklands, að hún léti tafarlaust fara fram frjálsar kosningar í verkalýðsfé- lögunum og leyfði starfsemi þeirra með eðlilegum hætti. Verði stjórnin ekki við þessari kröfu var framkvæmda- nefndinni falið að snúa sér til Hinna sameinuðu þjóða með kröfu um, að þær skerist í leikinn og í samvinnu við Alþjóðasambandið komi á eðlilegu ástandi. Aðal- ritaranum var falið að hafa stöðugt samband við grísku félagana og veita þeim alla þá aðstoð, er hann mætti. íranska verkalýðshreyfingin hefur að undanförnu sætt stöðugum ofsóknum af hendi ríkisvaldsins. Vegna þeirra voru samþ. mótmæli til stjórnarinnar og þess krafizt, að hún veitti verkalýðssamtökunum fullt starfs- frelsi og léti forystumenn þeirra lausa úr fangelsum sínum. Til að flýta fyrir framkvæmd þessarar kröfu var samþ. að leita samvinnu við fjárhags- og félags- málaráð H. S. Þ. Um Spán var samþ. svohljóðandi ályktun: 1. Alþjóðasambandið samþykkir að hefja nú þegar fjársöfnun meðal meðlima sinna til styrktar Spáni. Landssamböndum innan Alþjóðasambandsins er falið að safna nú þegar því af peningum, er þeim er mögu- legt og senda Alþjóðasambandinu, en það ver þeim eingöngu til styrktar andstöðuhreyfingunni á Spáni. 2. Að fara fram á það við Öryggisráðið að það láti nú þegar samþykkt þings H. S. Þ. frá des. 1946 koma til framkvæmda. Frestur sá er nefndur er í samþykkt- inni ætti nú að vera útrunninn og framkvæmd sam- þykktarinnar mun færa Öryggisráðinu enn eina sönnun fyrir þvingunarráðstöfunum Francos gegn málfrelsi, rit- frelsi og félagsfrelsi. Þessar staðreyndir ættu að nægja H. S. Þ. til tafarlausra aðgerða gegn einræðisstjórn Francos. 3. Fyrir næsta þing H. S. Þ. skulu landssamböndin hvert í sínu landi beita öllum áhrifum sínum á ríkis- stjórnirnar svo að fulltrúar þeirra á þingi H. S. Þ. geri ráðstafanir er duga til að endurreisa lýðfrelsi á Spáni. 186 VINNAN

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.