Vinnan - 01.09.1947, Qupperneq 10
tregðu er nokkur ríki hafa sýnt á því að viSurkenna
AlþjóSasambandiS sem hlutgengan aSila aS þeim sam-
tökum.
MiSstjórnarfundurinn mótmælti framkomu þessara
ríkja, sem undir forystu bandarísku fulltrúanna hafa
reynt aS koma í veg fyrir aS AlþjóSasambandiS skip-
aSi þann sess í samtökum H. S. Þ., sem því ber, en
þakkaSi þeim ríkjurn er sýnt höfSu málinu skilning.
I 5. liS ályktunar um þessi mál segir: „MiSstjórnin
felur framkvæmdaráSinu þegar þaS telur henta, aS fá
tekiS á dagskrá efnahags- og félagsmálaráSsins:
a) Sömu laun fyrir konur og karla viS sömu vinnu.
b ) Afnám allrar hlutdrægni vegna litar eSa þjóSernis
c) Hvernig tryggja megi almenningi viSunandi lífs-
kjör.
d) Baráttan gegn atvinnuleysi.
e) Réttindi innfluttra verkamanna.
f) Baráttan gegn hringavaldainu.
I 7. liS sömu ályktunar segir, aS heimsverkalýSurinn
vænti þess af efnahags- og félagsmálaráSinu, aS þaS
beiti sér fyrir umbótum á sviSi efnahags- og félagsmála
og þátttaka AlþjóSasambandsins í störfum þess rnuni
verSa til aS tryggja jákvæSan árangur í því starfi.
FramkvæmdaráSinu var faliS aS athuga á hvern hátt
bezt verSi fyrir komiS samstarfi AlþióSasambandsins
og I. L. 0.
Næsta þing var ákveSiS aS halda í Briissel síSustu
viku september næsta ár. Hér aS framan hefur veriS
lauslega drepiS á þau helztu mál er miSstjórnarfundur-
inn tók til umræSu er þó vitanlega ekki nema fátt eitt
sagt af því er þar gerSist.
Fundarmenn allir virtust hafa fullan skilning á því,
hversu einingin er þýSingarmikil fyrir starfsemi Al-
þjóSasambandsins og höguSu málflutningi sínum í sam-
ræmi viS þann skilning.
ÞaS verSur ekki skilist svo viS aS segja frá þessum
fundi, aS nefna ekki þá frábæru gestrisni, er fulltrúarn-
ir nutu af hendi tékknesku verkalýSssamtakanna, alls
almennings og stjórnarvaldanna.
Björn Bjarnason.
Skýlu-Jónas og Flrúta-Grímur mættust á Vaðla-
heiði og rak Grímur sex hrúta á undan sér.
— Nú skil ég hvers vegna þú ert kallaður
Hrúta-Grímur, sagði Skýlu-Jónas.
— Ajæja! Féll nú skýlan loks frá augunum
á þér? sagði Hrúta- Grímur.
BRÉF
Alþýðusambands Islands og
Landssambands íslenzkra útvegsmanna
til
Jóhanns Þ. Jósefssonar sjóvarútvegsmálaráðherra
varðandi afstöðu beggja sambandanna til ákvörðunar
um bræðslusíldarverð
Reykjavík, 18. júlí, 1947
Hr. sjávarútvegsmálaráðherra Jóhann Þ. Jósefsson,
Reykjavík.
í samning þann, um kaup og kjör á síldveiðum, sem
gerður var 2. júlí s.l. milli Landssambands ísl. útvegs-
manna og Alþýðusambands Islands, var m. a. sett eftir-
farandi ákvæði varðandi afstöðu beggja samningsað-
ilja til ákvörðunar um lrræðslusíldarverð á þessu sumri:
„Landssamband ísl. útvegsmanna og Alþýðusamband
íslands vilja vinna sameiginlega að því, að verð það,
er útvegsmönnum og sjómönnum verður greitt fyrir
síld á komandi síldarvertíð verði sem hæst og að Al-
þýðusamband Islands f. h. sjómanna og Landssamband
ísl. útvegsmanna f. h. útgerðarmanna fái rétt til að til-
nefna fultrúa, til þess að gæta hagsmuna aðilja í þessu
efni.“
I samræmi við ofanritað samningsákvæði leyfum vér
oss hér með að fara þess á leit við yður, hr. sjávarút-
vegsmálaráðherra, að þér fallist á að fulltrúar frá sám-
böndum vorum fái rétt til þess að fylgjast með og taka
þátt í þeim útreikningum, sem lagðir verða til grund-
vallar, þegar bræðslusíldarverðið verður endanlega á-
kveðið, og ennfremur til þess að gæta hagsmuna sjó-
rnanna og útgerðarmanna við þá ákvörðun.
Landssambandið hefur af sinni hálfu tilnefnt til þess
að annast þetta verkefni Hafstein Bergþórsson útgerðar-
mann, sem nú er staddur á Siglufirði, og Alþýðusam-
bandið Tryggva Helgason, formann Sjómannafélags
Akurcyrar.
Vér væntum að þér sjáið yður fært að verða við
þessari málaleitan vorri og óskum heiðraðs svars yðar
hið allra fyrsta.
Virðingarfyllst,
f. h. Landssambands íslenzkra útvegsmanna
/. V. Hafstein (sign)
f. h. Alþýðusambands Islands
Guðmundur Vigfússon (sign)
188
VINNAN