Vinnan - 01.12.1998, Side 8
Þrælasala nútímans?
Indversk áhöfn fagnar því að hafa loksfengið launin sín greidd fyrir tilstuðlan ITF.
Erlendir starfsmenn rússneska
verktakafyrirtækisins
Technopromexport og háset-
arnir um borð í Hanseduo, hinu
þýska hentifánaskipi Eimskipa-
félagsins, eiga fleira sameigin-
legt en vera fórnarlömb í til-
raunum til að hagnast á ódýru,
innfluttu vinnuafli. A.m.k. hluti
beggja hópa er f raun með
ráðningarsamninga við fyrir-
tæki í Limassol á Kýpur, sem
leigja svo þessa starfsmenn
sfna til starfa á erlendri
grundu. Svo virðist sem starf-
semi áhafnaleiga færist mjög í
vöxt og miðað við þær aðstæð-
ur og þau kjör sem f jöldi starfs-
manna frá þriðja heiminum má
búa við án þess að geta borið
hönd fyrir höfuð sér, er ekki
langsótt að fmynda sér að á-
hafnaleigurnar séu sumar
hverjar þrælasalar nútfmans.
Fjöldi áhafhaleiga sérhæfir sig í að
útvega ódýrt vinnuafl, gjaman frá
þróunarlöndunum eða löndum þar
sem ríkir fátækt og atvinnuleysi. Þær
hafa yfirleitt skrifstofur eða útibú í
ríkjum á borð við Filipseyjar, Ind-
land, Bangladesh, Indónesíu, Pól-
landi eða Ukraínu. Starfsmenn gera
samning við viðkomandi áhafnaleigu
sem síðan sendir þá til starfa í ein-
hverju þriðja ríki eða um borð í far-
skip. Margar áhafnaleigur taka við
öllum launagreiðslum viðkomandi og
sjá um að greiða starfsmönnunum út
sinn hluta launanna.
Útgerð í leit að áhöfn getur valið
að láta áhafnaleigumar gera tilboð í
„allan pakkann" og flestar bjóða leig-
umar upp á úrval mismunandi þjóð-
ema til að velja úr. Með nútímatækni
er hægt að panta sér áhöfn í gegnum
tölvupóst.
Spilað á neyðina
Sú neyð sem spilað er á er oft yfir-
þyrmandi og fólk lætur glepjast til að
undirrita samninga við áhafnaleigur
og senda sig heimshomanna á milli
út í algera óvissu. Því miður eru
hörmungar margra rétt að byrja. Ar-
lega þarf Alþjóðasamband flutninga-
verkamanna að hafa afskipti af heilu
áhöfnunum sem em strandaðar mat-
ar-, peninga- og bjargarlausar í óra-
fjarlægð frá heimalandi sínu. Samn-
ingsbrot eru víða daglegt brauð og
vinnuálag næstum ótakmarkað. Fjöl-
mörg dæmi eru um að áhafnir hafi
ekki fengið greidd laun mánuðum
saman. Yfir sjómönnunum vofir hót-
unin um brottrekstur af skipinu og þá
þarf viðkomandi bæði að koma sjálf-
um sér heim á eigin kostnað og í
sumum tilfellum að kosta ferð afleys-
ingamanns á staðinn.
Eitt sorglegasta dæmið um „á-
hafnaleigurnar" er þó víðtæk útgerð
úkraínskra og rússneskra fyrirtækja á
komungum vændiskonum í Vestur-
Evrópu. Margar stúlknanna telja sig
vera á leið til allt annarra starfa en
standa svo uppi bjargarlausar, pen-
ingalausar og á valdi „áhafnaleig-
anna“ þegar á áfangastað er komið.
„Samningur" við sjómenn
Vinnan hefur undir höndum staðlað-
an samning einnar Úkraínskrar á-
hafnaleigu við farmenn. Þar kemur
m.a. fram að samningstími á fragt-
skip sé 8 mánuðir en skipafélagið
geti lengt þetta tímabil um tvo mán-
uði eða stytt það um tvo mánuði eftir
því hvemig stendur þægilegast á með
möguleika á að koma manninum í
land. Renni samningur út meðan skip
er á sjó ber sjómanni að sinna skyld-
um sínum þar til skipið hefur lagst í
höfn þaðan sem „fýsilegt og heppi-
legt“ er að senda sjómanninn til síns
heima.
Skipafélag má segja upp samn-
ingnum án fyrirvara en ber þá að
greiða ferðakostnað og að lágmarki
eins mánaðar laun í bætur. Fyrstu
tveir mánuðir samningstíma eru
reynslutími og má útgerðin þá senda
sjómann heim án fyrirvara án bóta.
Skipafélagi ber að greiða ferðir
sjómanns nema sjómaður beri ábyrgð
á samningsrofi. Þá ber sjómaðurinn
sjálfur kostnað af heimferð og ferða-
kostnað vegna staðgengils. Meðal
þess sem getur leitt til fyrirvaralausr-
ar uppsagnar samninga af hálfu út-
gerðar og bakað sjómanni bótaskyldu
er að hlýða ekki yfirmönnum, koma
of seint úr landleyfi, hegðunarvanda-
mál, slagsmál eða veðmál eða að
fylgja ekki reglum og stefnu fyrirtæk-
isins.
Föst yfirvinna allra áhafnarmeð-
lima er 104 tímar á mánuði. Vinni
sjómaður styttra skal hann samt fá
greitt fyrir 104 yfirvinnutíma. „Allir
áhafnarmeðlimir skulu vinna yfir-
vinnu, hvenær sem, eins og skipstjóri
mælir fyrir um.“ Sjómenn eiga rétt á
fimm frídögum í mánuði.
Öllum ágreiningi vegna þessa
samnings skal eingöngu vísað til
dómstóla í því landi þar sem viðkom-
andi skip er skráð.
Leið framhjá kjarasamningum
I málum Technopromexport vegna
lagningar Búrfellslínu og Eimskipa-
félags Islands vegna hentifánaskips-
ins Hanseduo er augljóslega verið að
reyna að komast framhjá íslenskum
kjarasamningum og réttindum launa-
fólks til að flytja inn ódýrt vinnuafl.
Sú staðreynd að svokallaðar áhafna-
leigur koma við sögu í báðum tilfell-
um ætti að vekja fólk til umhugsunar.
Svo virðist sem áhafnaleigur séu enn
ein leiðin til að brjóta á bak aftur rétt-
indi launafólks.
Eins og sannaðist í báðum þeim
málum sem íslensk stéttarfélög hafa
þurft að hafa afskipti af á síðustu
misserum, gera áhafnaleigumar mál-
in mjög snúin. Hingað til lands geta
komið erlendir starfsmenn á vegum
fyrirtækja sem em að vinna fyrir ís-
lenska aðila. Þessir starfsmenn eru
hins vegar ekki ráðnir hjá fyrirtækj-
unum sem þeir starfa hjá heldur ó-
skyldum þriðja aðila; áhafnaleigu
sem er með aðsetur víðsfjarri vett-
vangi. Eftirlit með launagreiðslum og
raunverulegum kjörum verður mjög
erfitt enda tíðkast falsaðir samningar
og falskir launaseðlar til að breiða
yfir hin raunverulegu kjör.
Bannað að tala
Frásögn hinna erlendu starfsmanna
kýpversku áhafnaleigunnar Cristobal
í Limassol, sem störfuðu hér á landi í
þjónustu Technopromexport, verk-
taka Landsvirkjunar, af starfskjömm
sínum hljómar kunnuglega í hinum
alþjóðlega heimi áhafnaleiganna. Það
gera einnig ítrekaðar tilraunir
fyrirtækisins til að framvísa
fölsuðum gögnum.
Því miður er erfiðara að fá
upplýsingar um sögu hásetanna
á Hanseduo sem einnig eru
ráðnir af áhafnaleigu í
Limassol á Kýpur. Þeir voru
nefnilega staddir um borð í
skipi skráðu í Panama í eigu
þýskra aðila en með ráðningar-
samninga við fyrirtæki í
Limassol á Kýpur. Skipstjóri
Hanseduo harðbannaði þeim
einfaldlega að eiga nokkur
samskipti við íslenska félaga
sína.
ingar hentifánanotkunar íslenskra
skipafélaga og innflutning á réttlausu,
ódým vinnuafli, hlýtur að vekja alla
aðila til umhugsunar um hvert stefnir.
Er það eðlilegt að íslenskt skipafélag
skuli skipta út sínu eigin skipi, mönn-
uðu íslenskum farmönnum, af fastri
áætlunarleið til og frá landinu, og
noti í staðinn þýskt skip, skráð á
Antíka Barbúda með filipseyska og
pólska áhöfn sem er að hluta til með
ráðningasamninga við fyrirtæki á
Kýpur? Er eðlilegt að „óskabarn
þjóðarinnar“ skuli vera með eitt ein-
asta skip undir íslenskum fána? Vilj-
um við tengja íslensk skipafélög við
útgerðir áhafnaleiganna?
Miðstjórn Alþýðusambands Is-
lands hefur ályktað um nauðsyn víð-
tæks samráðs gegn félagslegum und-
irboðum. I samþykkt miðstjórnar
kemur fram að fara verði yfir mál
Technopromexport með fulltrúum
stjómvalda, opinberra eftirlitstofnana,
stéttarfélaga og samtökum atvinnu-
rekenda til að ná fram samstöðu um
leiðir til að spoma við félagslegum
undirboðum. Þegar sú vinna fer af
stað hlýtur ASÍ að gera þá kröfur að
sérstaklega verði farið yfir þætti á
borð við notkun hentifána og áhafna-
leiga.
Umfangið
amkvæmt upplýsingum
eins af áhafnaleigufyrirtækj-
unum á Filipseyjum eru nú um
180 þúsund filipseyskir sjó-
menn á höfunum, flestir á veg-
um áhafnaleiga.
í Manila, höfuðborg Filips-
eyja, eru hátt á fjórða hundruð
skrifstofur sem miðla sjómönn-
um atvinnu um heim allan.
Samkvæmt upplýsingum
Skiparáðs Kýpur vinna um
4100 manns í höfuðborginni
Limassol einni saman hjá
skipafélögum sem skráð eru í
Limassol en starfa erlendis.
FISKVERKENDUR - UTCERÐAMENN!
Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar býður nú um 30 mismunandi námskeið og fyrirlestra fyrir
starfsfólk sjávarútvegsins.
Hluti námsefnis:
Vinnuöryggi • Hreinlætismál • Hráefnismeðferð • Mannleg samskipti
Verkkennsla • Handflökun • Innra eftirlit • Heilsuvernd • Gæðastjórnun • Rekstraráætlanir
Markaðsmál • Kjaramál
Haföu samband efþú ert ífrceðsluhugleiðingum
Starfsfræðslunefnd
fískvinnslunnar
Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, sími 560 9670
Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar heyrir undir Sjávarútvegs-
ráöuneytið og er hlutverk hennar að skipuleggja
fræðslustarfsemi fyrir starfsfólk í fiskiðnaði. Nefndin er skipuð
fulltrúum frá ráðuneytinu, samtökum atvinnurekenda og
Verkamannasambandi íslands.
Aðvönunapbjöllur
Hin illræmdu útflutningssvæði
Asíu og Suður Ameríku, henti-
fánarnir og áhafnaleigurnar
virðast eiga það sameiginlegt
að vera skipulegar tilraunir til
að brjóta niður kjör og réttindi
launafólks. Sú staðreynd að ís-
lensk verkalýðshreyfing skuli
nú standa í baráttu við afleið-
Um 70% af flotanum sem
fyrirtæki á sviöi útgeröarþjón-
ustu og áhafnaleiga, skráö á
Kýpur sjá um, eru undir erlend-
um fánum.
Á vegum þessara fyrirtækja
starfa um 22 þúsund sjómenn.
8
Vinnan