Vinnan - 01.12.1998, Qupperneq 17
Eldra fólk mikilvægt
á vinnnstöðum
Á vesturlöndum er eldra
fólk sífelt mikilvægari hóp-
ur á vinnustöðum. Þetta á
sérstaklega við um vinnu-
staði þar sem störfin eru
cinstaklingsbundin. Þar
hentar það eldra fólki að
vinna lengur en annars
staðar. Þetta m.a. kom
fram á alþjóðlegri vinnu-
verndarráðstefnu, sem ný-
lega var haldin í Kaup-
mannahöfn.
Athuganir á viðhorfum
sænskra atvinnurekenda til
aldurs starfsfólks hafa leitt í
Ijós að þeir vilja helst ekki
ráða fólk í vinnu sem er 55 ára
eða eldra. Þetta á sjálfsagt við
um atvinnurekendur í mörgum
öðrum löndum. Nú er það hins
vegar að renna upp fyrir
mönnum að árgangamir se’m
koma inn á vinnumarkaðinn á
næstu árum, em litlir í saman-
burði við eldri árganga. Þetta á
m.a.við mörg Evrópulönd,
Bandaríkin og Japan. Af þess-
um sökum beinist nú athyglin
að því með hvaða hætti er best
koma í veg fyrir þeir eldri
hætti störfum of snemma.
Danska ríkisstjómin veitti t.d.
í vor 25 milljónum danskra
króna til sérstaks átaks í þessu
skyni.
„Það vantar fólk og í mörg-
um starfsgreinum er erfitt að
fá fólk með rétta menntun og
reynslu. I byggingariðnaðin-
um hafa menn séð kostina við
það að ráða eldri, t.d. handiðn-
aðarmenn, sem hafa góða
tillfinningu fyrir því efni sem
þeir vinna með. Sömu reynslu
höfum við frá bönkum og öðr-
um vinnustöðum í fjármagns-
geiranum", segir Leif Simon-
sen hjá dönsku vinnuumhverf-
isstofuninni. Simonsen telur
að víða í atvinnulífinu ráði
fordómar í garð eldra
starfsfólks. Til dæmis að eldra
fólk eigi erfiðara með að læra
og tileinka sér nýjungar. Þess
vegna er þeim eldri ekki gef-
inn kostur á að sækja nám-
skeið. Vandamálið er ekki ald-
ur einstaklinganna, samkvæmt
því sem Simonsen heldur
fram. Spumingin er fyrst og
fremst sú hvort fyrirtækin eru
tilbúin að aðlaga störfin ólík-
um einstaklingum. Meðal ann-
ars í þeint tilgangi að þeir
haldi áfram í stað þess að
hætta. „Með réttum aðferðum
geta allir lært. Ef til vill tekur
það dálítið lengri tíma fyrir þá
eldri en eldra fólk á hins vegar
auðveldara með að sjá hlutina
í stærra samhengi og það er
mikill kostur", segir Leif
Simonsen.
Úrfréttabréfinu Arbetsliv-
direkt nr. 8 1998
Víða í atvinnulífinu ríkja fordómar í garð eldra starfsfólks.
Með réttum aðferðum geta allir lœrt, segir í greininni.
Fyrirtækin hagnast á því að jafna lilut kyiijanna
Riitta Partinen, framkvæmda-
stjóri jafnréttismála hjá SAK í
Finnlandi, segir bæði launafólk
og atvinnurekendur hagnast af
jafnrétti kynjanna á vinnumark-
aði.
Norðurlöndin em oft talin vera til
fyrirmyndar í jafnréttismálum.
Beinar niðurstöður í þessum efnum
eru hins vegar langt frá því að vera til
fyrirmyndar að mati Riittu Partinen
hjá finnska alþýðusambandinu. I
Finnlandi, eins og í öllum ríkjum
heims, standa konur ennþá höllum
fæti í atvinnulífinu, jafnvel þó að
mismununin birtist á „mýkri hátt“ en
annars staðar, eins og hún orðar það.
- Fyrr á tíðum trúðum við því að
mismununin myndi hverfa með
bættri löggjöf, þegar konur fengju
eins mikla formlega menntun og
karlar og þegar vandamálið við að fá
bamagæslu fyrir ung böm væri ekki
lengur til staðar. Á þessum áratug
höfum við þurft að viðurkenna að
þetta dugir ekki til, segir Riitta. - Við
höfum neyðst til að endurmeta skil-
greiningar okkar á ástæðunum fyrir
því hvers vegna þau fjölmörgu mikil-
vægu skref sem stigin hafa verið til
að skapa skilyrði fyrir jafnrétti kynj-
anna skili svona fáum áþreifanlegum
niðurstöðum á vinnumarkaðnum.
Riitta telur að ímynd jafnréttis í
Finnland geti verið hluti skýringar-
innar. - Við emm orðin vön mismun-
un sem gerir okkur blind gagnvart ó-
jafnrétti. Almennt séð skilja stjórn-
endur fyrirtækja ekki mikilvægi jafn-
réttis og það viðheldur aðgerðarleysi
þeirra og mismunun. Sumt fólk forð-
ast meira að segja að knýja á um
jafnrétti því það óttast að verða ein-
angrað og stimplað vandræðafólk.
Löggjöfin og samningar um jafnrétt-
ismál em ekki nógu vel þekkt og loks
skortir einfaldlega vilja.
FyniPtækin eru að taka við sép
- Meðan á efnahagslægðinni stóð í
byrjun 10. áratugarins vildu sumir
ráðherrar/embættismenn og stjórn-
málamenn senda kvenfólk heim af
vinnumarkaðnum eða takmarka at-
vinnuþátttöku þess við hlutastörf,
segir Riitta. - Mikill meirihluti
kvenna hafnaði þessum hugmyndum
og krafðist fullrar atvinnu. Finnskar
konur vita af eigin reynslu að fjár-
hagslegt sjálfstæði er besta trygging-
in fyrir öryggi og heilbrigðu sjálfs-
mati.
Þegar talið berst að möguleikun-
um til framfara segist Riitta verða vör
við nýja þróun sem binda megi mikl-
ar vonir við. Að undanfömu hafi orð-
ið vart aukins og vaxandi áhuga með-
al atvinnurekenda á jafnrétti kynj-
anna. - Lykilatriðið er að þeir em að
átta sig á að þeir græða á þessu, segir
hún. - Það er vaxandi skilningur á því
að jafnrétti á vinnustaðnum er ekki
aðeins spurning um viðhorf heldur
skiptir það fyrirtækið miklu máli fjár-
hagslega. Jafnrétti á vinnustað leiðir
af sér betri vinnuanda, ánægðara
starfsfólk og þar af leiðandi aukin af-
köst. Starfsfólk verður stöðugra í
starfi og, eins og stjómendur em að
átta sig á, ímynd fyrirtækisins batnar
bæði innanlands og utan.
Riitta segist sjá þróun í þessa átt
meðal margra fyrirtækja. Jákvæðari
nálgun leiði síðan nær sjálfkrafa til
breytinga. Hún bendir á efnaiðnað-
inn, eða Irlandsdeild fjölþjóðafyrir-
tækisins Akzo-Nobel, sem dæmi.
Þegar menn áttuðu sig á því að engar
konur sátu í stjóm fyrirtækisins var
gerð fimm ára áætlun um virkar að-
gerðir í jafnréttismálum sem leiddi til
svo skjótra breytinga að í dag er ekki
einu sinni þörf á að ræða þessi mál
frekar.
Fypipmyndap banki
Það er ýmislegt í bígerð til að jafna
stöðu kynjanna í Finnlandi að sögn
Riittu. Til að mynda hafa aðilar
vinnumarkaðarins samþykkt að gera
tilraun um aukið jafnrétti sem nær til
tíu vinnustaða í ýmsum geirum at-
vinnulífsins. Niðurstöður tilraunar-
innar munu liggja fyrir í júní 1999.
Riitta lítur einnig björtum augum
á þá vinnu sem nú er lögð í að búa til
starfsmat til að koma á jafnrétti. Að-
eins 300.000 störf í Finnlandi hafa
verið metin með tilliti til þess hvers
þau krefjast af starfsfólkinu. Fjöl-
mörg störf til viðbótar verða metin á
næstu árum og á það mat að treysta
þann gmnn sem baráttan fyrir bættri
stöðu kvenna byggir þá.
Einstakir vinnustaðir em nú mið-
depill jafnréttisstefnunnar. - Við
emm að reyna að búa til fyrirmyndir
sem aðrir geta lært af, segir Riitta. I
viðræðum aðila vinnumarkaðarins
hefur SAK lagt til að stofnaður verði
„fyrirmyndar-banki“ þar sem safnað
verði saman dæmum um aðgerðir
sem geta nýst sem fyrirmyndir í jafn-
réttismálum. Riitta vonast til þess að
slíkur banki verði búinn til í Finn-
landi haustið 1999 en þá mun Finn-
land stýra leiðtogafundi ESB um
jafnréttismál. Að fundinum loknum
vonast Riitta til unnt verði að setja á
fót evrópskan fyrirmyndar-banka.
Hvað þátt verkalýðshreyfingarinn-
ar varðar segir Riitta mestu skipta að
hreyfingin sýni frumkvæði en ýti
jafnframt undir virkni í grasrótinni.
- Helsta verkefnið er að finna að-
ferðir og leiðir sem gefa af sér ótví-
ræðan árangur, segir hún.
Byggt á netblaði SAK.
Verðlaun fyrir
norrænt sam-
starfsverkefni
I þeim tilgangi að efla norrænt
samstarf á sviði fullorðins- og al-
þýðufræðslu, veitir Nordens Fol-
kliga Akademi, NFA, reglulega
verðlaun til verkefna sem falla
undir þetta viðfangsefni. Verðlaun-
in fyrir 1998 nema alls 10.000
sænskum krónum. Verðlaunin að
þessu sinni hlaut verkefnið Nor-
disk Hándverksforum.
Nefndin sem valdi bestu um-
sóknimar var þeirrar skoðunar að
þrjú verkefni, af þeim 12 sem sótt
var um verðlaun til, væm best. Það
fyrsta var verkefni sem kallast
Embla, frá norðurhluta Svíþjóðar
og gekk út á vikunámskeið ætlað
konum, atvinnulausum og fólki
með litla formlega skólagöngu að'
baki, á aldrinum 30-65 ára. Nám-
skeiðið skiptist þannig, að fyrst var
þriggja daga hópvinna um afmark-
að viðfangsefni, fjórða daginn var
unnið verkefni og fimmti dagurinn
byggðist á samvem, þar sem flétt-
að var saman áherslum á þroska
einstaklingsins og hópvinnu.
Annað verkefnið heitir Mann-
eskjan í öndvegi og byggðist á því
að dregin vom saman og fléttað í
eina heild verkefnum frá þremur
löndum, Noregi, Danmörku og
Finnlandi.
Þriðja verkefnið og það sem
hlaut verðlaunin að þessu sinni var
verkefnið Nordisk Hándverks-
forum. Hér er um samstarfsverk-
efni Dana, Svía og Norðmanna að
ræða. I umsögn úthlutunamefndar
segir að hér sé um spennandi
fmmkvæði að ræða sem geti sam-
einað mismunandi sjónarhom leik-
manna, fagfólks og fræðimanna.
Útgangspunkturinn er gamalt
handbragð, vinnuaðferðir hand-
verksfólks og reynsla sem er feng-
in í leik og starfi. Hér er um mikil-
væga menningarlega, félagslega
og efnahagslega arfleifð að ræða
sem aukin heldur tengist nýrri sýn
á umhverfismál. Markmiðið er að
koma á fót norrænu rannsóknar-
setri um handverk.
Helstu viðmiðanir úthlutunar-
nefndarinnar voru, að verkefnin
hefðu norræna vídd, tengdu saman
hefð og framtíðarsýn, rannsóknir
og aðgerðir, frístundahandverk og
það sem stundað er í atvinnuskyni.
Sendum félögum okkar ogfjölskyldum þeirra
hátíðakveðjur og óskir umfarsœld á komandi ári.
Þökkum samstarfið á árinu.
G
fíus sssímmum
ÞJÓNUSTUSAMBAND
ÍSLANDS
ffi
w
Landssamband
ibnverkafólks
Rafiðnaðarsamband
íslands
HuJI
Landssamband.
íslenzkra
verzlunarmanna
Sjómannasamband
íslands
=*= Samíðn
Illl SAMBANDIÐNFÉLAGA
Vinnan
17