Vinnan - 01.12.1998, Page 18
í alvöru talað#
Guðmundur Rúnar Árnasnn skrilar
Konnr
í pólltfk
Engum blandast hugur um það að
konur eiga erindi í pólitík. Að
minnsta kosti sumar konur - rétt eins
og sumir karlar. Það þarf heldur ekki
að deila um það að fleiri konur gegna
nú áhrifastöðum í pólitík en fyrir t.d.
20 árum síðan. Astæðumar eru vafa-
lítið margar og flóknar. Sjálfsagt hef-
ur Rauðsokkahreyfingin haft sín á-
hrif, kvennaframboðin, breytingar á
vinnumarkaði og almenn viðhorfs-
breyting í samfélaginu. Allir hafa
þessir áhrifaþættir síðan áhrif hver á
annan og útilokað að segja hvað er
orsök og hvað afleiðing. Sennilega
sem betur fer. Það væri lítið gaman
að því að fylgjast með pólitík ef allir
væru sammála um það eftirá hvað
hefði leitt til hvers. Að ekki sé talað
um ef maður vissi það fyrirfram.
Eitt er þó víst. Allir vilja eigna sér
þessar breytingu og allir segja betur
má ef duga skal. Sennilega er lrka
hvort tveggja rétt í þessu tilviki. Þetta
er nefnilega svo óskaplega flókið
mál. Félagsmálaráðherra hefur skipað
nefnd til að fjalla um málið og vekja
athygli á nauðsyn Jtess að auka hlut
kvenna í pólitík. Osköp hafa nú til-
burðimir verið á lágu plani. Mynd af
Steingrími J. með púða innan á sér,
Guðnýju Guðbjömsdóttur að burðast
við að pissa í karlaklósett og Davíð
Oddssyni á hælaháum skóm. Felst
jafnréttið í því að karlar fái að ganga
með börnin? Eða að konur pissi
standandi? Eða e.t.v. því að karlar
gangi í hælaháum skóm? Þetta á sér
örugglega allt djúpar skírskotanir, en
þær em þá svo djúpar að sá sem þetta
skrifar skilur þær ekki.
Tilburðir kvenna í Framsóknar-
flokknum og Sjálfstæðisflokknum til
að efla konur í áhrifastöðum hafa svo
sannarlega verið markvissari. Þannig
sóttist kona eftir varaformennsku í
Framsóknarflokknum og fékk góða
kosningu þó ekki næðist sigur, enda
við óvígan her að etja. Fleiri en ein
kona eru að velta fyrir sér for-
mennsku í Sjálfstæðisflokknum.
Sjálfsagt eiga þær þokkalega mögu-
leika. Þetta em tíðindi. Formaður Al-
þýðubandalagsins er kona eins og
kunnugt er.
Ollum er í fersku minni krafa
Kvennalistans um að fulltrúi hans
skipi eitt af þremur efstu sætum á
framboðslistum Samfylkingarinnar í
öllum kjördæmum. Eða var það ekki
krafa? Örlítið hefur verið slakað til
með skilning á kröfunni, þannig að
nú heitir það að „femínisti" skuli
skipa eitt af efstu þremur sætunum.
Opnar það leiðina fyrir konur úr hin-
um flokkunum ? Hver er femínisti og
hver ekki? Hver ákveður hver er
femínisti og hver ekki? Geta jafnvel
karlar verið femínistar? Eru álfar
kannski menn? eins og Magnús Þór
söng um árið. Þegar öllu er á botninn
hvolft, einfaldar þetta ekki málið, því
Kvennalistakonur hafa litið á sig sem
hina einu sönnu prókúruhafa fyrir
femínisk sjónarmið og hinn sanna
skilning á reynsluheimi kvenna.
Vegna kröfu Kvennalistans er
ljóst að konur innan Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags eiga ógreiðari leið
en annars væri. Þær þurfa að slást við
karlana í sínum flokkum og konumar
í Kvennalistanum - sem búið væri að
tryggja eitt af þremur efstu sætum,
væri að þessum kröfum gengið. Það
verður fróðlegt að sjá hverju fram
vindur í þessum málum fram að
kosningum. Sjálfur er ég svo skrítinn
að mér væri nákvæmlega sama hvort
ég setti krossinn minn við framboðs-
lista sem eingöngu væri skipaður
konum - eða körlum. Eina skilyrðið
mitt er að listinn standi fyrir sjónar-
mið sem mér eru að skapi. Og á hon-
um sé það fólk sem ég treysti best til
að vinna þeim framgang. Líkast til er
ég þá ekki feminísti. Þar lokaðist sú
glufan.
6EKK H/EST HflSUfi JÖRP HRYSSfl Hjatt T/L Lflöfl VESfl UHGUR KE/FUH ~~ /3 Ektrr HflGL flP GÉRPU BAHL> UR LOPfl MflL r'ett AR /
HHjöi)
r l
' TKfl rri TftTTfl SK/PT/ 6 jEKSLfl /Z 3
Hut/DUR
FJSKR TORFAN 15 3 V
—— 3£///5 yjDUrt /íL'DR AÐuR 7 VSh/TUf/ VfípGfl HflR 5
DRftGfi Ni.yp4 ()
Sv/uif) FR'ETT
f’ 1 spn< S'flP 7
TflHG/ f
'R Vo/JPu ERK/ F'/EL 1
HLUTpjj £/6.
L'WflST
f 9 áRlflF TflLS VERT 9
Rös/< ' ' ' II 6RIÍHAR K'flLfl R ‘ H W
SUOKKH ftEfl hrltr ftR
VÆGjfl /1 BL‘/T> flRfl HflFfl HUGflD}) u/n /þ II
V£flT>/ Svaj-7
5I<‘ST. HflELflUS HÓTirb % 'flTT n
MHTfj
HfLS! ftjsr/
t KEF/U um íTflHG /3
'OÚK/R KH/EPfl
SNJÖ OG '/S BRf/Vfl 5 KL'fíS ÚL N /i
KLPiK!
'flvó'x7~ UR PjÓD 2, E/HS UM J/ /5
GftLVRfí //vS/yD/S UfíU/J GRflÐfl /0 1 /é /6
BRUNAMÁLASTOFNUN RIKISINS
LAUGAVEGI 59,101 REYKJAVÍK, SÍMI 552 5350
Latið ekki jolaljosin kveikja í heimUinu.
AUKIN ÖKURETTINDI
• leigubifreið • vörubifreið • bópbifreið • eftirvagn
ASÍ félagar athugið!
AUKIN RÉTTINDI = AUKNIR ATVINNUMÖGULEIKAR
OKUSKOU S.G.
heldur námskeið til aukinna ökuréttinda allan ársins
hring. Námskeið hefjast á fjögra vikna fresti.
Ökuskóli S.G.
hefur útskrifað um 900 nemendur eða um 40% þeirra
sem sótt hafa nám til aukinna ökuréttinda frá því
námið fluttist frá hinu opinbera til einkarekinna
ökuskóla.
Hagstætt verð og góðir greiðsluskilmálar
Visa og Euro raðgreiðslur til allt að 36 mánaöa
Skuldabréf til allt að 24 mánaða
Ath! mörg stéttarfélög taka að hluta
þátt í kostnaði fyrir sína félaga.
ÖKUSKÖLI
SÍMI 5811919
LEIQUBIFREID • VÖRUBIFREID ■ HÖPBIFREID
Lausnarorð síðustu krossgátu eru: IVIargt á Guð ógefið
Sendum félögum okkar og flcjlskyfdum
þeirra hátíðarhveðjur og óskir
um fersæld á komandi ári
Sveinafélag járniónaðarmanna, Húsavík
Byggingamannafélagiö Árvakur, Húsavík
VersLunarmannaféLag Húsavíkur
VerkaLýðsféLag Húsavíkur
18
Yinnan