Stefnir - 01.11.1960, Page 8
BIRGIR KJARAN:
AUSTRÆN UTANRÍKISSTEFNA
Hér er til meðferðar stefna annars mesta stór-
veldis jarðar í utanríkismálum.
Fyrir síðari heimstyrjöld spenntu greipar
kommúnismans aðeins yfir 180 milljónir manna
búandi í Sovét-Rússlandi, en nú, 30 árum síðar,
ríkja þeir yfir 800—900 milljónum, þriðjungi
mannkyns, sem byggir fjórðung jarðar. Innan
vébanda kommúnistaríkjanna er að finna 50%
af járnmálmi veraldar, 60% af kolaforðanum,
70% af saltbirgðum heims og 90% af magne-
síumnámum, auk annarra náttúruauðlinda. I
skjóli þessa mannafla og náttúruauðlegðar er
skákað á taflborði alþjóðastjórnmálanna. —
Ymist með gjafmildri hönd eða krepptum hnefa.
Til þess að skilja utanríkisstefnu kommúnista-
ríkjanna þurfum við að kynnast hugmyndakerfi
þeirra, vinnubrögðum og starfsaðferðum, að því
er snertir utanríkisstefnu og alþjóðamál. Slíkt
er bezt að gera með því að finna stefnu þeirra
og starfsaðferðum stað í orðum fræðimanna
þeirra og þjóðarleiðtoga.
Saga kommúnismans sem staðreyndar í utan-
ríkismálum hefst árið 1917.
Upphafsorð bókarinnar U.S.S.R. to-day and
tomorrow, sem gefin er út af Foreign languages
publishing house í Moskvu árið 1959, hljóða
svo:
„25. október 1917 hófst nýtt tímabil í sögu
mannkynsins, þegar verkalýður Rússlands, undir
forustu kommúnistaflokksins og Lenins, kom á
fót fyrsta sósíalistiska ríki veraldar.“
6 STEFNIR
Þetta ríki tók upp nýja þjóðskipulags- og
stjórnarhætti, sem byggðir voru á kennisetning-
um. Það tók einnig upp nýja utanríkisstefnu, sem
byggðist á kennisetningum. — En hverjar voru
þær kennisetningar?
Erfiðleikarnir við að henda reiður á stefnu
kommúnista í utanríkismálum eru, að þeir tala
þar tungum tveim, eins og á öðrum vettvangi,
og orð og athafnir falla sjaldnast saman. Sjálf-
ur viðurkennir Stalin þetta, þegar hann á einum
stað í ritum sínum segir:
„Orð eiga enga samleið með aðgerðum. —
Hvað væri þá líka diplómatíið — utanríkisþjón-
ustan — yfirleitt? Orðin eru hlutur fyrir sig,
aðgerðirnar annað mál. Fögur orð eru gríma
Ijótra aðgerða.“ Þetta segir Stalin hreinskilnis-
lega í hópi trúbræðra sinna. —
Lenin er ekkert varfærnari, undir fjögur augu,
þegar hann ritar:
„Loforð eru eins og skurn á köku, — bökuð
til að brjótast.“ — Þessum vísdómsorðum læri-
föðurins mikla hefur og trúlega verið framfylgt
í skiptum Sovét-Rússlands við önnur þjóðríki.
Það var að vísu farið með löndum í fyrstu og
friðsamlega ýtt úr vör. — Illa mannað, veilc-
byggt skip þoldi ekki mikil áföll.—
I Rússlandslexikoninum er kapítuli með fyr-
irsögninni: „Friðsamlegt samlíf þjóða.“ Þar
segir:
„Friðaryfirlýsing Lenins segir, að öll alþjóða-
vandamál skuli leysa friðsamlega.“