Stefnir - 01.11.1960, Side 9

Stefnir - 01.11.1960, Side 9
Það var líka rétt áður en Rússar steyptu sér út í heimstyrjöldina síðari, árið 1939, að Stalin sagði: „Við viljum frið.“ En þessar friðaryfirlýsingar eru ekki kjarni málsins, enda í hróplegri mótsögn við stað- reyndir sögu síðustu áratuga. Þær skýra atburðarásina betur sumar þeirra tilvitnanna, sem hér fylgja á eftir. Lenin sagði: „Valið er aðeins milli tvenns: Borgaralegs eða sósíalistísks hugmyndakerfis. Það er engin millileið til.“ Mao-Tse-tung, einn mesti fræðimaður hins „vísindalega sósíalisma“, sem flytja þykir ómengaðastar kenningar þeirra gömlu lærifeðra, segir í bók sinni, Ritgerðir, er útgáfufyrirtæki Kristins Andréssonar gaf út árið 1959: „Osættanlegar mótstæður er ein sú mynd, sem barátta andstæðnanna tekur á sig. . . .“ „Komm- únistum er skylt að halda fast fram fræðikenn- ingum Marx og Lenins um þjóðfélagsbyltingu og hjálpa fólki að skilja, að þjóðfélagsbyltingin er ekki fortakslaust nauðsynleg, heldur fyllilega framkvæmanleg. .. . “ „Þess vegna hlýtur slík bylting að vera þáttur í sósíalistískri heimsbylt- ingu verkalýðsins. . . .“ „Þessi hárrétta kenni- setning, sem kínverskir kommúnistar hafa hald- ið fram, styðst við fræðikenningar Stalins....“ „Eins og nú er komið í beiminum, er vígorðið um „hlutleysi“ eintóm blekking. . . .“ —• Þeir ættu að kynna sér betur þessar ritgerðir, komm- únistarnir og fylgilið þeirra, sem hæst hrópar þessa dagana um „hlutleysi“ Islands í utan- ríkismálum. Þeir kveða töluvert fastar að orði, Lenin og Stalin og raunar fleiri andans höfðingjar sósíal- ismans, um viðfangsefnið stríð og frið. Lenin segir á einum stað í verkum sínum: „Við höfum alltaf sagt, að það væri heimska fyrir hina byltingarsinnuðu öreiga að hafna byltingarsinnuðum styrjöldum, sem geta verið nauðsyn í þágu sósíalismans.“ I riti sínu „Marxisminn og þjóðernis- og ný- lendumálin“ segir Stalin: „Þeir tímar geta komið, að sjálfsákvörðunar- réttur þjóðar lendir í andstöðu við æðri rétt, rétt verkalýðsins til þess að tryggja sér völdin. Undir slíkum kringumstæðum — það verður að segja það umbúðalaust — þá má sjálfsákvörð- unarrétturinn ekki verða til hindrunar alræði öreiganna.“ — I krafti þessarar formúlu var sjálfákvörðunarréttur og sjálfstæði ungversku þjóðarinnar brotið á bak aftur. Hann hét Kretov, rússneski lærimeistarinn, sem orðaði sömu hugsun þannig: „Styrjaldir hafa verið framfarasinnaðar, þær hafa stuðlað að framförum mannkyns.“ — Svo mörgu eru þau orð. Hreinlega gekk þó Manuilsky að verki í ræðu, sem hann flutti árið 1931 í Moskvu við Lenin- skólann fyrir pólitískan hernað, en hann komst svo að orði: „Stríð upp á líf og dauða milli kommúnism- ans og kapitalsmans er óhj ákvæmilegt. I dag erum við vissulega ekki nógu öflugir til þess að hefja árás. Okkar tími kemur eftir 20—30 ár. Við verðum að svæfa borgarastéttina, þess vegna munum við hefja mestu friðarsókn allra tíma — Auðvaldsríkin, svo heimsk og úrkynjuð sem þau eru, munu kjósa sér það hlutskipti að verða þátttakendur í eigin útrýmingu. Þau munu bíta á agn friðarins. Um leið og vörnum þeirra lýkur, munum við mola þau með krepptum hnefa okk- ar.“ — Þetta er hið pólitíska og siðferðislega vegar- nesti, sem hið nýja ríki sósíalismans byggði ut- anríkisstefnu sína á, og kennisetningum hennar hefur vendilega verið fylgt. — Þeir hafa talað tungum tveim. — En sum orð eiga því miður samleið með aðgerðunum, og allt hefur verið hægt að réttlæta. — Rússar hafa gert orð franska stjórnmálamannsins Clemanceaus að sínum: STEFNIR 7

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.