Stefnir - 01.11.1960, Blaðsíða 18

Stefnir - 01.11.1960, Blaðsíða 18
fund Langbarðakonungs á ítalíu í liðsbón. Sá hét Desideríus. Af ýmsum ástæðum var honum ljúft að verða við þessari beiðni. Svo að eitt- hvað sé nefnt, má geta þess, að Karl hafði fyrir skömmu rekið frá sér konu sína og sent hana heim til föðurhúsanna. Þessi kona var Lang- barðaprinsessa, dóttir Desideríusar. Langbarða- kóngur taldi nauðsynlegt til hjálpar hinum nauð- stöddu konungssonum að fá þá krýnda til kon- ungs. Páfinn reyndist þó ekki fáanlegur til að framkvæma athöfnina. Tók þá Langbarðakon- ungur að ygla sig heldur betur við Rómabiskup. Varð hinn heilagi faðir við það hræddur og bað Frankakonung um 'hjálp, þar e@ hann vissi, að frá Býzans var engrar aðstoðar að vænta. Karl lét ekki standa lengi á hjálpinni. Hann hélt með her til Ítalíu haustið 773 og réðst umsvifalaust á Langbarða. Vörnin hjá þeim fór strax í mola. Desideríus lét loka sig inni í höfuðborg sinni, Pavíu, með her sinn, og um hana sat Karl í átta til níu mánuði, unz hún varð að gefast upp vegna matarskorts og sjúkdóma. Var þar með allri vörn lokið af hálfu Langbarða og saga ríkis þeirra á enda. Desideríus var lokaður inni í klaustri, en Karl lét krýna sig konung Langbarða. Gerðist þetta sumarið 774. Karl lagði undir sig fleiri lönd, þ.á.m. Norð- vestur-Þýzkaland, sem þá hét Saxland. En það tók hann miklu lengri tíma en að vinna Lang- bararíkið. Saxland var á þessum tíma aðallega byggt þrem þjóðflokkum. Hétu þeir Austfalir, Vestfalir og Angarar. Þessir þjóðflokkar voru rammheiðnir og mjög herskáir. Stunduðu þeir mjög herferðir til rána inn í lönd nágranna sinna, og nábúi þeirra í vestri og suðri var ein- mitt Frankaríkið. Til að vernda ríki sitt fyrir ágangi iþeirra fylgdi Karl í fyrstu þeirri stefnu, sem forráðamenn Frankaríkisins höfðu tíðkað um langa hríð: að fara í einstakar herferðir inn í Saxland til að vekja virðingu fyrir Frankarík inu í brjóstum Saxa, svo að þeir leggðu síður í ránsferðir vestur og suður á bóginn en ella. Hins vegar var það ekki ætlun Karls í þessum fyrstu herferðum að leggja undir sig ný lönd. En það varð smám saman ljóst, að þessi stefna náði ekki tilgangi sínum. Þegar Karl var farinn með her sinn og gisfa, sem hann lók, risu Saxar upp aftur og tóku á ný til við ránsferðir sínar. Sú stefna varð því ofan á með tímanum að her- taka allt landið smám saman, leggja það undir Frankaveldi og kristna íbúana. Um sumarið 777, eða fimm árum eftir að Karl hafði farið fyrstu herferð sína til Saxlands, leit vel út með þetta. Þá um sumarið1 kom fjöldi Saxa til Paderborn í Saxlandi til að votta hon- um hollustu sína og taka skírn. 1 fylgdarliði Karls var þá þegar talað um, að Saxar myndu aimennt hafa afsalað sér sjálfstæði sínu. Um þessar mundir hafði Karl og komið upp nokkr- um köstulum í Saxlandi. Brátt kom í ljós, að Saxar voru ráðnir í að selja sjálfstæði sitt dýru verði. Næsta ár, 778, var Saxland í einu uppreisnarbáli, og nú höfðu Saxar eignazt harðsnúinn foringja þar sem Widu- kind var. Með mikilli fyrirhöfn tókst Karli loks að bæla þessa uppreins niður en það tók tvö ár. Var nú friður um skeið, unz nýja ófriðar- bliku dró á loft. Sumarið 782 var allmikill frankverskur her á leið gegnum Saxland til að herja á Serba, er bjuggu suðaustan við Þyringa- land. Saxar gerðu hernum fyrirsát og brytjuðu hann niður. Fjöldi foringja og háttsettra manna við hirð Frankakonungs var drepinn þarna. — Þetta var mikið áfall fyrir Karl, en hann ákvað að hefna þess grimmilega. Ifann hélt til Sax- lands hið bráðasta með her sinn og réðst á fjand- menn sína. Við Verden, sem er smáborg í Vestur- Þýzkalandi rétt við ármót Aller og Weser, vann hann mikinn sigur á Söxum. Hann tók 4500 fanga, sem voru allir líflátnir miskunnarlaust. Þar með var baráttunni þó ekki lokið. Saxar háðu enn tveggja ára harðvítuga baráttu fyrir 16 STEFNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.