Stefnir - 01.11.1960, Blaðsíða 28

Stefnir - 01.11.1960, Blaðsíða 28
GuS varðveiti þig Óli minn að tala svona! Hann brá hnífnum og skar hausinn af fiskin- um og gáði !ekki að' sér fyrren hann var farinn að sarga ofaní borðplötuna. Hann talaði heitri röddu: Ég hef aldrei sagt neitt og það á kannski sízt við aÖ segja nokkuð núna eftir allan þennan tíma, þegar hann er þaraðauki dauður. En ég man að þú laumaðir kandís í grautinn hans en við fengum ekkert. Og hann gekk í rauðum búð- arsokkum meðan við flæktumst um í stagbætt- um görmum einsog grýlubörn. Og svo var hann alltof fínn til aö snerta á nokkru nema þessari fiðlu. Við fengum að fara á sjóinn, við hinir. Ekki þar fyrir mig langaði ekkert tilað fara til útlanda og spila á fiðlu. Eg hefði farið á sjóinn þarsem ég þekki mig. Grátt höfuð hennar hafði hnigið að bring- unni og mjóar herðarnar lögðust að hrukkótt- um vöngum. Hún grét. Hún grét með saman- bitnar varir og uppglennt augu og í stað þess að sefa bræði hans, virtist þessi sári djúpsótti grátur æsa hann enn frekar. Hann lagði frá sér hnífinn og þurrkaði af höndunum á sér í peysuna. Ég hef aldrei talað um það, sagði hann, því ég hef verið ánægður á sjónum og hef nóg fyrir mig og mína. Það er ekki það. Það er hitt sem hleypir í mig illu blóði. Þú horfir á eftir þess- um fjórum og það sér þér enginn bregða og ég var stoltur af þér og hugsaði með mér að ég ætti þó móður sem kynni að taka lífinu. En núna, þá er einsog allt sé tapað, bara af því hann einn er farinn. Svona skelltu nú í þig kaffinu, það er orðið snarpheitt. Hún strauk báðum handarbökum um augun á sér, síðan féllust henni hendur og hún starði tómlega framfyrir sig. Ég hélt nú kannski að Guð mundi lofa mér að hafa Nicolai hjá mér, þó hann tæki hina. Það hnusaði í sjómanninum: Hann Guð, já. Svo lauk hann við að siægja fiskinn og þurrk- aði innanúr vaskinum með votri dulu. Hún sat þögul og snerti ekki á kaffinu sem hann hafði sett fyrir hana. Hann þurrkaði af höndum sér í peysuna og strauk úfinn hárlubbann frá enninu. Hún Stína var að tala um að þú flyttir þig til okkar meðan á þessu stendur, sagði hann, og ég segi fyrir mig að ég kann ekki við að vita af þér einni. Ég er ekki ein, sagði gamla konan og leit nú í áttina að lokuðum stofudyrunum. Hann fylgdi augnaráði hennar. Nikki verður þér varla til mikils gagns úr þessu, sagði hann. Það líður ekki á löngu áðuren ég fer á eftir honum, sagði gamla konan, bráðum sé ég harrn aftur. Presturinn sat makindalega bak við stórt skrif- borð og benti henni að fá sér sæti. Eíndirhakan lá í fellingu útyfir stífan flibbakragann, hann hneppti að sér vestinu en hafði ekki farið í jakkann. Hún tyllti sér á stólbrúnina og lét fara sem minnst fyrir sér einsog fugl sem er viðbú- inn að fljúga upj) við minnsta hljóð, horfði í gaupnir sér og beið meðan presturinn fletti blöðum fyrir framan sig. Bíðum við, Adolf Nicolai Petersen, sagði prest- urinn og ræskti sig, þetta er svo margt sem mað- ur jarðar, þetta getur ruglast fyrir manni. Sjá- um til, hérna kemur það. Hann dró nokkur blöð útúr bunkanum og rýndi í þau. Svo ræskti hann sig aftur og dró upp úr vasa sínum glæran poka með grænum töflum. Hann stakk handfylli uppí sig. Maður verður svo slæmur í hálsinum af að tala svona, sagði hann, má kannski bjóða yður. Hann beið ekki eftir svari en grúfði sig yfir blöðin. 26 STEFNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.