Stefnir - 01.11.1960, Page 29

Stefnir - 01.11.1960, Page 29
Adolf’ Nicolai Petersen, tónlistamaður, já- humm, lék á fiðlu? ekki satt. Og svona ungur ? Hjartabifun. Já, það þarf ekki aldurinn til. En það er margt fallegt hægt að segja um unga menn sem fara svona snögglega. Við þurfujn ekki að kvíða því. Sérstaklega af því hann var nú listamaður. Það gefur tilefni tilað segja svo margt. Einu sinni jarðsöng ég ungt skáld. Eg man ennþá eftir þeirri ræðu. Nei, við þurftum engu að kvíða. Ég held það hafi verið ljóðskáld. Hann hallaði sér afturábak í stólnum og horfði nokkra stund þögull til lofts. Hann strauk fingr- um eftir kinnunum á sér einsog hann væri að sannfæra sjálfan sig um að hann væri þarna enriþá. Adolf Nicolai Petersen, sagði hann seinlega. Það er útlent nafn. Ég man ekki beturen þér séuð ekkjan hans Guðmundar sáluga. Ég jarð- söng syni ykkar þrjá í einu, ef ég man rétt. Drukknuðu, var ekki satt? Jú, þeir fóru í sjóinn hér um árið í sama veðr- inn og olíuskipið með alla kínverjana, sagði hún. „Já, ég man, það var óttalegt, sagði prestur- inn, það tók upp kartöflukofa hjá mér í þessu sama veðri. Þrír synir í einu. Það er óttalegt. Það voru hraustir drengir, sagði gamla konan og horfði enn niður fyrir sig og hafði ekki fikað sig aftar á stólinn. Eg man þetta allt saman núna, sagði prestur- inn, þér voruð einsog hetja. Ég sá yður ekki fella tár. Ég man ég sagði við konuna mína að þér væruð hetja dagsins. Ekki eitt tár. En þeir voru allir Guðmundssynir. Hann ræskti sig á ný og fór í vasann eftir grænu töflunum, hagræddi flibbanum og stundi. Svo rýndi hann aftur í blöðin. En þessi ungi maður hefur heitið Petersen, sagði hann loks. Já, eiginlega var hann ekki sonur minn og þó átti hann ekki aðra mömmu en mig, sagði gamla konan, og stundum fannst mér ég ekki eiga annan son. Nú, svo hann var eiginlega ekki sonur yðar, sagði presturinn og fékk sér nokkrar hálstöflur. Það var allt svo undarlegt, sagði gamla konan og lyfti sér ögn í stólnum og sléttaði úr pils- faldinum um Jeið, móðir hans var lausakona og vann fyrir sér í fiski. Hún fór um landið eftir því sem eitthvað var að fá. Hún var dugnaðar- stúlka, rösk til vinnu og áhlaupamanneskja, var mér sagt. Og hafði dálítið gaman af að skvetta sér upp einsog gengur. Kát og fjörug og til í allt. Við vorum svona rétt málkunnugar. Hún gerði mér viðvik þegar mér lá á og strákarnir á versta aldri, hún var hjálpfús, það má hún eiga blessunin og taldi ekki eftir sér að- skjót- ast fyrir mig, ég verð henni ævinlega þakklát. Hún drakk stundum hjá mér kaffisopa og fékk sér snarl, það var hreinasta óvera. Og einu sinni kom hún austan af fjörðum og var þá með hvít- voðung með sér. Hafði eignast hann með ein- hverjum strák sem lét aldrei heyra frá sér. En hún var jafn kát og fjörug og fékk hjá mér kaffi- sopa og sagði mér fréttir. Og spurði hvort hún mætti skilja litla krílið eftir hjá mér meðan hún skryppi niðrí bæ að athuga með vinnu. Ég man það enriþá einsog það hefði verið í gær, hún var búin að hneppa að sér kápunni og beygði sig yfir blessað litla stýrið sofandi og brosti framaní hann og veifaði: revúar, Nicolai, adíu. Svo þakkaði hún fyrir kaffið og hljóp út og síð- an hef ég ekki séð hana. Og gamla konan gerði hlé á máli sínu og horfði nú uppá prestinn sem sat keikur við skrif- borðið. Og nú er hann dáinn. Það setti að henni grát og gömul augun flóðu í tárum. Revúar, Nicolai, adíu, ég man þetta svona greinilega af því hún kom aldrei aftur að vitja um hann.

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.