Stefnir - 01.11.1960, Blaðsíða 40

Stefnir - 01.11.1960, Blaðsíða 40
heyra, ýmist í rituðu máli eða úr ræðustól. Haim sneri aftur heim til Danmerkur og þar fór veg- ur hans sívaxancli, enda þótt hann ætti í margri orrahríðinni við andstæðinga sína. Hann lézt árið 1927. Hin ótalmörgu rit, sem Brandes gaf út fjöll- uðu um hin margvíslegustu efni. Hann ritaði um heimspeki og bókmenntir, hann skrifaði ævi- sögur listamanna, heimspekinga og stjórnmála- manna, hann skrifaði frábærar ferðalýsingar, hann var einn umsvifamesti bókmenntagagnrýn- andi sinnar tíðar og hann lét heldur ekki stjórn- málin afskiptalaus. Honum var ekkert mannlegt óviðkomandi. Ein aðalástæðan fyrir miklum áhrifum Brand- esar er vafalaust sú, hversu mikill ræðumaður hann var. í grein, er Árni Pálsson prófessor ritaði um Georg Brandes látinn í Skírni árið 1927 lýsir hann ræðusnilld Brandesar á þessa leið: „Er hann stóð í ræðustól, talaði hann allur. Hann hafði fullkomið vald yfir rödd sinni, hún gat verið mjúk og ísmeygileg, ertin eða ógnandi, allt eftir því sem við átti. Hvert orð var auð- heyrt um allan salinn, hvort sem hann talaði hátt eða lágt. Yfirbragðið var furðulega breyti- legt og var sem skin og skuggar færu í sífellu yfir andlitið. Honum var það leikur einn að útlista hin flóknustu viðfangsefni þannig, að hvert mannsbarn skildi. Lærdómur hans varð hvorki sjálfum honum né áheyrendum hans og lesendum að byrði. Hann hafði fullkomið vald yfir efninu og þess vegna einnig yfir þeim, sem á hann hlýddu.“ Árið 1920 var gefið út í Kaupmannahöfn safn af tækifærisræðum, er Brandes hélt á árunum 187(3—1919. Ræðusafn þetta, hafði inni að halda 74 ræður um hin margvíslegustu efni. Brandcs skrifaði sjálfur formála að þessari bók og úr honum er upphaf þessa greinarkorns tekið. 1 lokakafla formálans segir hann m. a. „Sameiginlegt með þessum ræðum er ekki að- eins þær grundvallarskoðanir, sem í þeim birtast, heldur ákveðið hljóðfall, ákveðinn leikur með form eins og tíðkast í skrevtingarlist og ákveðin einkenni tónlistar, sem birtast i því, á hvern háit ræðan er flutt og setningarnar eru byggðar upp. Skáldið stígur á bak vængjuðum skáldfáki sínum, ræðumaðurinn heldur sig við jörðina. Ræðumaðurinn hefur ekki vald á máli guðanna og skilur heldur ekki mál fuglanna eins og Sigurður*, heldur fæst hann við örfáar mann- eskjur, þær, sem hann með hæfileikum sínurn reynir að laga eftir sínum hugsunarhætti og sín- um markmiðum. Ræðumaðurinn hefur ekkert himneskt við sig eins og skáldið. Hann heyrir okkar jarðstjörnu til. Hann heldur sig við jörð- ina og hafið, honum finnst hann vera fótgang- andi eða syndandi.“ Glöggt er af þessum orðum, að Brandes hef- ur gert sér góða grein fyrir grundvallaratriðum ræðumennskunnar. I ræðusafni þessu eru tvær ræður, sem snerta ísland. Sú fyrri ber nafnið „Ræða fy rir minni íslands“ og er flutt árið 1900. Þess er ekki getið við hvaða tækifæri hún er flutt, en ekki er ósenni- legt, að hún hafi verið flutt í hópi íslenzkra stúdenta. Síðari ræðan og sú, sem hér verður birt, var haldin fyrir Alþingismenn í þingmanna- förinni til Danmerkur 1906. Georg Brandes sýndi Islandi töluverðan áhuga. Hann hafði mikil áhrif á íslenzka menntamenn á síðari hluta 8. og á fyrri hluta 9. áratugs síð- ustu aldar og kynntist mörgum þeirra persónu- lega. Kenningar Brandesar endurspegluðust í skoðunum Verðandi-manna. í ritgerð, er Einar H. Kvaran ritaði í ísafold 1927 og endurprentuð var í bókinni „Mannlýs- ingar“, sem út kotn á síðasta ári, fjallar höfund- 38 STEFNIR * Sigurður Fánisbani.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.