Stefnir - 01.11.1960, Page 45

Stefnir - 01.11.1960, Page 45
MARY LAVIN: Sagan af syni ekkjnnnar Mary Lavin er fædd í Boston, Massachusetts, en alin upp á írlandi. — Hún stundaði nám við háskólann í Dublin og: á nú heima á írsku sveitasetri. — Mary Lavin hefur gefið út nokkur smásagnasöfn og tvær skáldsögur. Þetta er sagan af syni ekkjunnar, en það er saga, sem endar á tvo vegu. Einu sinni var ekkja, sem bjó í litlu, illa hirtu þorpi, sem stóð rétt undir brattri hæð. Hún átti aðeins einn son, en hann var henni allt. Hún helgaði honum líf sitt. Hún sleit sér út við að vinna fyrir honum. Á hverjum degi lagði hún mikið á sig til að geta haft hann í góðum skóia í kauptúninu, sem var í fjögurra mílna fjarlægð, því kennararnir þar voru miklu betri en þorps- kennarinn, sem hún hafði lært hjá. Hún hafði mikil framtíðaráform fyrir Packy, en hún sagði honum ekki frá þeim. I þess stað hótaði hún 'honum, að ef hann stæði sig ekki vel við námið, mundi hún senda hann í vegavinnu, eða í grjótnámurnar undir hæðinni. En eftir því sem árin liðu gat hver maður sagt sér, að hún elskaði Packy eins og lífið í brjósti sér, og sterku orðin voru aðeins gríma til að fela stolt hennar og gleði yfir honum. Menn merktu þetta af því hvernig hún horfði á eftir syni sínum þegar hann var að hverfa úr augsýn á morgnana og hvernig hún fylgdist með ferðum hans þegar hann var að koma á kvöldin. Jafn- vel Packy duldist þetta ekki. Það var vegna Packys sem hún gekk klukku- stundum saman meðfram veginum þegar hún var að beita kúnni sinni á loðnuna í vegarkantin- um til að vernda þessi fáu strá, sem uxu milli steinanna á blettinum hennar. Það var hans vegna sem hún gekk alla leið til kauptúnsins til að selja fáein kálhöfuð strax og þau voru fullþroskuð. Það var hans vegna sem hún fór á fætur löngu fyrir dag til að tína sveppi, svo hún gæti sparað matarpeningana. Hún þrælaði án afláts, og eins og oft vill verða, þá hafði hún meira upp úr fáum ekrum sínum en bændurnir í nágrenninu höfðu upp úr stórum lendum. Þá hafði hún nógar tekjur af eggjasölu til að kaupa föt á Packy og flestar bækur hans. Þegar Packy var fjórtán ára var hann í síð- asta bekk skólans og skólastjórinn taldi líklegt að hann hlyti námsstyrk frá góðum framhalds- skóla í borginni. Hann var orðinn langur og slerklega byggður. Skapgerð hans hafði einnig orðið styrk undir ströngum aga móður 'hans. Fólkið í þorpinu var farið að sýna honum sömu virðingu og bændasonunum, sem komu heim frá framhaldsnámi á sumrin í bláum fötum með Ijós bindi. Og hvenær sem þeir töluðu við ekkj- una hófu þeir hann til skýjanna. Dag nokkurn í júní beið ekkjan við hliðið eftir Packy. Loftið var [>ungt og gufan, sem steig upp úr grasinu, komst ekki upp fyrir lág skýin. •STEFNIR 43

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.