Gisp! - 01.12.1992, Blaðsíða 8
EFNISYFIRLIT
5 Listin háu verði keypt- Laura Valentino
8 Skí nandi blokkir - Halldór Baldursson
21 Myndasöguheimurinn - Þorri Hringsson
27 París er ísbar - Olafur J. Engilbertsson
28 Lalli er veikur - Gunnar Hjálmarsson
30 Gangurinn - Freydís Kristjánsdóttir
32 Hvellurinn mikli og upphaf alheimsins og Stulli - Gunnar Hjálmarsson
33 Matgræðgi - Loustal & Marc Villard
41 Tólf franskir höfundar
46 Óþekkt stærð - Ólafur J. Engilbertsson
47 Tryggöatröll - Bjarni Hinriksson
63 Angouléme - Bjarni Hinriksson
65 Dúfnahúsið - Johanna Schipper
68 Alexios Tjoyas
70 Hazel Cluster og ungfrú Vélmenni - Fabrice Parme
76 Vincent Rueda
78 Fagur dagur formælinga - Erick Rémy
83 Paquito Bolino
84 Góðgerðarmaðurinn - Nicolas de Crécy
86 Fíll inn og rottan - Vincent Rueda
87 Hin (heilaga) þrenning - Bjarni Hinriksson
88 Teddy Transformer - Þorri Hringsson
91 Death Room -Miguel Angel Martin
97 Svarti skóli - Jean Posocco
102 Upphaf íslenskrar myndasagnagerðar - Ólafur J. Engilbertsson
102 Sæmundur fróði - Haraldur Guábergsson
103 Tre yndige smaapiger - Muggur
104 Surtur: pólitísk hrollvekja - Þórarinn B. Leifsson
110 Eldlagið - Tómas Ponzi & Eyþór Arnalds
Utgefandi: Kjarvalsstaóir
Ritnefnd: Þorri Hringsson, Ólafur J. Engilbertsson, Halldór
Baldursson, Bjarni Hinriksson
GISP! útgáfufélag, Laufásvegi 20, 101 Reykjavik og Leifsgötu 8,
101 Reykjavík, simi 25659 og 15145
rátt fyrir eða kannski vegna takmarkaðs upplags og
=— örstnás dreifingarsvæðis hefur Gisp! ávallt haft alþjóðlegar
tilhneigingar. Við höfum birt efni eftir erlenda höfunda og
gisp!-s(igur íslenskar hafa birst crlendis. íslenska myndasagan er
ung ög lítið ber á henni, hún þreifar fyrír sér og Teitar sér
stuðnings. bæði innri og ytri. Uún þarf ekki að fafla í einn
ákveðinn farveg og vill það ekki.
Þessi Gisp!-bók er um margt séfstök og gegnir tvenns
konar hlutverki: annars vegar er hún funmta tölublað tímarits-
ins, sem hóf göngu sína haustið 1990, og hins vegar er hún
sýningarskrá myndasögusýningannnar á Kjarvalsstöðum.
Sýningin ertvískipt í rými og jafnvel fjórskipt, ef vel erað
gáð, en þó ein heild sem sameinast í þessari bók. Franski
hlutinn er farandsýning tólf þekktra nútímahöfunda sem
samanstendur af prentuðum myndum auk upplýsingatexta um
þá. f-'yrir þessa sýningu er sérstaklega bætt; við ftumteikningum
eftir höfundana og: áhersla lögð á Jacques de Loustal. íslenski
hlutinn er kjami Gispl-hópsins ásamt ungum, frönskum teikn-
uram sem eiga það sameiginlegt að hafa stundað nám í bænum
Angouléme og véra um margt á sama róli og íslensku teikn-
aramir.
Sumt af el'ninu í bókinni er ekki á sýningunni. Að því
leyti er sýningarskráin virkari hluti af sýningunni en gengur og
gerist enda myndasögurpar vanari hinni prentuðu síðu en
safhveggjum. Til að undirstrika þátt prentsins liggja fjölmargar
franskar myndasögubækur frammi,: sýningargestum til skoð-
unar og aflestrar.
Að lokum viljum við þakka' sérstaklega Philippe Girerd,
Gunnari Kvaran, Marie-Dominique Blondy, Loustal og
Frangois Vié fyrir velvilja og ómetanlega aðstoð.
Ftvenær og hvemig Gisp! birtist leSendum sínum næst er
ekki vitað...
BH
Kóputeikning: Loustal
4