Gisp! - 01.12.1992, Page 91

Gisp! - 01.12.1992, Page 91
HIN (HEILAGA) ÞRENNING yrir tæpum tveimur áratugum fór lítill hópur ákafra áhugamanna um --- myndasögur að hittast árlega á kaffihúsum Angouléme-borgar þar sem þeir buðu uppáhaldshöfundunum sínum í glas, sögðu skrýtlur eða lásu upp ljóð og grúfðu sig yfir teikningar. Svo vatt þetta upp sig og í dag umturnast borgin síðustu helgina í janúar þegar tugþúsundir lesenda, höfunda, útgefenda, blaða- manna og sérfræðinga streyma til hennar og Alþjóðlegu myndasöguhátíðarinnar (Salon International de la Bande Dessinée). Þessi sýning/hátíð/markaður fær gífurlega umfjöllun í fjölmiðlum, útgefendur miða helstu útgáfudaga við hana og þar eru afhent Alph'Art-verðlaunin, eins konar Oskarsverðlaun myndasögunnar. Vöxtur og viðgangur hátíðarinnar tengist stjórnmálum. Hægrimenn höfðu löngum ráðið í Angouléme en upp úr 1980 kornust sósíalistar til valda þar, líkt og í ríkisstjórn og forsetaembætti. Nýjar áherslur fýlgdu og með rokkráðherrann Jack Lang í fararbroddi ákváðu sósíalistar að Angouléme yrði vagga myndasög- unnar. Auk þess að styrkja sjálfa hátíðina og koma á sérstakri myndasögudeild innan myndlistaskóla borgarinnar var hafist handa um byggingu lista-, rann- sókna- og vinnumiðstöðvar fýrir myndasöguna (Centre National de la Bande Dessinée et de l'Image). Þessi þjóðarbókhlaða var vígð fýrir tveimur árurn og stendur skammt fýrir utan miðbæ Angouléme, nálægt myndlistaskólanum, og minnir á vísinda- skáldsögu. Arkítektinn notfærði sér gamlar, yfirgefnar verksmiðjur, sem til staðar voru, og byggði hálfpartinn ofan á þeim. I byggingunni er safn með urn 2000 frumteikningum höfunda, í flestum tilvikum heilar síður úr sögum. Bókasafnið, sem geymir tugþúsundir bóka, tímarita og pappíra, er að mestu er ætlað fræði- mönnum og blaðamönnum. Einnig eru í byggingunni nokkrir salir sem ætlaðir eru til kvikmyndasýninga, fýrirlestra og fundarhalda og gríðarlegt rými er ætlað fýrir tímabundnar sýningar þar sem flóknar leikmyndir, myndbönd, hljóð, tón- list og skyggnur birta sköpun höfundarins og mynda ramma utan um verk hans. Stofnunin sér einnig um útgáfu fræðirita og skipuleggur farandsýningar. A meðan myndasöguhátíðin stendur yfir starfa skipuleggjendur hennar náið með CNBDI. Báðar þessar stofnanir leggja mesta áherslu á efni frá hinum frönsku- mælandi löndunt, sérstaklega Frakklandi og Belgíu. Myndlistaskólinn í Angouléme er líkur öðrum sh'kum skólum nerna hann býður upp á þriggja ára nám í myndasögugerð. Nemendur eru um 200. Myndasögudeildin er frekar eins konar vinnustofa og mest áhersla lögð á að nemendur þrói persónulega frásagnartækni. Kennarar eru ekki mjög margir og eftir að fyrsta árinu iýkur gegna þeir fremur hlutverki umsjónarmanna og ráðgjafa. Hefðbundin tímasókn er lítil. Auk myndasögunnar gefst nemendum tækifæri til að vinna í öðrum deildum og í samvinnu við CNBDI er boðið upp á námskeið í tölvugrafík. Af og til koma starfandi listamenn í vinnuheimsóknir og skólinn hefur staðið að útgáfu ýmiss konar blaða og bóka. Þegar myndasöguhátíðin fer frarn halda nemendur sýningu. Árlega senda 2-300 umsækjendur möppur með verkum sínum til skólans. Af þeim eru 60 valdir í sérstakt inntökupróf og 15 síðan teknir inn. Bjarni Hinriksson 87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Gisp!

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gisp!
https://timarit.is/publication/1525

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.