Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Side 4

Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Side 4
4 FJARÐARFRÉTTIR Er þetta löggustöð? spurði telpan og skimaði roggin og ófeim- in í kringum sig. Já, svaraði varðstjórinn og virti hana vandlega fyrir sér. Er ég þá tekin föst? Nei, nei, góða mín, þú ert ekki tekin föst. Okkur langar bara að rabba svolítið við þig. Ukkur finnst ég vera skrýtin? Ekki segi ég nú það, sagði varð- stjórinn og kímdi. Þú segist vera að leita að jólunum. Já, má maður það ekki? Hvað ertu gömul, góða mín? Nýlega tíu. Og heitir Ásdís? Ásdís Magnúsdóttir, kölluð Dísa. Sumir segja ég sé stundum skrýtin. En mér finnst ekkert skrýtið að leita að jólunum. Það er Þorláksmessa í dag. Mér finnst maður ætti að finna jólin í sér fyrst þau eru alveg að koma. Þú hefur þá ekki fundið jólin? Ekki ennþá. En kannski hefði ég fundið þau ef löggan hefði ekki komið í bankann og tekið mig hingað með sér. Varstu þá að leita að jólunum í bankanum? Já. Eiga jólin ekki að koma í bankann eins og annars staðar? Það var ægilega margt fólk þar. Jólin hljóta að koma þangað sem fólkið er. Varðstjórinn horfði um stund þegjandi á telpuna. Svo tók hann upp símtólið og hringdi. Telpan horfði á hann stórum augum. Hún skildi að hann var að tala um hana í símann þótt hann segði lítið. Hvur á að tala við mig? spurði hún ekki alveg eins örugg um sig þegar varðstjórinn lagði tólið á. Varðstjórinn stóð þá upp og kom til hennar. Hann stóð hálfboginn og vandræðalegur yfir henni þar sem hún hnipraði sig saman í stór- um leðursófanum. Ég skal segja þér, telpa mín. — byrjaði hann. Kallaðu mig Dísu, greip telpan fram í fyrir honum. Þá líður mér betur. Ég — ég skal segja þér, Dísa mín, byrjaði varðstjórinn aftur, ég var að biðja ungan mann sem er hérna hjá okkur í lögreglunni að koma hingað að tala við þig. Hann heitir Gunnar og ég veit þér líkar við hann. Hann ætlar að verða prestur, er bráðum búinn að læra til prests. Hann hefur haft sumarbúðir fyrir börn. Hann ætti að geta sagt þér hvar jólin er að finna. Jólin eru þá ekki komin hingað til þín, sagði Dísa. Varðstjórinn fór aftur í sæti sitt áður en hann svaraði. Nei, Dísa mín, sagði hann svo. Ég er hræddur um að þú finnir ekki jólin hér. Ertu kannski hættur að leita að jólunum? spurði Dísa og einblíndi á hann með heiðbláum spyrjandi augum. Ég hef fundið það í dag að margir eru hættir því. Það er sjálfsagt rétt hjá þér. Ég er sennilega í þeirra hópi. — En heyrðu annars, góða mín, viltu ekki eitthvað að borða meðan þú bíður. Ég ætti að geta útvegað þér mjólk og brauð, já og epli. Þú hlýtur að vera svöng, þú ert búin að vera svo lengi að heiman. Hvernig list þér á það? Takk, það er ágætt. Annars er til matur heima. Ég bara gleymdi mér. Ég á strætómiða, — sko! Dísa borðaði með góðri lyst og l leit að jólunum Smásaga eftir stefán Júlíússon var að byrja á eplinu þegar ungi maðurinn kom inn. Hann horfði fyrst hálfundrandi á Dísu en kom svo til hennar og heilsaði henni með handabandi. Varðstjórinn benti honum að koma með sér inn í annað herbergi. Dísa maulaði eplið meðan þeir voru burtu. Þegar þeir komu aftur bað ungi maðurinn Dísu að koma með sér inn í annað herbergi. Hann lét hana setjast hjá sér á bekk og spurði: Hvernig datt þér í hug að fara að Ieita að jólunum hér niðri í miðbæ, góða mín, alla leið ofan úr Breið- holti? Þú heldur náttúrulega ég sé skrýtin, svaraði Dísa að bragði, og kannski er ég eitthvað skrýtin. Allir segja að maður eigi ekkert að vera að leita að jólunum, maður geti alls ekki fundið þau. Jólin eigi bara að koma til manns. En í morgun þegar ég kom á fætur fannst mér þau vera svo langt í burtu og þá fór ég bara að leita. Ég hélt ég fyndi þau kannski hér niðri í bænum þar sem allt fólkið er og jólaskrautið og jólatrén og jóladótið í búðarglugg- unum og jólagjafirnar. Hvenær fórstu að heiman? í morgun þegar pabbi var farinn í vinnuna. Við pabbi erum bara tvö heima núna. Ja, eiginlega er ég sko bara ein heima. Pabbi er alltaf að vinna. Hann þarf alltaf að vera að vinna. Hann fer snemma á morgn- ana og kemur ekki fyrr en seint á kvöldin. Mamma fór á spítalann í gærmorgun svo ég er bara ein heima. Þegar pabbi var farinn í morgun fannst mér jólin vera svo langt í burtu að mér fannst ég þurfa að leita að þeim. Mér fannst eins og þau ætluðu ekki að koma. Svo tók ég bara strætó niður á Lækjartorg til að vita hvort ég fyndi þau ekki. Er mamma þín mikið veik, góða mín? Ég vil heldur þú kallir mig Dísu. Góða mín er eitthvað svo merki- legt. Jæja, Dísa. Þú kallar mig þá Gunnar. Já, það er ágætt, þá getum við betur talað saman. — Sko, mamma er eiginlega ekki veik. Hún er að fara að eiga barn. Hún fór á fæð- ingardeildina í gærmorgun en það var ekki fætt í morgun. Við pabbi erum alltaf að bíða. Áttu þá engin systkini? Jú, jú, ég á tvær systur, sjö og fimm ára, en þær eru fyrir norðan hjá ömmu og afa. Ég vildi ekki fara með þeim. Ég vildi vera hjá pabba um jólin ef mamma yrði ekki heima. Pabbi má ekki vera einn um jólin. Við verðum að vera saman. Þú veist hvers vegna við höldum jól, Dísa mín? hálfspurði Gunnar. Já, já, svaraði Dísa. Ég veit að Jesús fæddist þá til að hjálpa mönnunum að vera góðir. Er það ekki? Jú, Dísa mín. Guð sendi Jesú til að lifa og deyja fyrir okkur menn- ina svo við fengjum að vita að hann er alltaf með okkur. Allir segja þetta, ansaði Dísa. Þess vegna fór ég að leita að jólun- um. Jólin hljóta sko að vera guð og Jesús. Og í morgun fannst mér þau vera svo langt í burtu og mig lang- aði að finna þau. Og hvar Ieitaðirðu að jólunum, Disa mín? Bara alls staðár. Og þú fannst þau ekki? Ekki ennþá. Ég fór í bæinn með níustrætó og nú er klukkan að verða þrjú. Ég er búin að ganga um komast yfir götuna og þá heyrði ég allt en jólin eru ekkert nær mér. söng úr kirkjunni. Svo fór ég bara Fyrstfórégímargarbúðirogskoð- inn í kirkjuna. Þar voru komin aði allar jólavörurnar og bara var jólaljós og það var verið að jarða. svonameðfólkinuþegarþaðvarað það var fátt fólk í kirkjunni og ég kaupa. Ég sá ekki jólin í fólkinu. settist á bekk við dyrnar og hlustaði Allir voru að flýta sér og troðast og á prestinn. Hann sagði að gamli spurja um hvað þetta eða hitt kost- maðurinn sem var dáinn væri aðiogkallaíbúðarfólkiðogenginn kominn til guðs og Jesú og þar var kátur. Fyrst ég var ekkert að væru alltaf jól. Hann hefði fundið kaupa en bara skoða og horfa á eilíf jól, sagði presturinn. En ég var fólkið var ég stundum rekin út. Ein ekki að leita að svoleiðis júlum. Ég búðarstúlkan spurði mig bálvond var að leita að jólum hérna hjá hvað ég væri að flækjast fyrir fólki okkur, á götunum og í búðunum og sem væri að versla. Þegar ég sagðist í vöruskálunum við höfnina þar vera að leita að jólunum varð hún sem pabbi vinnur. Ég var að leita að alveg stjörnubit og skipaði mér að jólum fyrir lifandi fólk. — Svo flýta mér heim. Svo ýtti hún mér út kom einhver maður til mín og á undan sér eins og hún væri hálf- spurði hvað ég væri að gera hér. Ég hrædd við mig. sagðist vera að leita að jólunum. Þá Teikning: Stefán Snær Grétarsson. En þú hélst samt áfram að leita? Já, já, mér fannst svo skrýtið að jólin komu ekkert nær mér þó allir væru að hamast við að kaupa til jólanna. Ég labbaði nokkra hringi kringum Austurvöll og horfði á stóra jólatréð. Það voru menn að láta nýjar perur á það í staðinn fyrir þær sem slokknað hafði á. Ég stoppaði og spurði einn manninn af hverju hefði slokknað á svona mörgum perum. O, þær eru brotn- ar og svo er þeim líka stolið, sagði hann. — Það er þokkalegur jóla- þenkimáti atarna, bætti hann við og var svo sár og reiður. Þá varð ég svo leið að ég var að hugsa um að fara bara heim. — Það var bleyta og slabb á götunum og bílarnir keyrðu eins hart og þeir gátu og gusuðu á fólkið og flautuðu og hömuðust alveg óðir. Og fólkið tróðst og hljóp og sagði ljótt. Eng- inn var neitt betri þótt jólin væru að koma og ég fór að hugsa um Jesú sem vildi að mennirnir væru svo góðir að alltaf væru jól. Ég stóð á gangstéttinni og var að bíða eftir að varð hann afskaplega skrýtinn á svipinn og hvíslaði: Þetta er jarðar- för, telpa mín, ég.held þú ættir að flýta þér heim. — Svo ég stóð bara upp og fór. Og hvert fórstu þá? spurði Gunnar. í bankann þar sem ég var tekin af löggunni. Hvernig stóð á að þú varst tekin? Ég veit það ekki. Ég var bara að labba svona um í bankanum og horfa á fólkið og hvernig það væri að flýta sér að ná í peninga eða borga peninga. Allir voru ægilega alvarlegir á svipinn og sumir vondir. Enginn var glaður og enginn hló. Ég held enginn hafi verið að hugsa um jólin. Samt var jólatré við dyrnar og bjart og hlýtt inni. Ég var þarna lengi en jólin komu ekkert nær mér. Svo sá ég að ein stúlkan fór að horfa á mig og fylgjast með mér. Þá settist ég bara og lét fara lítið fyrir mér. Stúlkan kom þá til mín og spurði hvort ég væri að bíða eftir einhverjum. Nei, sagði ég, ég er bara að leita að jól- unum. Þá horfði hún lengi á mig eins og maðurinn í kirkjunni og fór svo frá mér. Eftir dálitla stund kom hún aftur með lögguna sem fór með mig hingað. Þú hefur þá ekki fundið jólin ennþá, sagði Gunnar. Nei, ekki ennþá. En kannski getur þú hjálpað mér. Maðurinn frammi segir þú sért bráðum orðinn prestur. Eru prestar ekki til að finna með manni jólin? Gunnar horfði langa stund á Dísu án þess að segja orð. Loks spurði hann: Hvað heitir hún mamma þín, Dísa mín, og hvar liggur hún? Dísa var fljót að svara þessu. Þá reis Gunnar þegjandi á fætur og gekk fram fyrir. Eftir stutta stund kom hann aftur og sagði: Ég hef góðar fréttir að færa þér, Dísa mín. Þú ert búin að eignast bróður. Hann var að fæðast. Mömmu þinni og honum líður vel. Pabbi þinn veit þetta ekki einu sinni. Þú ert sú fyrsta sem færð að vita það. Og þú mátt koma á fæð- ingardeildina að sjá bróður þinn. Ég ætla að keyra þig. Dísa horfði í fyrstu sem steini lostin á Gunnar; hún var alveg lömuð. Svo var eins og stífla losnaðt. Húr. hló og.grét í senn og kom ekki upp orði. Loks stundi hún þó: Pabbi. Pabbi verður að fá að vita þetta strax. Kannski kemst kann ekki í síma. Hann vinnur svo mikið. Sagðirðu ekki að pabbi þinn ynni hérna við höfnina? Jú, það er ekki langt héðan. Ég verð að fara til hans. Við förum bæði til hans, sagði Gunnar. Eftir hverju erum við að bíða? Hann vill sjálfsagt koma með okkur á fæðingardeildina. Gunnar beið í bílnum meðan Dísa og faðir hennar fóru inn á fæðingardeildina. Hann ætlaði að aka föðurnum aftur í vinnuna og Dísu heim á eftir. Hann sagðist þurfa að tala meira við hann. Ég vona að telpan hafi ekki orðið til mikilla óþæginda eða vand- ræða, sagði faðirinn þá. Dísa á til að koma þeim á óvart sem ekki þekkja hana. Nei, nei, sagði Gunnar. Við Dísa erum orðnir bestu vinir. Hún hefur kennt mér ýmislegt og ég vona að ég geti eitthvað kennt henni. Þau komu til baka eftir svo sem hálftíma og þá var Dísa öll önnur. Hún var mjög hæg og hugsi á svip og setist þögul á milli Gunnars og pabba síns. Þegar Gunnar var að ræsa bílinn togaði hún ögn í jakka- ermi hans og sagði stillt: Veistu, ég held ég sé búin að finna jólin. Jólin eru í litla bróður. Hann er í kassa, sérðu, og ég fékk bara að horfa á hann í gegnum rúðu. Hann er allsber og ósköp Iítill. En hann opnaði augun og þá fann ég allt í einu jólin. Hann er jólabarn og jólin sjálf. Ég er viss um að guð og Jesús eru í honum, annars gæti hann ekki fæðst og lifað svona lítill. Hann er jólin sem ég var að leita að. Dísa þagnaði, einblíndi fram fyrir sig og var enn hæglátari en áður og hugsi, eins og hún væri allt önnur telpa. Mennirnir tveir litu hvor á annan yfir höfuð hennar, kinkuðu kolli og brostu. Des. 1977.

x

Fjarðarfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.