Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Side 40

Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Side 40
40 FJARÐARFRÉTTIR Sala jólatrjánna er aðalfjáröf lunin Hjálparsveit skáta stendur í ströngu Eins og undanfarin ár verður Hjiaparsveit skáta með fjölbreytt úrval jólatrjáa fyrir jólin. Við fengum Sigurð Gunnarsson, stjórnarmann í Hjálparsveitinni til þess að segja frá starfi sveitarinnar og jólatréssölunni. Vegna hinna tíðu slysa undan- farið hafa hjálpar- og björgunar- sveitir verið mikið í sviðsljósinu, en um allt land eru hópar manna, er vinna í sjálfboðavinnu að björgun mannslífa og þjálfa sig sérstaklega í því skyni. Þessir hópar eru Hjálparsveitir skáta, Flugbjörgunarsveitir og björgunarsveitir Slysavarnarfé- lagsins, auk nokkurra, sem ekki eru í landssamtökum. Allar vinna þessar sveitir að sömu markmið- um, en sumar þeirra hafa auk þess sérhæft sig á ýmsum sviðum björg- unarmála. Almannavarnir ríkisins hafa gert neyðarskipulag fyrir allt landið og eru þessum sveitum ætlað hverri sitt hlutverk í því skipulagi. Til þess að geta sinnt þessu verkefni og öðrum, verða sveitirnar að koma sér upp aðstöðu og búnaði. Auk þess þurfa félagar sveitanna að leggja mikla rækt við þjálfun í björgunarmálum. Hver sveit starfar í sínu byggðar- lagi og sumstaðar eru fleiri en ein sveit t.d. Hjálparsveit skáta og björgunarsveit Slysavarnarfélags- ins. í flestum tilfellum er slíkt til góðs og skapar heilbrigða samkeppni og metnað félaganna fyrir hönd sinnar sveitar. Samvinna í aðgerðum hefir undantekningarlaust verið með ágætum. Einstaka sinnum hefir þó komið upp misklíð og er þá oftar um að kenna mönnum en málefn- um. Þegar mikið er í húfi eru sveitir sendar milli héraða, en sem betur fer þarf ekki oft á slíku að halda. Undantekning eru sérhæfðar sveit- ir svo sem sporhundadeild Hjálpar- sveitar skáta í Hafnarfirði, sem iðulega fer fyrirvaralaust lands- horna á milli, til leitar að týndu fólki. Leitarhundar Björgunar- hundasveitar íslands og björgunar- sveitar Ingólfs eru einnig sendir um allt land, ef á þarf að halda verði skriðu- eða snjóflóð. Ein best búna sveit á landinu er Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði, en á undanförnum árum hefir H.S.H. komið sér upp björgunarstöð, sem er um leið félagsheimili sveitarinn- ar. í björgunarstöðinni er bíla- geymsla og aðstaða fyrir viðgerðir, birgðageymsla fyrir leitar- og björgunarútbúnað, stjórnstöð, setustofa, eldhús og fundarsalur. í bakhúsi eru geymslur fyrir stærri útbúnað, svo sem tjöld, snjósleða, gúmmíbát o.fl. Þá er verið að reka smiðshöggið á fullkomna aðstöðu fyrir sporhunda sveitarinnar, sem eru sérstakur kafli í björgunarsögu þjóðarinnar. H.S.H. ermeðelstu hjálparsveit- um á landinu og liggur félagslegur styrkur hennar í því að eldri félagar hennar hafa ekki yfirgefið hana, þótt þeir séu hættir virku starfi. Kom þetta berlega fram í Vest- mannaeyjagosinu, þegar hundruð manna tóku þátt í björgunarstarfi á vegum sveitarinnar. Þótt byggt sé á gömlum og traustum grunni þarf sífellt að endurnýja liðið. Er nú í nýliða- þjálfun kraftmikill hópur pilta og stúlkna, sem væntanlega munu halda uppi merki sveitarinnar á næstu árum. Áhersla er lögð á aimenna þekkingu, en síðar verður reynt að styrkja félagana í fram- haldsnámi á hinum ýmsu sviðum björgunarmála. Hefir H.S.H. átt flesta nemendur á grunnnámskeið- um Björgunarskólans á undan- förnum árum og nokkrir hafa lokið kennaraprófi i rötun og skyndi- hjálp. Nýja Hjálparsveitarhúsið. Bílakostur Hjálparsveitarinnar. H.S.H. er einahjálpar- og björg- unarsveitin, sem á og notar spor- hunda til leitarstarfa. Hefir þetta byggst á þrotlausu starfi hunda- þjálfarans og dyggum stuðningi félaga sveitarinnar, sem aðstoðað hafa við æfingar og leitir. Þetta hefir borið þann árangur að norskir lögreglumenn og leitar- hundaþjálfarar hafa komið hingað gagngert til að kynna sér þessi mál og skrifað um þau í norsk lögreglu- blöð. Allt starf hjá hjálpar og björg- unarsveitum á Islandi kostar mikið og fer drjúgur tími í að afla fjár, en nokkur styrkur kemur frá riki og sveitarfélögum. Hjálparsveitir skáta hafa lagt áherslu á sölu flugelda og haft af því nokkrar tekjur, einnig hafa björgunarsveitir Slysavarnarfé- lagsins sumstaðar farið út í flug- eldasölu. Reyna þessi félög að fara ekki út í beina samkeppni. H.S.H. hefir t.d. ekki opnað útsölu á flug- eldum í Hafnarfirði vegna þess að björgunarsveit Fiskakletts varð á undan til þess. Hefir H.S.H. því einbeint sér að sölu jólatrjáa í fjár- öflunarskyni. í ár verður sveitin með mjög gott úrval af jólatrjám og greinum frá Danmörku, en útsalan verður opnuð í félagsheim- ili H.S.H. fyrstu helgi í desember og verður opin daglega frá kl. 14-22 og um helgar frá 10-22. Munu Hafnfirðingar því ekki þurfa að leita út fyrir bæinn til kaupa á jóla- trjám. Öllum má vera ljóst að mikill styrkur er að hafa öflugar hjálpar- og björgunarsveitir í hverju héraði. Hafa hafnfirsku sveitirnar t.d. veitt bæjarbúum mikla hjálp í óveðrum og bílar þeirra verið lögreglu og sjúkraliði til aðstoðar í ófærð. Starfi í hjálparsveitum fylgir ábyrgð og erfiði, en einnig forrétt- indi. Félagar sveitanna öðlast ýmsa þekkingu, sem þeir fá ekki annars- staðar. Þeir taka þátt í þroskandi starfi og fá aðstöðu til að verða öðrum að liði, en á jákvæðri afstöðu til samborgaranna byggist tilvera mannsins í framtíðinni. Samkvæmt verðkynningu verðlags- stofnunar borgar sig að versla í

x

Fjarðarfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.