Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Side 31

Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Side 31
FJARÐARFRÉTTIR 31 Hér er Jörundur sjálfur (Hallur Helgason) og dömurnar hans, Dala-Vala (Björk Jakobsdóttir) og konan (Katrín Þorláksdóttir). sínum, hvernig gervilöpp Charlie Brown hefur skaðað fótlegg hennar. Við sýnum enga hluttekn- ingu heldur spyrjum Kristínu umbúðarlaust hvers vegna hún hafi verið valin til að leika jafn grófan sjóara og umræddan Charlie Brown. Ekki er þetta óskahlutverk tvítugrar stúlku? „Óskahlutverk? Nei, tæplega. Að vísu er hlutverkið skemmtilegt, en vægast sagt mjög erfitt. Það eru fá kvenhlutverk í Jörundi, en margar stelpur í leikarahópnum, svo að það lá beint við að einhver okkar þyrfti að bregða sér í karl- mannsgervi. Leikstjórinn tók áhættuna og valdi mig til að fást við karlinn.“ Við höldum því á önnur mið og heilsum upp á Jón Pálsson veit- ingamann, sem er önnum kafinn við að ganga frá á barnum, þar sem hann hefur verið í hlutverki verts á enskum pöbb og blandað fyrir áhorfendur þann ágæta mjöð, sem aukið hefur á kráarstemmninguna í leiknum. Hvernig leist þér á að gera Gafl- inn að leikhúsi, Jón? „Þetta gekk mjög vel, betur en ég átti von á. Það hefur verið sér- staklega ánægjulegt að starfa með þessu unga og áh'ugasama fólki sérstök lífsreynsla ef svo má að orði komast. Ég var óneitanlega svolítið hikandi fyrst en sló svo til. Að vísu gerði ég mér fyrirfram enga grein Kristín Gestsdóttir. Við sem sáum Kristínu í þessu stórkarlalega gervi, með lepp fyrir auga, gervihönd og fót, efum ekki að þarna mistókst Þórunni ekki leikaravalið, enda fór Kristín á kostum í hlutverkinu. En nú vendum við okkar kvæði í kross. Kristín er meðal þeirra í hópnum sem jafnframt eru í skóla og við spyrjum hana hvernig henni hafi tekist að samræma leiklistina og námið. „Já, ég er að myndast við að standa mig í okkar ágæta Flens- borgarskóla, þrátt fyrir ótal árekstra við leiklistina. Ég verð að viðurkenna að námið hefur orðið að líða fyrir þetta tímafreka áhuga- mál. Kristján Bersi sagði til dæmis við mig um daginn..........Nei, sleppum því sem hann sagði.“ Kristín verður skyndilega svo- lítið áhyggjufull á svipinn, en fer svo að hlæja og bætir við: ,Ég á nefnilega mjög viðamikið áhugamál, sem er æska Hafnar- fjarðar eins og hún leggur sig. Á sumrin hef ég stjórnað henni í unglingavinnunni og nú vinn ég með henni í Æskulýðsheimilinu og sem leiðbeinandi í leiklist í Lækjar- skóla. Ég sé ekki fram úr verkefn- um á þessu sviði.“ En hvaða sess skipar leiklistin í framtíðaráformunum? „Hún skipar þar mjög óljósan sess. Sem stendur er ég ákveðin í að ljúka mínu námi í Flensborg. Hvað þá tekur við er óráðið ennþá. Það gæti orðið leiklistarnám eins og hvað annað. Mér finnst alveg óskaplega gaman að leika.“ Að þessum orðum slepptum er Kristín rokin. Einn félagi. hennar þarf aðstoð við að losa heljarmikla netadræsu ofan af vegg og hún þýtur honum til hjálpar. Heyrir ekki einu sinni þakkarorð okkar og framtíðaróskir henni til handa. fyrir öllu því umstangi sem þessu fylgdi. Hér var öllu umturnað við að koma fyrir leiðslum, kösturum og þess háttar, auk leiksviðsbúnað- ar. En ég bar traust til þessara ung- menna og þau reyndust traustsins verð. Þetta er fjörmikið fólk og þurfti stundum svoiítið aðhald, en allt gekk árekstralaust og sam- vinnan varð eins og best verður á kosið. Jón Pálsson, veitingamaour. Stundum var ég smeykur um að sýningarnar trufluðu aðra gesti hússins, til dæmis þegar fundir voru í salnum uppi á sama tíma. En enginn kvartaði og eftir á að hyggja held ég að þessi uppákoma hafi verið góð kynning fyrir Gaflinn og vel þess virði að taka þátt í henni.“ Nú er komið að því að kveðja allt þetta ágæta fólk sem við höfum hitt og rabbað við. Þegar við yfirgefum Gaflinn er búið að ganga frá og taka til og ró farin að færast yfir mannskapinn. Búið er að koma fyrir sjónvarpsskjá og gera klárt fyrir sýningu á leikritinu nýupp- teknu á myndband. Leikararnir fá sér þægileg sæti og heilmikil eftirvænting liggur í loftinu. Margir eru nefnilega að fara að sjá „Þið munið hann Jörund“ í fyrsta sinn. B!ack& Decker Black & Decker HANDVERKFÆRI i miklu úrvali. Fyrir iðnaðarmenn OG OKKGR HINA HAFNFIRÐINGAR Leitið ekki langt yfir skammt RÖMMUM INN: SELJUM: • Hannyrðir • Olíumálverk • Olíumálverk • Vatnslitamyndir • Vatnslitamyndir • Grafík • Grafík • Teikningar • Teikningar • Eftirpreptanir • Skiptiramma • Antíkramma • Ljósmyndir • 0. fl. o. fl. • Sporöskjuramma • Hringramma • Spegilfestingar • O. fl. Mikiö úrval rammalista Stuttur afgreiöslufrestur RAMMINN SF. INNRÖMMUN - Reykjavíkurvegi 60 - S. 54167 Auk allrar almennrar auglýsingastofuþjónustu, svo sem auglýsingagerð og dreifing, uppsetning pappíra og bæklinga, merki, umbúðir o.fl., höfum við bætt við Ijósritunarþjónustu og þýðingum á ensku, dönsku, norsku og sænsku. Opið alla virka daga kl. 9-12 og 13.30-17. 'ptwbD^ * AUGLYSINGflSTOFA SF DALSHRAUN113 220 HAFNABFIRÐI SÍNII54304

x

Fjarðarfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.