Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Page 22

Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Page 22
22 FJARÐARFRÉTTIR FHákarlar bregða á leik yVVW vVvVV' \>xx> : Vvvwv \>yVywCw FHákarlar. Aftari röð (f.v.): Björn Eysteinsson, Ómar Karlsson, Jón V. Hinriksson, Ingvar Viktorsson, Albert Eymundsson og Halldór Fannar. Fremri röð (f.v.): Dýri Guðmundsson, Helgi Ragnarsson, Jón Már Björgvinsson og Pálmi Sveinbjörnsson. Á síðustu árum hefur það færst í vöxt að fólk stundi líkamsrækt og ýmsar greinar sér til andlegrar og líkamlegrar uplyftingar, en ekki með keppni í huga. Algengt er að kunningjar eða starfshópar taki sig saman og leigi tíma í íþróttasal vikulega eða oftar. í Þrekmiðstöð- inni hittum við nýlega einn slíkan hóp. Þeir kalla sig FHákarla og eru sagðir sérlega hressir og áhugasam- ir. Allir eiga þeir sameiginlegt að hafa keppt með FH í knattspyrnu. Samt neita þeir harðlega að nafn félagsskaparins eigi eitthvað skylt við FH. F-ið á undan Hákarlar tákni t.d. ekki alltaf það sama, stundum þýðir það frægir, einstaka sinnum fúlir, en oftast fyndnir. Þessi hressi hópur hittist reglu- lega einu sinni í viku í Þrekmið- stöðinni og bregður sér þá vitanlega í fótbolta. Þegar okkur bar að garði var sparkið byrjað, skipt hafði verið í Iið og keppt af mikilli hörku. Við fylgjumst með um stund, en í örstuttu leikhléi fáum við þó að smella mynd af köppunum. Síðan er keppni haldið áfram og þegar yfir lýkur stendur lið Helga Ragnarssonar uppi sem sigur- vegari. Með honum voru að þessu sinni tannlæknarnir Jón Már Björgvinsson og Halldór Fannar. Var haft á orði að þeir hefðu dregið tennurnar úr andstæðingunum að þessu sinni. Sigurvegararnir fagna ákaft, en aðrir eru fálátir mjög. Að keppninni lokinni er dregin fram bók ein mikil og úrslit dagsins skráð nákvæmlega í hana. Þegar Halldór Fannar, ritari hefur lokið skrásetningu gengur bókin á milli og nokkrir úr hópnum gera skrif- Iegar athugasemdir, enda mun ritari hafa verið hlutdrægur í skrifum sínum. Gamanið endar svo úti í heita pottinum þar sem slappað er af og rabbað saman í léttum dúr. Við sláumst í hópinn og fylgjumst með nokkrum laufléttum kímnisögum, sem þeir félagar hafa ávallt á hraðbergi. Reyndar sér hinn óopinberi forsvarsmaður FHákarla, Helgi Ragnarsson, um að skrásetja þá brandara sem fjúka í sérstaka bók sem nefnist Hákarla- grín. Við laumum inn nokkrum spurn- ingum um félagsskapinn og fáum samstundis greið svör. FHákarlar eru nú að halda upp á ársafmæli sitt, stofndagur félagsins var 16. des. 1982. Á íþróttasviðinu létu FHákarlar mikið að sér kveða á árinu. Þeir tóku m.a. þátt í firma- keppni og náðu þar 3. sæti af 60 og voru eina liðið þar sem allir voru yfir þrítugu. Auk íþróttanna hefur félagið gengist fyrir þorrablóti, veiðitúr, ýmsum skoðunarferðum um höfuðborgarsvæðið (einkum á Iaugardagskvöldum), auk margra merkilegra funda. í framtíðinni hyggja félagsmenn á utanlands- ferðir og leggja í ferðasjóð ákveðna upphæð mánaðarlega, sem dregin er af mjólkurpeningunum heimila þeirra. Hver félagsmaður hefur sérstakt embætti og sérstaka nafn- bót sem sem hæfir verkefninu. Til dæmis sér Helgi um að boða hóp- inn saman og nefnist því Boði, og Jón Hinriksson er kallaður Froði, þar sem hann leggur til sjampóið. Að sögn þeirra félaga er þetta mjög góður og samheldinn hópur, sem marga fýsir að komast í, en því miður urðu þeir að loka félaginu þegar þeir voru orðnir 10. Það er sá hámarksfjöldi sem upphaflega var reiknað með og óskráð lög segja til um, skýrum stöfum. Áður en við kveðjum þá FHákarla semjum við um að fá að kíkja í bókina ,,HákarIagrín“ og birta úr henni nokkrar kímnisögur. Hákarlagrín Tveir vinir vöndu komur sínar á krá eina, þar sem þeir fengu sér á hverju kvöldi sama skammtinn: tvöfaldan whisky og hálfpott af bjór. Þegar annar þeirra var kvaddur í herinn tók hann það loforð af vini sínum að hann héldi áfram að sækja krána og drykki auk þess sinn skammt. Vinurinn hélt toforðið og í mánuð hvolfdi hann í sig fjórföldum whisky og pott af bjór á hverju kvöldi. En skyndi- lega fer hann aftur að panta einfaldan skammt og barþjónn- inn, sem vissi hvernig í pottinn var búið, spyr hvort vinur hans hafi fallið í stríðinu. ,,Nei, nei, hann er bráðhress og ég held loforðið við hann. Hins vegarer ég sjálfur kominn í bindindi", var svarið. Flugvélin var komin á loft og flugstjórinn búinn að ávarpa farþega, geta um flughœð, flug- tíma og þess háttar. En því miður gleymdi hann að loka fyrir hátalarann og farþegarnir heyra hann segja við aðstoðar- flugmanninn: ,,Jœja, Jói, nú er sjálfstýringin komin á. Þá vantar mann bara bjórkollu og brjóstamikla Ijósku". Ein af flugfreyjunum heyrir þetta og þýtur í áttina að stjórnklefan- um. Þá gellur í gamalli konu úr farþegahópnum: ,,Heyrðu fröken, þú gleymdir bjórnum“. A dögunum var hringt í Gull- fiskabúðina og spurt hvort þar fengist páfagaukur. Því var svarað játandi. ,,Páfagaukur sem getur talað?“ var þá spurt. Já, já, hann er til. ,, Viltu þá leyfa mér að tala við hann?“ Dyggur stuðningsmaður FH- liðsins lenti í því I sumar að konan hans þurfti að ala barn á sama tíma og FH var að spila við Fram. Hann fór þó með henni á fœðingardeildina og fylgdist með þegar frumburður- inn kom í heiminn. Á heimleið- inni kom hann þó við í Krikan- um og sá síðustu mínúturnar í leiknum. Þegar heim kom beið tengdamamma á tröppunum og spurði strax hvernig hefði gengið. ,,Það gekk bara vel“, svaraði vinurinn. ,,2-1 fyrir FH“. Gleðileg jól! Farsælt nýár! txkjasmíðin lif 91-52885 TRÖNUHRAUN 6 - BOX 409 IS 222 HAFNARFJÖRÐUR Srmsvari á kvöklin og um helgat Gleðileg jól! Farsælt nýár! Þökkum viðskiptin. Opsá kS. 8-19 Gleðileg jól! Farsælt nýár! Pökkum viðskiptin. KÆNAN v/Óseyrarbraut, sími 51503 GLEÐILEG JOL! FARSÆLT KOMANDI ÁR! /, ÞÖKKCJM VIÐSKIPTIN! SAMVIVM TRYGGIYIGAR Strandgötu 33 - Sími 53933 (•) Hjá Feidinond Róbert sjúkraskósmið fáið þið: Gert við Innlegg eítir skóna j) þöríum Til hestamennsku: Hnakkar Beisii ístaðsólar Reiðstígvél o.m ,fl. Ódýr vinnufatnaður: Skyrtur Blússur Peysur Úlpur Gallabuxur Reykjavíkurvegi 64 — sími 52716

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.