Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Síða 28
28
FJARÐARFRÉTTIR
Úr fórum Byggðasafns Hafnarfjarðar
Við gengum á fund Magnúsar Jónssonar, minjavarðar og
umsjónarmanns húss Bjarna Sivertsen og fengum að fletta nokkr-
um möppum sem geyma myndir frá ýmsum tímum úr sögu Hafnar-
fjarðar. Það er ekki komið að tómum kofanum hjá Magnúsi og
reyndar með ólíkindum hve honum og fyrirrennara hans, Gísla
Sigurðssyni, hefur tekist að grafa upp og halda til haga af ýmsum
upplýsingum sem samviskusamlega eru skráðar við aragrúa mynda
sem varða fjölmarga þætti í bæjarlífinu.
Fundið hefur verið að því að ekki væri gert mikið til að laða gesti
og gangandi að elsta og að mörgu leyti athyglisverðasta húsi bæjar-
ins, Húsi Bjarna riddara Sivertsen. Þar hafa að vísu verið sýningar
og veitingar, en sjaldan hefur það verið, enda skiptar skoðanir um
hve mikið á að gera af þessháttar, án þess að húsið fari fljótlega að
láta á sjá að innan. Ekki er það heldur svo að skilja, að húsið sé
algjörlega lokað. Þar hefur minjavörður dvalist og verið til viðtals
flesta virka daga og auk skrásetningar safngripa hefur hann eins og
fyrr segir komið myndum fyrir í möppur og skrifað fræðandi texta
með þeim. Ekki er þó beinlínis ætlunin að leyfa sífellda flettingu í
þessum möppum og því síður hinar öfgarnar, að enginn kynnist
innihaldi þeirra. Hér eins og víðar er meðalvegurinn heppilegastur
og ætlunin er að fara hann þannig, að Hafnfirðingar fái þetta í
skömmtum í blöðum sínum.
Fjarðarfréttir vilja færa Magnúsi Jónssyni, minjaverði, þakkir
fyrir alla aðstoðina og vona að lesendur blaðsins hafi gaman af
myndbrotum þessum.
Hljómsveitin Kátir piltar sem lék fyrir dansi víða um land á árunum 1945-
50. Talið frá vinstri Friðleifur E. Guðmundsson, Einar Sigurjónsson,
Stefán Þorleifsson og Friðþjófur Sigurðsson.
Þessi mynd er tekin í barnaskóla St. Jósefssystra 1956. Kennararnir með börnunum eru: systir
Monika, systir Lioba, skólastjóri og Sigurlaug Björnsdóttir.
Þegar Kristján Gamalíelsson vann á Nýju bílstöðinni, 1957-1959, var þar oft tekið lagið.
Á myndinni eru, talið frá vinstri, Ólafur Vilhjálmsson, Kristinn Jónsson, Bjarni Björnsson, Kristján
Gamalíelson, Marinó Þorbjörnsson, Þórður Björgvin Þórðarson, Jón Gestsson, Ingvar ívarsson,
Hallgrímur Árnason og Magnús Kristinsson.
Frá skákmóti í Hafnarfirði 1953.
Fremri röð f.v. Ásmundur Ásgeirsson, Einar Mathiesen, Sigurður T. Sigurðsson og Eggert
Gilfer. Aftari röð f.v. Aðalsteinn Knudsen, Jón Kristjánsson, Ólafur Sigurðsson, Árni
Grétar Finnsson, Þórir Sæmundsson, Sigurgeir Gíslason og Trausti Þórðarson.
Þessi mynd og hin til hliðar eru teknar yfir bæinn frá Fríkirkjuhólnum. Sennilega eru þær
teknar rétt eftir 1930.
Grimuball hjá Haukum í Sjálfstæðishúsinu um 1944.
Parið fremst til vinstri eru þau Margrét Pétursdóttir og Sigmar Guðmundsson og á milli
þeirra sést Þorvarður Þorvarðarson. Hitt dansparið er Höskuldur Skagfjörð og Herdís
Þorvaldsdóttir, og fjær þekkjast t.d. Marteinn Marteinsson og Friðþjófur Sigurðsson.