Fjarðarfréttir - 01.12.1983, Qupperneq 43
FJARÐARFRÉTTIR
43
Hér er Böðvar við afgreiðslu 1. des. sl. Búðin er fuli af blómurn í tilefni
dagsins, en það var einmitt 1. des. fyrir 40 árum sem Böðvar hóf bóksölu.
„Haldið þið að ég hafi ekki fengið drápu frá Eiríki Pálssyni í dag. Þar lýsir
hann mér sem gjörvulegu glæsimenni“. Böðvar skeilihlær og sýnir okkur
drápu Eiríks.
Það voru ekki alltaf háar upp-
hæðir sem komu í kassann yfir dag-
inn. Ég man að barnabækur kost-
uðu á þessum fyrstu árum mínum
þetta 10-12 krónur og „fullorðins“
bækur 30-35 krónur.
í mörg ár flutti ég sjálfur inn
Ijósmyndavörur ýmiss konar og
einnig lét ég þýða barnabækur hér
heima og síðan voru þær prentaðar
úti. Þetta gekk vel þar til gengið fór
að breytast það ört að það sem kom
inn fyrir bækurnar eitt árið nægði
hvergi fyrir hærri prentkostnaði
þegar átti að fara í næstu prentun.
Frá þessum útgáfuárum er mér
mjög minnisstætt er ég gaf út bók-
ina Sigurður Fáfnisbani. Hún varð
nokkuð dýr og ég var smeykur urn
að hún seldist ekki nægilega vel.
Það var verið að sýna mynd með
sama nafni í Laugarásbíói. Sjón-
varpið hafði þá nýverið hafið
göngu sína og greip ég til þess ráðs
að fá bút úr kvikmyndinni og lét
síðan gera auglýsingakvikmynd
sem sýnd var nokkrum sinnum í
sjónvarpinu. Ég man að fyrsta
birting var 10. desember. Bækurn-
ar höfðu þá legið í nokkrum versl-
unum og lítið selst. En svo brá við
að eftir auglýsinguna seldist bókin
nálega upp fyrir jólin. Þetta mun
líklega vera ein fyrsta auglýsingin
um bækur sem birtist í sjónvarp-
inu.
Síðustu ár hefur verslun í landinu
gengið nokkuð vel en í dag er
þyngra undir fótinn. Með skertri
kaupgetu almennings fer ekki hjá
því að verslanir verða áþreifanlega
varar við að peningar eru af skorn-
um skammti. En það hefur áður
komið kreppa og vonandi „hressist
Gudda“ áður en langt um líður.
Ég hef alltaf verið mjög heppinn
með starfsfólk í öll þessi ár. Það er
orðið þó nokkuð margt á þessu 40
ára tímabili og sumt hefur unnið
hjá mér í fjölda ára.
Minnisstæðir
kaupmenn
Þeir settu svip sinn á bæinn ýmsir
„kollegar“ mínir í kaupmanna-
stéttinni. í næsta nágrenni við mig
voru þeir Jón Matthiesen og Ólafur
H. Jónsson. Oft var skroppið til
þeirra þegar lítið var að gera og
rætt um daginn og veginn. Það lék
alltaf hressandi blær um þessa
menn. Ég man eftir því að eitt sinn
er ég hafði skroppið yfir til Óla H.
þá kom viðskiptavinur og bað um
eina Blöndalskarmellu. Um leið og
Óli afhenti það sem um var beðið
og hafði tekið við greiðslunni, heil-
um 5 aurum, bukkaði hann sig
næstum niður að gólfi og sagði
hátíðlega: „Alúðarfyllstu þakkir
fyrir viðskiptin“. Menn kunnu sig í
þá daga.
Ólafur Runólfsson rak matvöru-
verslun þar sem Sóley er nú og svo
var Gísli Gunnarsson með verslun
sína í Suðurbænum á svipuðum
stað og Guðlaugur Þórðarson er
með verslun í dag.
Víða komið við
Á mínum yngri árum hafði ég
mjög gaman af fótbolta og hand-
bolta. Ég var í Haukum og lék á
kantinum, var ögn léttari á mér en
núna. Ég man eftir mörgum
ágætum samherjum frá þeirri tíð,
t.d. Kalla Auðuns, Bjarna Sveins
og Sibba Þórðar svo einhverjir séu
nefndir.
I handboltanum man ég eftir að
við kepptum við lið Hallsteins
Hinrikssonar sem nefndist Þjálfi.
Mig minnir að leikurinn endaði
með jafntefli. Það urðu nokkrar
deilur í leiknum, því mörkin voru
aðeins tvær spýtur með trolltvinna
á milli. Deilurnar gátu orðið heitar
um það hvort boltinn hefði farið
undir eða ofan við trollgarnið.
Ég æfði badminton í nokkur ár.
Ég var kominn undir fertugt þegar
ég fékk áhuga á þeirri grein. Þarna
voru með mér ágætir félagar sem
gaman var að vera með. Ég lék oft
með Jóni Árnasyni, sem síðar varð
Islandsmeistari í þessari íþrótt.
Ekki vil ég þó um það fullyrða að
það hafi verið vegna þess að hann
æfði með mér!
í þessum hópi voru einnig þeir
Árni Þorvaldar, Jón Pálma, Óskar
Halldórsson, Villi rakari, Ágúst
Helgason og fleiri ágætir menn.
Þetta fannst mér mjög skemmti-
legur tími.
Um svipað leyti fer ég að stunda
hestamennsku. Ég hef átt þar góðar
stundir og margs að minnast bæði í
sambandi við menn og hesta, þó
ekki sé farið út í þá sálma að þessu
sinni.
Frá stofnun Félags óháðra borg-
ara hef ég tekið þátt í félagsstarf-
inu. Ég á margar góðar minningar
frá fundum og ferðum á vegum
félagsins.
Árlega hefur verið farið í ferða-
lag, eins eða tveggja daga ferðir, og
þátttakan hefur verið vel yfir
hundrað manns í hverri ferð. Árni
Gunnlaugsson hefur skipulagt allar
þessar ferðir og gert það af hreinni
snilld og veit ég að ferðafélagar
mínir úr þessum ferðum taka undir
það. Ekki veit ég hvernig Árni
hefur farið að því að ná sambandi
við veðurguðina, en alltaf hefur
veðrið leikið við okkur í þessum
ferðum þó aftakaveður sé annars-
staðar á landinu, jafnvel í næsta
nágrenni.
Ég hef alltaf haft gaman af því að
taka lagið í góðra vina hópi. Ég var
nokkur ár í Þröstum og nú er ég í
Kór Víðistaðasóknar. Það var nú
ekki slæm auglýsing fyrir búðina
þegar einn af yngri kynslóðinni,
sem var með foreldrum sínum í
messu sagði stundarhátt: „Mamma,
mamma, sérðu. Bókabúð Böðvars
er að syngja“.
Kórinn er nálægt 30 manns, allt
prýðisfólk. Þetta hefur verið
nokkuð strangur timi hjá okkur og
mikið að gera fyrir jólin. Þarna er
æft í bland kirkjuleg músík, klass-
isk verk og lög af léttara taginu.
Kórinn hefur safnað í sarpinn tölu-
verðu efni og ég er ekki viss um að
margir kórar geti státað af því að
hafa sungið alla þjóðsöngva
Norðurlanda á móðurmáli við-
komandi lands, meira að segja á
finnsku!
Ég má til með að minnast á það
að fyrir nokkrum árum safnaði
Árni Gunnlaugsson nokkrum fé-
lögum saman og við sungum á
nokkrum stofnunum í bænum.
Árni er afar áhugasamur um söng
og hefur reyndar samið mörg bráð-
falleg lög. Þegar hann kemur til
min í búðina þá geta menn alveg
eins búist við því að stofnaður sé
dúett, kvartett eða jafnvel heill kór
og lagið tekið á staðnum.
Hér látum við staðar numið að
sinni. Ekki er það af því að ekki sé
nógu af að taka. Þær eru margar
sögurnar frá Böðvari sem ekki eru
skráðar hér, þær fara best, sagðar
af honum sjálfum. Fjarðarfréttir
þakka fyrir spjallið og við tökum
undir með viðskiptavininum sem
við mættum í dyrunum í Böðvars-
búð: „Hann er alltaf svo hress
hann Böðvar.“
Eitt af áhugamáium Böðvars er söngurinn. Hér er hann ásamt félögum í
kór Víðistaðasóknar.
Ódýr alvöru dagbók
Heil vika í opnu
í hraöa nútímans er nauösynlegt aö
hafa reglu á hlutunum.
Viöskiptadagbókin auðveldar þér aö
skipuleggja hvern dag ársins.
Einnig fáanleg vasadagbók í stíl viö
þá stóru.
Fást í næstu hókahúð
Reykjavíkurvegi 50
sími 54110
Doullon
Gjafavörur í úrvali:
Straufríir dúkar,
íslenskar, spánskarog
enskar styttur
íslenskar leirvörur
Franskt og finnskt
matarstell
Glervörur frá ARABIA
og HOLME GAARD
sunweave
HOLME
GAARD
HUTSCHENREUTHER
GERMANY
Sérarein okkar er
Við erum ekki stórir, en þekktir
fyrir vandaða vinnu og hagkvæm
verð. Hafðu sambancT vio ?erum
tilboð og veitum þér allar frekari
upplýsingar um glugga- og hurða-
smíði.
GLUGGA-OG HURÐASMIÐJA
SIGURÐAR BJARNASONAR
Dalshrauni 17, HafnarfirÖi, sími-53284.