Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1972, Page 96
94
GEÐSJÚKDÓMAR
á Kleppsspítala, geðdeild Barnaspítala Hringsins og geðdeildum
Borgarspítala lágu 1841 sjúklingur á árinu.
ATVINNUSJÚKDÓMAR
Reyk.javíkur. Á þessu ári hefur eitt aðalverkefnið verið að rannsaka
blýmagn hjá einstaklingum ýmissa starfshópa. Jafnframt var haldið
áfram og auknar þær rannsóknir, sem áður hafa verið framkvaemdar,
þ.e. að taka til rannsóknar einstaklinga og hópa úr ýmsum starfs-
greinum. Atvinnusjúkdómadeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur lét
framkvæma mælingar á blóðrauða og blýinnihaldi blóðs starfsmanna
fyrirtækja, þar sem unnið er við blýsambönd og voru þar samtals 57
starfsmenn. Auk þess viðmiðunarhópur úr annarri starfsgrein. I
ljós kom, að mesta blýmagn mældist 50 microg í 100 ml blóðs, en tal-
ið er, að "leyfileg" efri mörk séu 80 microg. Með aðstoð heyrnar-
deildar var mæld heyrn 59 starfsmanna, sem vinna í hávaða. Af þeim
reyndust 35 heyrnskertir.
Yfirlit yfir starfsemi atvinnusjúkdómadeildar s.l. 5 ár
1972 1971 1970 1969 1968
Fjöldi rannsakaðra starfsmanna ..... 114 190 108 422 ?
Þar af heyrnskertir ................ 57 150 71 348 400
Breiðumýrar. Eftirlit með Kísiliðjustarfsmönnum hefur verið með
sama hætti og áður. Ekki orðið vart við neina meiri háttar atvinnu-
sjúkdóma í kjölfar þess rekstrar.
AUGNLÆKNINGAFERÐIR
Sumarið 1972 ferðuðust 5 augnlæknar um landið og skoðuðu sjúklinga
á alls 34 stöðum, sjá að öðru leyti eftirfarandi yfirlit.
Fjöldi Fjöldi Fjöldi
Augnlæknar staða augnsjúkdóma augnsjúklinga
Hörður Þorleifsson .............. 3 1263 1007
Kristján Sveinsson ............. 14 686 ?
Loftur Magnússon ................ 3 273 248
óli Björn Hannesson ............. 9 1787 1253
Úlfar Þórðarson ................. 5 ? 596