Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1972, Blaðsíða 129
127
HÚSAKYNNI OG ÞRIFNAÐUR. MEINDÝR
Alafoss. Þrifnaði utanhúss víða ábótavant, en annars staðar
sveitinni til sóma. Rottu alltaf vart öðru hverju, og hefur ver-
ið leitað til meindýraeyðis vegna þessa.
Suðureyrar. Lokið var við nýja skolplögn og ný vatnslögn lögð
í hálft þorpið á árinu. Ennþá er eftir að laga að mestu leyti um-
hverfið um fiskvinnslustaðina og brunarústirnar eftir gamla frysti-
húsið, og gömlu skolplagnirnar enda alltof hátt í fjörunni. Er
þetta allt mikill sóðaskapur, og virðast umhverfismálin alltaf
sitja á hakanum hér sem víðar.
Akureyrar. Tvennar endurbætur urðu á heilbrigðismálum Akureyrar,
á síðustu mánuðum ársins, sem hvor um sig markar tímamót á sínu
sviði: 1) Ný vatnsleiðsla til bæjarins var tekin í notkun. Vatn í
henni kemur úr borholum á eyrum við Hörgá í landi Krossastaða, um
13 km frá bænum. Þetta er djúpvatn, mjög gott og hreint. Akureyri
fékk áður vatn úr Hlíðarfjalli og framan af Glerárdal. Þurfti þá
stundum að nota yfirborðsvatn, sem þurfti að klórera, og fyrir kom,
að vatn óhreinkaðist þarna £ leysingum. Vatnsmagnið í nýju leiðsl-
unni mun duga áratugum saman handa Akureyringum, þó að hér verði sú
aukning mannfjölda og vatnsnotkunar, sem bjartsýnustu menn gera ráð
fyrir. 2) Sorphreinsun á Akureyri hefur undanfarin ár verið með
harla frumstæðum hætti: Rusli úr sorptunnum hefur verið hellt beint
á bílpall og því verið ekið þannig lausu á sorphauga. Þetta hefur
verið lítt þrifaleg aðferð og boðið heim ruslfoki á götur og við
sorphauga. Nú voru teknir upp plastpokar, sem strengdir eru innan
í málmtunnur eða grindur. Bærinn lét smíða tunnurnar og skyldu hús-
ráðendur kaupa þær, ef sorp þeirra var geymt undir beru lofti milli
hreinsana, en grindur ef um lokaðar sorpgeymslur í skúrum eða kjöll-
urum er að ræða. Grindunum treystum við ekki utanhúss í norðlensk-
um vetrarveðrum. Sorphreinsunarmenn skipta síðan um poka, hverju
sinni er hreinsun fer fram. Þrifnaðarmunur á þessu eða gömlu aðferð
inni er mikill, en þegar til kom, reyndust menn tregir í tunnukaupum
og skiptum. Byrjað var að afhenda tunnurnar í október, og voru þær
ekki komnar alls staðar um áramót, en þó voru skiptin langt komin þá
Auk þrifnaðar við hreinsun og flutning er miklu auðveldara og þrifa-
legra að umgangast sorpið á sorphaugum með þessu móti.
Grenivíkur. Húsakynni yfirleitt góð. Eitrað fyrir rottur árlega.
Húsavíkur■ Mikill skortur er á íbúðarhúsnæði í Húsavíkurkaupstað,
og hefur það haft í för með sér, að búið er í fáeinum húsum, sem eru
fremur lélegt húsnæði, en yfirleitt er húsnæði til bæja og sveita
mjög gott. Neysluvatn er mjög gott. Á árinu var byggð á Húsavík
sorpeyðingarstöð, sem gjörbreyta mun öllum þrifnaði og meðferð úr-
gangs á Húsavík.
Vopnafj , Húsakynni eru hér allvíða léleg, en þrifnaður yfir-
leitt góður. Snyrtilegustu sveitabæir, sem ég hef séð, eru hér í
sveit. Neysluvatn var prófað í sumar og reyndist £ fullkomnu lagi.
Engar rottur eru hér £ bæ.
Keflavlkur. Rannsóknir á neysluvatni og sjó til fiskvinnslu hafa
farið reglulega fram og niðurstöður þeirra verið mjög góðar. Götu-