Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1982, Blaðsíða 118
inflúensu af B-stofni, parainflúensu af tveimur ættum, adeonveiru-
sýkingar, RS-(respiratory syncytical) veirusýkingar og sýkingar af
völdum mycoplasma pneumoniae bakteria. Inflúensuveirur af A-stofni
ræktuðust.
Inflúensa af A-stofni greindist i janúar, febrúar og mars. Tvær
undirtegundir af A-stofni greindust i Reykjavík samtímis i janúar
(H3N2 og H3N1). Þær dreifðust nokkuð misjafntum landið. A þremur
stöðum utan Reykjavikur, Flateyri, Sauðárkróki og Vestmannaeyjum,
greindist H3N3 gerð af A-stofni i janúar. I febrúar greindist þessi
gerð A-stofns á Akureyri og Egilsstöðum og í mars á Hvammstanga. í
febrúar greindist H3N2 gerð A-stofnsins á Sauðárkróki og Húsavik.
A-stofnar af inflúensu munu hafa valdið veikindum viðar á Noróur-
landi fyrstu mánuði ársins. Varð þessa vart i sýnum frá sjúklingum
á Siglufirði og Blönduósi, en frekari ættgreining var ekki gerð.
1 mars varð vart við B-stofn af inflúensu í Njarðvikum. 1 mai greind-
ist B-stofn i Reykjavik og á Akureyri. Má þvi segja, að landsmenn
hafi getað valið úr inflúensustofnum árið 1981. Óvenjulegt er, að
þeir finnist hér svo margir á svipuðum tima og fleiri en ein gerð
gangi á hverjum stað. A Sauðárkróki voru t.d. faraldrar af báóum
geróum A-stofnsins, sem áður er getið, sá fyrri (H1N1) i janúar og
sá seinni (H3N2) i lok febrúar, B-stofninn gerði minni usla, þó að
hann væri i landinu a.m.k. 2 mánuði.
Mótefni eftir tvær ættir af parainflúensuveirum, ættir 2 og 3, fundust
einnig árið 1981. Þær eru sem kunnugt er algengar orsakir barkabólgu
og "Croup" i litlum krökkum. Þessar sýkingar virðast þó hafa verið
vægar.
RS-veirusýkingar náðu meiri útbreióslu og ollu talsvert meiri veik-
indum, ef dæma má eftir tiðni mótefna i sýnum sendum frá sjúkrahúsum.
RS-veirur valda oft andþrengslum og slæmum lungnasýkingum i mjög
ungum börnum og voru flestar greiningarnar gerðar á sýnum frá þessum
aldurshópi, ungbörnum á sjúkrahúsum. RS-veirur voru i Reykjavik og
á Sauóárkróki i febrúar og i Keflavik i mai. Þær greindust ekki yfir
sumarmánuðina, en i september fundust þær aftur i Reykjavik og sunnan-
lands og greindust á þessu svæði alla mánuði, sem eftir voru af árinu.
Adenoveirusýkingar greindust i mars, júli, ágúst og október. Þær
veirur sækja aðallega i öndunarveg, augu, eitla og slimhimnur i
meltingarvegi. Þær greindust frá sjúklinc-um með einkenni frá öndunar-
færum og augum.
Þegar greina á veirusýkingar i öndunarvegi með mótefnamælingum er
alltaf leitað lika að mótefnum gegn mycoplasma pneumoniae bakterium,
sem geta gefið mjög lika sjúkdómsmynd og sumar veirusýkingar.
Mycoplasmasýkingar greindust alla mánuði ársins af mörgum stöðum.
Veirusýkingar i þörmum
Sýni frá 98 sjúklingum voru send til rannsókna vegna gruns um
enteroveirusýkingar (Coxsackie eóa ECHO). Uppskeran úr þeim rann-
sóknum var að i september og október fundust Coxackie Bs-veirur á
Reykjavíkursvæðinu og ECH0i2~veirur i nóvember. A-stofnar af
Coxsackieveirum greindust ekki, þó að saga nokkurra sjúklinga, sem
sýni komu frá, gæti bent til slikrar sýkingar. Saga um anga af herpangina
116