Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1982, Blaðsíða 115
RANNSÓKNASTOFA 1 VEIRUFRÆÐI V/EIRÍKSGÖTU
Yfirlit um verkefni 1981
^rið 1981 voru verkefni Rannsóknastofu í veirufræði v/Eiríksgötu
tviþætt, eins og undanfarin ár. Annars vegar greining veirusótta
fyrir sjúkrastofnanir, heilsugæslustöðvar og starfandi lækna, hins
vegar sérstök verkefni til könnunar á ónæmisástandi eða til eftir-
lits með ónæmisaðgerðum gegn veirusóttum. Rannsóknir á ónæmis-
ástandi islenskra kvenna gegn rauðhundum og á árangri bólusetningar
9egn þeim voru enn sem fyrr stærstu verkefnin. Hafin . var könnun á
ónæmisástandi gegn hettusótt i hópi 12 ára barna úr 14 læknishéruðum.
Siðustu tvo mánuði ársins stóð yfir mislingabólusetning skólabarna
vióa á landinu. Barst þá talsvert af sýnum til mælinga á mislinga-
^ótefnum, annaðhvort vegna vafasamrar sögu um sýkingu eða bólusetn-
lr>ga, sem höfðu verið gerðar á mjög ungum börnum. Hér á eftir verður
Herð nánari grein fyrir rannsóknunum.
fiauðhundar
^rið 1981 var 10. árið, sem unnið var að mælingum á mótefnum gegn
tauðhundum i blóði islenskra kvenna. Þær mælingar hófust 1972 með
könnun á ónæmisástandi kvenna á 13 heilsugæslusvæðum. Arin 1974-'75
var kannað ónasmisástand um 3000 kvenna, sem komu i mæðraskoðun á
timabilinu frá 1. september 1974 til 31. ágúst 1975. í þá rannsókn
voru notaðir afgangar af sýnum, sem send voru i sýfilispróf úr
^ðraskoðun skv. gildandi lögum. Eftir þessa rannsókn urðu mótefna-
Itl®lingar gegn rauðhundum fastur liður i mæðraeftirliti á flestum
stöðum á landinu. Haldið var áfram aó nota i mælingarnar afganga af
sermum úr sýfilisprófum. Siðan haustið 1974 hafa þvi allir afgangar
serma úr sýfilisprófum vegna mæðraskoðunar borist Rannsóknastofu i
Yeirufræði, um 4000 sýni á ári. Hefur verió gert rauðhundapróf á
°lium sýnum, þar sem ekki er til jákvæð mæling á viðkomandi konu.
Hafa allar konur meó litil mótefni verið endurmældar og þeim neikvæóu
Sert viðvart. Haustið 1976 var tekin ákvörðun um bólusetningu þess-
a^a mótefnalausu kvenna strax eftir að þær höfðu fætt. Hefur þeim
srðan viðast hvar verið boðin bólusetning áður en þær fara heim af
fmóingarstofnunum. Ef hingað koma sýni úr bólusettum konum, sem
komið hafa i mæðraskoðun, eru þau mæld til eftirlits með árangri
óolusetningarinnar og til öryggis fyrir hina bólusettu.
Haustið 1976 var einnig tekin ákvörðun um reglulega rauðhundabólu-
setningu i skólum. Hófust þá mótefnamælingar i 12 ára bekkjum grunn-
skóla i Reykjavik og á Akureyri. 1 janúar 1977 hófust bólusetningar
^otefnalausra telpna á þessum stöðum og var gerð könnun á árangrinum
^-..fyrstu hópunum tvivegis, 6 vikvim og einu ári eftir bólusetninguna.
Könnun var einnig gerð i lok rauðhundafaraldurs tveimur árum eftir
kólusetninguna. Mótefnamæling og bólusetning mótefnalausra 12 ára
telpna er orðinn fastur liður i heilsugæslu i skólum á öllum þéttbýlum
stöðum á landinu og viðast hvar i dreifbýli. Starfsmenn Rannsóknastofu
1 veirufræði annast sýnatöku og mælingar i skólum á Reykjavikursvæðinu
nota þar sérstaka mjög handhæga tækni, sem þróaðist hér á deildinni
arin 1977-'78. Hefur samstarfið við skólahjúkrunarfræðinga og Heilsu-
verndarstöð Reykjavikur verið sérstaklega ánægjulegt og gengið mjög
Vel, þannig að þessu verki er að mestu lokið fyrir jólaleyfi i skólum.
"f öðrum stöðum berast blóósýni i þessar mælingar með hefðbundnum
úætti. Nokkrum vikum eftir bólusetninguna eða næsta haust eru tekin
113